Pressan


Pressan - 25.08.1994, Qupperneq 21

Pressan - 25.08.1994, Qupperneq 21
4J' Donna Karan mun setja svip sinn á íslenska tísku í vetur, eða DKNY lína hennar. Marta Bjarnadóttir í Evu hefur þegar fengið umboðið og mun setja upp sérverslun, með fatnaði og fylgihlutum hennar, í október. Hermannaklæðnaður í mismunandi myndum verður hátt skrifaður í vetur. Mikið verður líka í felulitunum. Það er ágætt vilji maður stinga hausnum í sandinn á skemmtistöðunum. MARCH 2, 1994 Sýnishorn úr skrifborði Donnu Karan. Pilsin verða ýmist stutt, hnésíð eða síð. Ekkert þar á milli. samber töskur, hjálma, stígvél og merki, eða það sem kallað er Army surplus erlendis. Verslunin Flauel hefur einnig lagt töluvert upp úr hermannaklæðnaði. „Það er greini- leg bylgja hér á landi í hermanna- fatnaði núna. Og það eru ekki bara karlmenn sem versla slíkan fatnað. Mér sýnast konur vera í meiri- hluta,“ segir Ólafúr eigandi Arma Supra. Sú verslun verslar mest af sínum fatnaði frá Englandi og Þýskalandi en svo hefur Arma supra einnig töluvert úrval af austantjaldsfatn- aði, rússneskum ffökkum, ein- kennisbúningum og medalíum. Breiddin er því þónokkur. Arma Supra opnaði fýrir réttu ári og hafa viðskiptin verið að auk- ast jafnt og þétt. En var þetta tilvilj- un eða greindu þeir svo snemma tískustraumana. „Þetta var algjör tilviljun. Það má segja að við séum á réttum stað á réttum tíma. En maður veit ekki hvað þetta endist lengi. Við fundum nokkuð fýrir flotatísku síðasta vetur en nú virð- ist allt vera að koma í felulitunum. En svo eru reyndar ákveðnir hlutir sem ganga í landann eins og her- mannastígvélin og úlpurnar. Það notaða er alveg jafhvinsælt og hitt, eða jafnvel vinsælla.“ Það er því greinilegt að úr mörgu er að velja í vetur og einnig sannast það fomkveðna að tískan gengur í hringi. Þótt velta megi fýrir sér hvort hringimir fari ekki síminnk- andi. Svona í framhaldi af bleikum varalitum, fjólubláum augnskugg- um og glansgöllum má velta fýrir sér hvort uppisminn fari hvað á hverju að taka á sig breytt form. Kom hann ekki einmitt kjölfar batnandi efnahags? Guörún Kristjánsdóttir Karlmenn og íburðarmiklir frakkar fara vel saman í vetur. Það á einnig við um einkennisbúningana. Konur njóta sín líka vel í slíkum fatnaði. "56 aaf> Heitt Flauel Brúnn Herklæðnaður Mokkaskinn Loðfeldir, eitthvað sem er mjúkt. Þröngt og sérhannað Diskó—glamúr Flókahattar Víðir bolir Smókingjakkar Mokkasíur Röndótt Þreytt Kæruleysislegur klæðnaður punk og rokk húfur Víðar buxur Tweedjakkar Hlaupaskór Gmnge Vesti Leggins Bert á milli laga FIMMTUDAGURINN 25. AGUST 1994 PRESSAN 21 Uósmynd:Jlm Smart.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.