Pressan - 25.08.1994, Blaðsíða 19
Lífið effcir vinni
Jb
Á sunnudag
...Kyn-
lífi og
það
nógu
miklu.
Kynlíf er
talið
betra en höfuðverkjatöflur
við hausverk enda er fyrir-
bærið kynlíf spennulosandi
og heilbrigt fyrir alla.
...Hvítárferðum. Að hoppa
útí ískalda og straumharða
ána og finna köfnunartilfinn-
inguna hellast yfir sig hlýtur
að vera einstök tilfinning.
Það er í góðu lagi þar sem
öryggið er ávallt í lyrirrúmi
og maður er bara „veiddur"
uppí bát að reynslu lokinni.
...Húsdýragarðinum fyrir
einstæða feður sem þurfa
að taka börnin sín þessa
helgina. Ungur einstæður
faðir hér í bæ skellti sér með
barnið sitt í fyrrnefndan garð
á pabbadegi nokkrum og
sagðist hann sjaldan hafa
séð jafn mikið af fallegum
einstæðum mæðrum. Það
er þá bara að drífa sig á
staðinn!
Ryð ★★ á Stöð 2,
föstudag kl. 23:00.
Þessi bíómynd Lárus-
ar Ýmis Óskarssonar
er í skárri kantinum
af íslenskum bíó-
myndum. Þeir sem
sáu leikrit Ólafs
Hauks Símonarson-
ar, Bílaverkstæði
Badda, sem myndin
er byggð á, verða þó
fyrir vonbrigðum.
Uppí hjá Mad-
onnu ★★★ In Bed
With Madonna á
Stöð 2 strax á eftir
Ryði kl. 00:40. Flestir
hafa áhuga á því að
elta hina kynhungr-
uðu Madonnu upp í
rúm. Sigurjón Sig-
hvatsson og félagar
hjá Propaganda Films gefa okkur séns á að liggja á gægjum.
Falin Myndavél fi® Candid Camera á Stöð 2, laugardag kl. 20:00. Þó
að Sigrún Stefánsdóttir lesi fréttirnar á RÚV er skárra að halda sig við
þær en hlusta á aumkunarverða aulabrandarana í Dom Deluise. Annað
hvort hafa Kanar brenglað skopskyn eða sjónvaipsstöðvarnar bera enga
virðingu fyrir áhorfendum sínum. Sem betur fer er þetta lokaþátturinn
eftir 26 vikna kvalræði.
Brenndar bækur 8 The Ray Bradhury Theatre: Usher á RÚV, sunnu-
dag kl. 22:50. Stuttmyndir Ray Bradburys eru alltaf kynntar á þann veg
að þar sé ekkert eins og það sýnist. Heldur maðurinn að við séum hálf-
vitar?
mæl
Falin myndavél ★★★
þeirra Svía sem birtist oft i
stuttum innslögum á RÚV er
oft meinfyndin. En væri ekki ráð að fá þættina til
sýningar í heild sinni í stað þess að stunda þessar
smáskammtalækningar á áhorfendum RÚV sem
eru að geispa golunni
yfir dagskránni eftir
eitt versta sjónvarps-
sumar síðan útsend-
ingar lágu niðri í júlí.
s
Gott á griliið 8® á Stöð
2, kl. 12:55 á laugardag. Óskar Finnsson, frambjóð-
andi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnarkosningun-
um, veit sem er að leiðin til frama í stjórnmálum er í gegnum sjónvarpið.
En plís! Vcit hann ekki að borgin
er.töpuð? Óskar og sláninn sem
hann er í slagtogi við eru svo
yfirmáta snyrtilegir, yfirmáta tii-
gerðarlegir og yfirmáta leiðínleg-
ir að mann langar helst til að
tröða þeim á grillið, setja lokið á
og bíða þar til þeir eru örugglega
well done. Hvar ertu Siggi Hall
með sauðasvipinn þinn!?
íþróttaþátturimi á
RÚV, sunnudag kl. 17:00.
Það er kannski óþarfi að
horfa á allan þáttinn, sér-
staklega ef Samúel Örn fær
að komast að með hestae-
róbikk. En Arnar Björns-
son ætlar að hita upp fyrir úrslitaleikinn í bikar-
keppninni milli KR og Grindavikur á sunnu-
daginn. Arnar klikkar ekki. (Áfram Grindavík!)
r p
Hverjir voru Kvar?
Á gangi saman á Austurvelli í bliðviðrinu í hádeginu á
föstudag voru þeir Björn Bjarnason alþingismaður og
Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskips. Þar gengu einn-
ig hjá parið Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og
Ingibjörg Eyþórsdóttir. Á bæði fimmtudag og föstudag var
Café París kjaftfullt bæði að innan sem utan enda segir
manni svo hugur að fólk sé að nýta síðustu geisla sólar-
innar, haustið er jú, að renna upp. Þarna sáust m.a. Ás-
laug Dóra Eyjólfs-
dóttir dagskrár-
gerðarkona og Sig-
urður Nordal hagfræðingur, Hcrdís Birna Arn-
ardóttir fréttamaður, Kári Waage PR-maður
Tunglsins.
Skýringin á því að menn eins og Andri
Már Ingólfsson ferðafrömuður sáust ekki á
næturlífinu á laugardagskvöldið var væntan-
lega sú að hann tók þátt í maraþonhlaupinu á
sunnudag. í hlaupinu á sunnudag mátti einnig sá menn eins og Pál Stefánsson Ijós-
myndara, Kristján Ara Arason blaðamann, Boga Ágústsson fréttamann, Geir H. Ha-
arde alþingismann, Ellert B. Schram rit-
stjóra, Lars Emil Árnason myndlistarmann,
Ottarr Guðmundsson lækni, Þórarin Eld-
járn, Helga Skúla Kjartansson og Jakob
Þór Einarsson.
