Pressan - 25.08.1994, Blaðsíða 16
MYND: JIM SMART
Hvæsir ef henni er strokid öfugt
Helga Thorberg um myndina af sjálfri sér:
„Hjá þessari konu er bara líf og ijör og það eru gróskumiklir dagarnir
hjá henni um þessar mundir. Þessi manneskja held ég að sé bara alveg ein-
stök. Hún er voðalega glöð og henni líður vel innan um blóm. Henni líður
kannski einsog hún sé í Afríku hún er svona að reyna að lifa nokkurskonar
frumskógar lífi niður á Vesturgötu. Mér finnst þetta tígrisdýrahættu eðli
bara virka nokkuð vel. Henni líður vel í frumskóginum, er glöð þar og líð-
ur vel innan um plönturnar og dýrin - það er alveg ljóst.
Hún hugsar um lítið annað en dýrin, hún talar við plönturnar og inn-
búana í frumskóginum. Ég held að hún haldi að hún sé blómadrottning
skógarins enda örlar eiginlega á því. Þarna ræður hún ríkjum, þarna á hún
heima og þarna tekur hún uppá ýmislegu.
Þrátt fýrir að vera svona gíöð þá hvæsir hún ef henni er strokið öfugt en
hún er líka alveg ofboðslega blíð. Ég sé hana alveg fýrir mér með dýraung-
ana og hreiðrið allt í kringum sig.“
Þad era takmörk fyrir öllu
Bakhlidm
Vítabani íslenskrar knatl-
spyrnu um þessar mundir
er án efa Haukur Bragason
markmaður Grindvíkinga.
Næstkomandi sunnudag
fær svo sannarlega að
reyna á þennan snjalla
markmann því þá leika
Grindvíkingar við lið KI\ í
úrslitaleik um Mjólkurbik-
arinn.
Hann stundar nám í Mat-
vælafræði við l láskóla Is-
lands og hefur j nógu að
snúast þessa dagana þar
sem haustprófin standa
sem hæst. Hann einbeitir
sér að prófiestri á milli
þess sem hann hugar að
fótboltanum en gaf sér þó
líma til þess að sýna á sér
bakhliðina.
Hvaðfærðu þér í morgunmat?
Kaffi, mjólkurafurðir, kaffi.
Myttdirðu fresta brúðkaupinu
þínu ef að leikur kcemi óvænt upp
satna dag?
Það eru takmörk fýrir öllu.
Hvaða samherja myndirðu cinna
helst treysta fyrir húsinu þínu eina
helgi?
Hjálmari Hallgrímssyni, lög-
regluþjóni.
Ef þú œttir að velja martröð
tengdapabbans hvcr yrði fyrir val-
inu?
Geri ekki upp á milli GórilJu-
mannanna.
Hvor er betri Raggi Bjama eða
Ómar Ragnarsson?
Ef Raggi Bjama er betri þá er
Raggi Bjarna ennþá betri þegar
Ómar Ragnarsson leikur hann.
Fylgir heppni alltaf ákveðnum
cinstaklingum eða er heppni ekki til?
Heppni er til en fylgir ekki ein-
staklingum.
Hvað hefurðtt banað ntörgum
vítaspymum í sumar?
Ég hef banað 7-8 stykkjum.
Áttu Mikka Mús eða einhverjar
fígúrunœrbuxur?
Ég nota það besta, Achille.
Hvemig skilgreinirþú rómantík?
Óútskýranlegt huglegt ástand
tveggja einstaklinga.
Hvað eldarðu helst ofaní þig og
hvor tnakinn erduglegri að elda?
Pastarétti af ýmsum toga. Hlut-
föllin eru ca. 60/40 henni í vil.
Hver er kækurintt þinn?
Sko og einmitt.
Besti íslettski leikarinn?
Pétur Einarsson.
Ferskasti drykkurinn?
Vatn.
Ertu Itippi inn víð beinið?
Nei, en ég held að konan mín sé
það.
Hvað ertu nákvœmlega með mik-
innpening í veskinu þessa stundina?
200 krónur.
Hvaðfer mest í taugarnar á þér?
Umferðarþunginn á Keflavíkur-
veginum þegar maður er seinn fýr-
ir á æfingar.
Hvað er andstyggilegast við fót-
boltann?
Tvímælaiaust meiðslin.
Finnst þcr aðlaðatidi að ftska
rennandi sveitt föt uppúr töskunni
þinni?
Það er nákvæmlega ekkert að-
laðandi við það og það cr gjörsam-
lega óþolandi þegar ffanski renni-
lásinn á legghlifúnum festist í ullar-
bolnum.
Þvœrðu afþér sjálfur?
íþróttafötin þvæ ég sjálhir.
Hver cr hefð fótboltakappans?
Te og ristað brauð tveimur tím-
um fyrir leik.
Hver erþín sterkasta hlið?
Geri ekki upp á milli haígri og
vinstri hliðanna.
Hvar myttdirþú koma þérfyrir ef
þú fcngir að vcra ósjntilegur í einn
dag?
1 herbúðum KR-inga fyrir bikar-
leikinn.
Hvertt myttdir þú kjósa setti verst
klœdda mann íslands?
Ég þoli ekki slcggjudóma á
klæðaburð fólks_____ég neita að
svara.
Eitt orð yfir íþróttir?
Þráhyggja.
Besta samlokatt?
Brauð með síld og eggi.
Hvaða bók lastu nýlega?
Universal cliemistry (var í prófi).
Hvað finnst þér um menn cinsog
BennyHinn (töfralœkninn)?
Hann er vafalaust ágætur svo
lengi sem hann er ekki heimilis-
læknirinn minn.
Hvaða lag tœkirðu í karókí ef til
kæmi?
Þó ég færi aldrei i skóna hans
Morrisey þá held ég að ég tæki lag
með Smiths.
í hvaða stellingu sefurðu best?
Liggjandi.
16 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 25. ÁGÚST 1994