Vísir Sunnudagsblað - 14.04.1940, Side 8
8
VlSIR SUNNUDAGSBLAÐ
Kontrakt-Bridge
JEftir fpii Kristínu Norömann
Slemsagnir.
Þegar ráðið verður af sögn-
um tveggja samspilara, að þeir
hafi samtals um 7 háslagi eða
þar yfir, er venjulega um slem
að ræða í spilunum. Vinningur
fyrir að segja 6 i lit eða grandi
(hálfslem) er 500 utan hættu en
750 i hættu. Vinningur fyrir að
segja 7 í lit eða grandi (alslem)
er 1000 utan hættu en 1500 í
hættu. Er þvi til mikils að vinna
og reyna allir góðir spilamenn
að notfæra sér slíkar slemsagn-
ir, ef þeir álita fært að vinna
þær. En hins ber einnig að
gæta, að talsverð áhætta fylgir
þessum slemsögnum, þar sem
örugt game getur tapast, ef of
hátt er farið, og rúberta oft þar
að auk. Það er þvi mjög mikils-
vert að geta ráðið af sögnum,
að sterkar líkur séu fyrir slem-
vinning, en jafnframt að örugt
sé að fimm í lit eða grandi geti
unnist, ef farið er að leita fyrir
sér um slemmöguleika.
Það sem mestu varðar i þess-
um sögnum, er að samspilar-
arnir fái vitneskju um ása og
kónga eða fyrsta slag í lit hvor
hjá öðrum. Til þess að gefa upp-'
lýsingar um það eru notaðar
ýmsar sagnreglur. Til þessara
sagnreglna teljast fjögra- og
fimmgrandasagnir, önnur kend
við Culbertson, hin við Black-
wood, og svokallaðar spurnar-
sagnir. Og jafnframt sagnir,
sem gefa til kynna, að spilarar
hafi ás eða séu án litar i ein-
hverjum lit, og eru þær mest
notaðar þegar komið er fram úr
game-sögnum.
Blackwood fjögra-grandsögn
tilheyrir ekki Culbertson-
kerfi. En þar sem margir
spilarar, sem annars spila eftir
Culertsonreglum, nota Black-
wood fjögra- og fimmgranda-
sögn til að spyrja um ása og
kónga, tel eg rétt að taka hana
hér með.
Blackwood-reglan hefir það
til síns ágætis, að hún er ákaf-
lega einföld og auðlærð, og
jafnframt eða engar kröfur eru
gerðar til þess spilara, sem seg-
ir fjögur gröndin, aðrar en þær,
að hann álíti að um slemmögu-
leika sé að ræða. Ef annarhvor
samspilara segir 4 grönd á með-
an á uppboði sagna stend-
ur, er sú grandsögn spurn-
ing til meðspilara um hve
marga ása hann eigi, og er með-
spilari skyldur að svara. Ef síð-
an eru sögð 5 grönd, er það
spurning um kóngana á sama
hátt og spurt var með fjórum
gröndum um ásana.
Svörin eru sem hér greinir
eftir 4 grönd:
5 lauf með engan ás
5 tígla með 1 ás
5 hjörtu með 2 ása
5 spaða með 3 ása
5 grönd með 4 ása
Á sama hátt skal svara eftir
5 grönd:
6 lauf með engan lcóng
6 tígla með 1 kóng
6 hjörtu með 2 kónga
6 spaða með 3 kónga
6 grönd með 4 lcónga
Dæmi:
▲ K-10-8-7
v K-D-2
4 D-6-5-4-2
+ 2
Svar 5 lauf.
4 K-10-8-7
V K-D-2
4 D-6-5-4-2
ás
Svar 5 tíglar.
a Ás-10-8-7
V K-D-2
4 D-6-5-4-2
4 Ás
Svar 5 hjörtu.
r ▲ Ás-10-8-2
4 K-D-2
4 Ás-10-8-4-3
4 Ás
Svar 5 spaðar.
+ Ás-10-8-2
4 Ás-D-2
4 Ás-10-8-4-3
+ Ás
Svar 5 grönd.
Ef sagnir hafa gengið eins og
hér greinir:
1 hjarta — svar 3 hjörtu
4 hjörtu — svar 5 lauf
þýðir laufsögnin að meðspilari
eigi fyrsta slag i laufi (hafi ás
eða sé án litar). Er slík sögn
áskorun til sagnbyrjanda að
reyna slemsögn, svo framarlega
sem bann áliti að um slíkt geti
verið að ræða. — Dæmi:
^ K-D-8-6
4 D-9-7-5-4
4 K-D-8-7
*
Án litar í laufi.
Hitt og þetta
GRÁU HÁRIN.
Þremur líffræðingum við
Barkeley liáskólann hefir tekist
að uppgötva nýtt bætiefni í
rottulikömum, sem ver þvi að
hár þeirra lýsist eða gráni. Hér
eftir má búast við að rottur
komist í dálæti lijá miðaldra
fólki, sem ekki vill verða grá-
liært, því líkur benda allar til,
að þessum bætiefnum verði
sprautað úr rottunum og í pip-
armeyjar i byrjun örvænting-
aráranna — þær, sem ekld vilja
gefa upp alla von um að næla
sér i karlmann.
KÆNN LYFSALI.
Lyfsali nokkur í Nantes varð
þess áskynja á dögunum, að
kolabirgðir hans þrutu óeðlilega
ört úr kolageymslunni. Til að
komast að því, hverju þetta
sætti, helti hann yfir efstu kola-
molana bláum sýruvökva, en
hvolfdi kolamylsnu, er hann
hafði blandað rauðleitu litar-
efni, yfir allan bynginn. Morg-
uninn eflir kallaði hann á lög-
regluna og bað hana að aðstoða
sig við að hafa uppi á þjófnum.
Þeir röktu rauð spor á götunni,
er lágu úr kolageymslunni og
alla leiðina í eldhús einnar ná-
grannakonunnar. Konan þrætti
fyrir að hafa stolið nokkurum
kolum og kvaðst ekki leggja
þjófnað i vana sinn. En þegar
lyfsalinn tók kolamola úr fötu,
setti þá i vatnsílát og vatnið
varð blátt á litinn, þá var eng-
um vafa undirorpið hvaðan kol-
in voru og konan varð að játa
TVlBURAR.
I Buchs í Sviss fæddust tvi-
urar eftir nýárið, sem ekki eru
þó alveg jafnaldrar. Sá fyTri
fæddist 2. janúar, en sá siðari
sex dögum seinna, eða þann 8.
EKKI DUGAR AÐ DEYJA RÁÐALAUS. — Þessi mynd er ensk og sýnir hina skoplegu hlið
bensínskömtunarinnar i Bretlandi. Bóndi einn var staddur i London og vonaðist til að geta kom-
ist heim til sín á siðustu bensíndropunum, sem voru í geyminum á bilnum,daginn sem skömt-
unin gekk í gildi. En bíllinn varð bensínlaus fyr en bóndi bjóst við og liann gat ekki fengið
nokkurn dropa. Sendi bóndinn þá eftir einum dráttarklára sinna og lét hann draga bílinn heim