Vinkonurnar Ester Guðmundsdóttir
Söngsmiðjustjóri og Elva Gísladóttir leik-
kona, sem saman eru að setja upp söng-
leikinn Grease, sáust skemmta sér vel á
Café Róm-
við parið Glódís Gunnarsdóttir og Georgio og fullt af
öðru fólki.
Á Café List á föstudagskvöld varÁrni Þórarinsson
höfundur Hrafnsbókarinn-
ar væntanlegu, Hilmar
Örn Hilmarsson galdra-
maður, Steinunn Ólina
Þorsteinsdóttir leikkonan
vinsæla og Felix Bergs-
son leikari.
Rósenberg-kjallarinn
gekk á föstudagskvöld í
endurnýjun lífdaga, eins
og hann leit út áður en Kaffibarinn tók völdin. Þar var
haldið afmælisboð en svo mátti sjá þar ýmis gömul and
lit enda átti Kaffibarsgengið ekki í nein hús að vernda
eftir miðnætti alla helgina sökum óvenjumikils eftirlits i
bænum helgarnar á undan. Eftir lokun Rósenbergkjallar-
ans lét gengið ekki deigan síga heldur hélt til partis skammt frá Þjóðleikhúsinu, þar
sem m.a. mættu meðlimir Bubbleflies sem um þessar mundir er bundir í studiói dag
og nótt. Það teiti stóð fram eftir öllu. En það verður að segjast eins og er að greind
arvísitalan fór þar snarminnkandi frá klukkustund til klukkustundar.
Á laugardag í síðdegiskaffi á Kaffibarnum sátu Gurrí annars vegar og Górillan
hins vegar, þ.e.a.s önnur þeirra, eða Davíð Þór Jónsson.
Á Sólon Islandus, um kvöldið, voru Páll Grímsson varabjarnidagurjónsson með
skegg, Ólafur Páll landvörður, Jón Óskar hagfræðingur, Sólveig Thorlasíus og Krist-
inn Jóhannesson hjá Atlanta.
auglýsing
fyrir mig
Á laugardag
...Fólkinu okkar en það er
stuðningsmannahópur sem
hefur verið
stofnaður í
tilefni af HM -
keppninni í
handbolta.
Hann tryggir
fólki miða á
tíu leiki Is-
lands á
heimavelli
fram að HM.
Að sjálfsögðu fæst það ekki
ókeypis en þessi hópur mun
njóta ýmiss konar forrétt-
inda.
...Alain Robbe-Grillet kvik-
myndahátíðinni sem hefst í
Háskólabíó á laugardag en
Alain þessi hefur starfað
sem rithöfundur og kvik-
myndagerðamaður frá árinu
1953 og er hann fæddur í
Vestur-Frakklandi. Hátíðinni
lýkur 4. september.
...Sniglabandinu og Borg-
ardætrum sem leiða hesta
sína enn og aftur saman.
Þessar hljómsveitir byrja
helgina á föstudagskvöld
með dansleik í félagsheimil-
inu Hamraborg á Berufjarð-
arströnd en á laugardags-
kvöldinu verða þær á tveim
stöðum, Hótel Tanga á
Vopnafirði og á Hofi.
Guðrún María Finn-
bogadóttir, sópran
söngkona, hlautTón-
vakaverðlaun Ríkisútvarpsins
þetta árið en alls tóku sjö kepp-
endur þátt í úrslitum keppninnar.
Hún gæti reynst mörgum
kunn úr versluninni Antikmunir á
Klapparstíg en þá verslun hefur
hún rekið undanfarin 6 ár ásamt
eiginmanni sínum. Guðrún er nú í
barneignarfríi auk þess sem hún
æfir sönginn en í vetur hefur hún
verið að klára 7. og 8. stigið frá
Söngskóla Reykjavíkur.
„Þessi keppni gefur mér auk-
in tækifæri til þess að koma fram
á vegum Ríkisútvarpsins og
þetta verður mikil auglýsing fyrir
mig persónulega. Ég geri ráð fyr-
ir að þetta verði mjög lærdóms-
ríkur og þroskandi vetur enda
mikið af nýjum verkefnum fram-
undan."
Það sem tekur við hjá Guð-
rúnu á næstunni eru hátíðartón-
leikar með Sinfóníuhljómsveit ís-
lands þann 13. október og verður
þeim tónleikum útvarpað um öll
Norðurlöndin. Einnig mun hún
taka þátt í jóla- og páskapró-
grammi Ríkisútvarpsins og
næsta haust verður hún fulltrúi
íslands í Tónlistarkeppni ungra
norrænna tónlistarmanna sem
haldin verður í Reykjavík.
Sigurvegari Tónvakans hlýtur
250 þúsund krónur í verðlaun en
ennþá á eftir að veita verðlauna-
fé keppninnar. Enn er óljóst hver
það hlýtur en það mun skýrast á
fyrrnefndum tónleikum þann 13.
október.
Guðrún vildi koma á framfæri
þakklæti til kennara síns og und-
irleikara fyrir mikla hjálp og
stuðning en það eru þau Elísa-
bet F. Eiríksdóttir og Iwona
Jagla
FIMMTUDAGURINN 25. ÁGÚST 1994 PRESSAN 19