Vísir Sunnudagsblað - 24.07.1938, Blaðsíða 6

Vísir Sunnudagsblað - 24.07.1938, Blaðsíða 6
,6 VISIR SUNNUDAGSBLAÐ Vér Islendingar þurfum nýtt líf, nýjan liugsunarhátt og framkvæmdir iá þeim grund- velli. Nýtt liugarfar vrði hvort- tveggja í senn aflvaki nýrra hollra átaka og afleiðing þeirra, eftir leiðum meðal annars, er eg mun lýsa. Ef allur almenningur skildi til fulls livað eiginlega væri að gerast væri það stórt spor í rétta átt. Og hví skyldi þurfa að vera ástæða til að örvænta um, að nægilega margt fólk í land- inu öðlaðist shkan skilning til að skapa andleg og menningar- leg straumhvörf, landi og lýð til ómetanlegra heilla. Hver sem trúir á giftu þessarar þjóðar og fagra framtíð hennar, hlýtur að trúa á þessa möguleika og gera sitt tiþhver i sinni stptt og stöðu, að liann geti orðið að veruleika. XV. Gætileg og skynsamleg heyjaásetning á hverju heimili af hálfu allra húenda, mundi spara þjóðinni árlega gífurlega mikið fé, sérstaklega í hörðu ár- ferði og vorharðindum. „Hollur er haustskaði“, sögðu gömlu mennirnir. Það eitt út af af fyr- ir sig að koma í veg fyrir van- liöld og vanþrif vegna lieyleys- is er hjargráð, er engum bregð- ast mundi. Ifér kemur engin löggjöf að liálfu haldi, engin heyforða- búr né fóðurhirgðafélög eða neitt shkt að laga boði. Hver bóndi þarf að eiga heyforðabúr, svo honum sé óhætt, hvernig sem árar. Það þýðir ekki hót að setja á fleiri skepnur en það, að til sé nóg fóður handá þeim. Hér þarf að fara um alt eftir lögum, sem hvergi eru skráð nema í meðvitund þjóðarinnar sjálfrar. Slík lög um að setja vel á vetur, þurfa að vera eins og brend inn í meðvitund hvers einasta bónda og ])úanda í land- inu. Að setja, sem kallað er á „guð og gaddinn“, er stórháska- legt. Mörgum hefir á liðnum tímum og öldum orðið að hlæða til ólífis af þvi að þeir settu á guð og gaddinn“. Það er heldui ekkert vit. Fyrir utan alt af- skaplegt fjárhagstjón er alt Iiugarangrið, vökunæturnar, kviðinn og kveljandi áhyggj- urnar, vonleysið, þegar heyja- forðinn er á þrotúm eða þrot- inn, og hvergi er máske hjálp að fá. En náttúran fer sinu fram, livað sem líður lieybirgð- um búandans. Islendingar hafa á liðnum ölduín lifað marga fellivetur og fellivor. Slíkt á ekki að þurfa að koma fyrir framvegis og slíkt má aldrei koma fyrir oftar. Saga framtið- arinnar ætti ekki að geyma shk- ar hroðalegar skuggamyndir. Það er landslýðnum sjálfum fullkomlega í sjálfsvald sett. Engnn setji framar á „Guð og gaddinn“. Rejnsla fortíðarinn- ar talar svo alvarlegu máli í þessum efnum, að fram lijá henni má enginn framar ganga. Enginn hefir heldur gagn af skepnunum, sem falla af fóður- skorli eða eru kvaldar fram af fóðurskorti. Nógar votheysgryí'jui' á hverjum hæ mundi í óþurkatíð spara þjóðinni stórkostlegar fjárhæðir og skapa margfalt hetri liollustuhætti þjóðarinnar vegna heilnæmari mjólkur. Náttúran leggur til græna grasið, „hfgrösin“, þessa ó- tæmandi auðlegð og heilsu- gjafa. Hversvegna að gera þessa auðlegð að engu vegna deyfðar og hirðuleysis ? Hversvegna ekki að safna þessum forða, þessum auðæfum, hvernig sem viðrar? Hvers vegna að kvarta yfir ó- þerrinum og hafa í rauninni alt á sínu valdi, þó rigni mikið og lengi um sláttinn? Hver getur eiginlega tölurn talið alt það gífurlega fjárhags- tjón, er bændastéttin bíðui’, þegar taðan á túnunum í lieil- um sýslum eða heilum lands- fjórðungum eða vel það ónýt- ist eða lirekst? Þær tölur, ef til væri, mundu svo stói'kostlegar, að öllum mundi ofbjóða. Yot- heyshlöðurnar (gryf jurnar) eru shkt þjóðráð, að enginn hóndi ætti frainar að láta undir liöfuð leggjast að leggja sér þær til. Og eftir liverju er eiginlega að bíða? Ef hér fvndist auðug gull- náma, mundi allir stökkva upp til handa og fóta, hér eins og i örðmn löndum. Hver bóndi á auðuga gullnámu — það vill svo vel til. — Gullnáman er græna grasið. Því ]xá að láta sér slíkt lir greipum ganga? Xægar heyyfirbreiðslur á hverjum bæ til að vei-ja þur- heysgaltana. Hvei-nig væri að stagla saman alla fóðurbætis- ]xokana og nota í yfirbreiðslur ? Einnig slíkt náð nxundi spara stórfé alls yfir. Slíkir yfir- breiddir galtar standast undra- vel úrfelli, jafnvel stórrigning- ar. Það hefir x*eynslan nú þegar sýnt og sannað, svo ekki tjáir móti