Vísir Sunnudagsblað - 10.03.1940, Blaðsíða 3

Vísir Sunnudagsblað - 10.03.1940, Blaðsíða 3
VISIR SUNNUDAGSBLAÐ 3 það, sem jafnvel er talið enn al- gengara, að hjartslátturinn verði að jafnaði óreglulegur. En það bendir til skemda á tauga- brautum þeim, er liggja i bjartavöðvunum sjálfum. Eg vil sérstaklega benda á eitt sjúkdómseinkenni frá hjarta, er mjög gjörir vart við sig, hjá þeim, er neyta tóbaks, en það er það sem á læknamáli er nefnt: Hjartaneurosa, —- þrautir fyrir bjarta, samfara hröðum hjart- slætti og magnleysistilfinningu. Það er einnig talið sannað mál, að næringaræðar hjarta- vöðvans, er liggja víðsvegar í honum geti þyknað og kalkað við langvinna tóbaksnotkun. -— Þegar sá sjúkdómur kemst á hiátt stig, ber ávalt og óhjá- kvæmilega á sjúkdómseinkenn- um, sem eru skelfing allra þeirra, sem fyrir þeim verða: Angina pektoris (hjartakrampi) - Þrautir þær, er henni fylgja eru oft svo magnaðar, að sterkustu deyfilyf fá vart við ráðið. — Afleiðing veiki þessarar eru svo iðulega hin svonefndu hjarta- slög, sem er skyndidauði, og or- sakast af þvi, að næringaræð í hiartanu springur og blæðir inn í hjartavöðvana. Eg læt hér staðar numið með að greina frá sjúkdómsfyrir- brigðum, sem talin eru koma í ljós á ýmsum líffærum í sam- bandi við tóbaksnotkun. — En eg vil þá hér minnast á eitt mik- ilvægt atriði, sem læknar hafa veitt athygli hin síðari árin: sambandsins sem virðist, vera milli tóbaksnotkunar og krabba- meina. — Það eru noklcur ár, siðan læknum tókst að sanna, að í tóbaki, eða tóbakssósu, væru efni, sem mvnduðu krabbamein í dvrum. væri þeim nuddað inn í húð þeirra. Hafa tilraunir þess- ar verið giörðar og endurteknar mörg hundruð sinnum i ýmsum löndum og ávalt með sama ár- angri. Hinsvegar er deilt um það, hvorí lóbakið, — í því formi, sem það almennt er notað, — orsaki krabbamein. — Skýrslur ýmissa vátryggingafélaga hiiálpa okkur til þess, að draga álykt- anir þessu viðvíkjandi. Metro- polilan Insurance Company hef- ir nýlega gefið út skýrslur um þetta efni. Þar segir: „Krabba- mein hafa mikið færst i vöxl siðuslu 15 árin. Hjá konum um *2Ac/c') hiá körlum um Jafnframt sýnir sig, að menn, sem ekki neyta tóhaks, eins og tiðkast Iijá ýmsum munkaregl- jum, fá örsjaldan krabbamein.“ Það er talað iim reykstrfeti líkamans. Með þvi er átt við munn, tungu, kok, nef, barka og lungu. — Nákvæmar rannsóknir hafa leitt í ljós, að dánartala reykingamanna úr krabbamein- um í þessum líffærum er 14 sinnum hærri, en hinna, sem ekki neyta tóbaks. — Einnig er afar eftirtektarvert, að háls- krabbi og lungnakrabbi aukast stórkostlega ár frá ári, og setja læknar það í samband xdð hina slórum auknu tóbaksnotkun. IV. Ýmsir menn liafa undanfarna áratugi hafið öfluga baráttu gegn hverskonar eiturlyfjum, og þá einnig gegn tóbakinu. Það hefir verið reynt að rækta að eins Nikotin-snautt tóbak, og hefir það heppnast vonum fram- •ar, en framleiðsla þess er of dýr, til þess, að almenningi sé klevft að kaupa það. — Þá hefir verið reynt að framleiða efni, er sýj- að gæti tóbakseitrið úr reykn- um. Einna best hafa reynst asbest-baðmullar