að mæla. Kaupum á útlendum áburði þarf að stilla franxvegis í hóf. Hóflegri kaup á slíkunx áburði mundi spara landinu jafnvel hundruð þúsunda. Með þvi að fara gætilega að því að glenna út túnin, taka að eins fyrir á hverjum siað snxábletti árlega, senx bóndinn réði fullkomlega við til að geta svo sýnt túninu í lieild sinni full skil með hyggi- legi*i og vandvirknislegri fi*am- kvænxd verksins sjálfs og næg- um áburði, mundi foi*ða fjölda mörgum frá botnlausum skuld- um. Nægar áburðargeymslur á hvei’jum bæ, liús og safnþrær, svo að notaðist til lilitar að þvi sem til væri mundi spai*a rnikiJ kaup einmitt á tilbúnum áburði. Hæfilegri íbúðarhús en tíðk- ast lxefir í landinu, hetur sniðin eftir stakki efnahagsins o. s. frv. Alt þetta til samans mundi spax*a landinu og þjóðinni alveg ógrvnni fjár, sói*kostlegar upp- hæðir i ei’lendum gjaldeyri, og nýja skuldasöfnun. Af þessu öllu mundi leiða öruggari og ár- vísari þjóðarliag, minni áhyggj- ur og vandræði einstakling- anna vegna fjárhagsafkomunn- ar, færri hrakfarir vegn ógætni og f yrirhyggj uleysis, minni beiskju liugarfarsins vegna þess hve alt gengi vel, ef engin ófyr- irsjiáanleg og óviðráðanleg ó- liöpp vildi til. Alt færi að vísu nokkuru liægara, en alt mundi vera í áttina, en efnahagurinn tryggari livernig sem áraði. Eftir slíkum háttum þarf þjóðin að breyta framvegis. Með slíkum liáttum sýndi hún, að hún væri hinum mikla vanda vaxin. Hver kynslóð mundi skila landinu betra og glæsi- legra í liendur nýrri kynslóð, og minni vandi mundi við að laka af liinni, sem gengin væri veg allrar veraldar. I öllu þessu mundi felast framfarir, aðdáanlegar fram- farir á nýrri og hærri þroska- braut. Mundi slíkt ekki vera eftir- sóknarvert ? XVi. Á árunum 1896 og fram yfir aldamót (1900) voru bygðar margar heyhlöður í Kjalarnes- hrejipi. Að byggja lieylilöðu þótti mikið í ráðist á þeim ár- um. Þær voru bygðar upp þann- ig, að menn úr sveitinni hópuð- ust saman og unnu hver hjá öðrum án endurgjalds annars en þess, að aftur unnu þeir hjá öðrum, er unnið var hjá í hvert sinn. Á þeim árum t. d. voru by.gðar margar hevhlöður. Tveir ágætir smiðir úr hópi bændanna smíðuðu yfir flestar lilöðurnar t. d. Kolbeinn heitinn Eyjólfsson í Kollafirði. Borgun- in var i vinnuskiftum. Árið 1906 eða 1907 tóku flest- ir bændur i sama lireppi sig saman um að vinna hverr lijá öðrum i skurðum og garð- lileðslu. Þetta hefði tæplega liver fyrir sig framkvæmt, ef liann liefði átt að svara út kostnaðinum i peningum. Á þessum árum flytst bóndi einn, einyrki úr annari sveit, á jörð í Kjalarneshreppi. Hann var efnalítill maður með ó- megð. Hann kemur að jörð þar sem alt var i rústum. Þegar liann kemur að jörðinni, koma bændurnir úr sveitinni, bylta gömlu rústunum, byggja veg- lega lilöðuveggi án endurgjalds og vinna fleira lijá þessum bónda. Sonur þessa hónda sem er duglegur og gáfaður hóndi á Kjalarnesi og heimildarmaður minn um þessa hluti, segir mér að faðir sinn liefði tæplega í þetta ráðist, ef liann liefði þurft að borga þessa vinnu. Þvi þetta þótti mikið á þeim árum. Á síðasta liausti (1937) var hér i sveitinni (Kjós) lagður nýr vegarspotli nokkur liundr- uð metra langur. Nokkurir bændur tóku sig saman um að framkvæma undirbyggingu þessa vegarspotta án endur- gjalds, sveitarfélagið (hreppur- inn) annaðist svo um að kosta ofaníburðinn. Þó þessi spotti væri ekki langur, var að honum ágæt samgöngubót. Má gera sér vonir um, að eitthvað verði gert framvegis með svipuðum að- ferðum í vegamálum sveitar- innar. Þessi umrædda ólceypis vinna var alhnikil, ef hún liefði verið reiknuð til verðs. En liún var framkvæmd á þeim tíma, er þeir ella liefði ekki fengið * vinnu, en hreppsfélagið munaði um þessa lijálp og ekki þarf að innlieimta þessa vinnu í aukn- um útsvörum. Æskulýðurinn liér í sveit (Ungmennafélagið) og fleiri hafa nokkurum sinnum unnið ókeypis hj.á ýmsum efnalillum einyrkjum, er höfðu orðið fyrir veikindaóliöppum um sláttirm eða hlaupið undir bagga með að stórir hópar unnu að slætti nokkurn hluta helgidags. Þetta hefir ávalt lánast mjög giftu- samlega, orðið þeim að veru- legu liði er hjálpina fengu. Hvortlveggja þetta er fagurt og þakkarvert. Niðurl.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.