filtur, og er þetta talið að koma að veruleg- um notum. Þá má minnast beirrar bar- áttu læknanna, að finna örugg lyf, er vanið gætu menn af að reykja, jafnvel hina svæsnustu reykingarmenn. Sú leið hefir verið farin, að fá menn til þess að skola munninn með lyfjum, er orsökuðu óbragð i munnin- um. þegar reykt er, — slík lyf eru til, eans og t. d. hið fræga C-lyf, sem kent er við dr. Wood, en tyf þetta hefir þann ókost, að það er mjög dýrt. — Þá hefir einnig verið reynt vítisteins- vatn, perhydrol o. fl. lyf, sem vafasamt er að komi að gagni. — Síðustu árin, hafa þýskir Iæknar mikið notað efni er nefnist Transpulmin, og þykir mörgum það reynast vel. Lvf þetta er dýrt, og er dælt inn í vöðva. Það er önnur hlið á þessu máli, sem eigi ber síður að athuga. íslendingar eyða í tóbak ca. fjórum og hálfri miljón króna á ári, eða sem svarar 40 krónum á hvert mannsbarn í landinu. Þetta er mikið fé, fyrir þjóð, sem nú fyrst er að nema landið, og á aðeins fá og úi’elt fram- leiðslutæki. — FjTÍr fé þetta gætum við ræktað mikið land og bygt mörg skip, lokið við Krísuvíkurveginn og bygt höfn í Þorlákshöfn o. fk, og með bví undirbúið landnám fyrir þús- undir atvinnusnauðra Islend- inga. Á stormatímum, slíkum, sem við nú lifum á, blaktir lif litillar þjóðar, sem okkar, á veiku skari, gæti hún ekki heilsu sinn-. ar og fjármála. — Er ekki úr* vegi að henda á, að evðsluféj,5 þjóðarinnar x tóbak og áfengi.1 svai-ar til sjöunda hluta af verð- * mæti útfluttra afurða. Þetta er - eitt af þeim vandamálnm, sem lagfæra þarf hið fyrsta. — Skól- ■ arnir okkar eiga fyrst og fremst að hefjast handa og móta bai-nslundina í rétta átt, þvi þeii’ra áhrifa gætir lengst. Þar á að glæða hugsun barnsins í. þá átt, að vernda lxeilsu sína, og bera vii’ðingu fyrir sparneytni, x’æktun og framleiðslu sins lands, og brenna það inn í með- vitund barnsins, að fleyja ekki hverjum innkomnum eyri í einskisnýtan og heilsuspillandi munað. 5/4, 1940. J. Sveinsson. Leikarar eru aö segja frá æfin- týrurn sínum. „ÞaS er engiun sá staSur til í heiminum, sem eg hef ekki leikið á“, sagði einn þeirra. „Lékstu lika á Noröurpólnum ?“ spurði annar. „AuSvitaS lék eg á NorSurpóln- um.“ „Var ekki ákaflega kalt þar?“ „Jú, þaS má nú segja. Eg lék í hlutverki Róxneo og Grænlend- ingar urSu svo hrifnir, aS þeir grétu fögruin tárum.“ „Nú, og svo?“ „Svo bara frusu tárin og i þriSja þætti héldu Eskimóarnir, sem sátu undir svölunum, aS þaS væri skolliS á haglél, því frosnu - tárin hrundu svo ört af kinnum r: fólksins, sem sat uppi á svölun- um.“ ★ New York er mesta skinna- sölumiöstöS í Ameríku. Næst henni kernur Seattle á Kyrra- hafsströndinni. Þar voru á síöasta ári seld samtals 750 þús. mismun- andi skinn. SKYLDI ÞAÐ LÁNAST? — • Við möx’g íbúðárhús í Brelland: eru smá loftvariiaskýli, sen.taka 4—5 manns. En því miður eru þau auðsjáanlega ekki ælluð öðx’xx en nieðalstóru fólki svo að það er óvíst hvort hún vinkona .okkar á mypdinni þemst inn um dyrnar. Yonandi hefir það ekkert gert til, þótt þessi til- raun hafi orðið árangurslaus.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.