Vísir Sunnudagsblað - 02.02.1941, Blaðsíða 2

Vísir Sunnudagsblað - 02.02.1941, Blaðsíða 2
2 VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ pað villir enginn dauðanum sýn. Þetla er sagan um Mac Nam- ara sjómann —- mann, sem á öllum úthöfum heimsins var kallaður hinn „ódauðlegi“. Fimmtán ára að aldri fór liann með brezka barkskipinu „Flintsliire“ frá Glasgow til Royal Roads. Mánuðum seinna fann annað brezkt skip, „Aret- lensa“, litinn lekan bát undan Hornhöfða, er rak undan veðri og sjó. Á þóftunum í bátnum lá rennblautur og meðvitund- arlaus unglingur. Þegar búið var að koma honum til sjálfs sin aftur í sjúkraklefanum á „Aretlensa", kom það i ljós, að Mac Namara var sá eini, sem komizt liafði lífs af, er „Flint- shire“ fórst. Blöðin birtu af honum myndir og að fáeinum vikum liðnum var nafn hans á allra vörum vegna þessarar undursamlegu björgunar. Að hann skyldi vera heila viku án þess að fá vott eða þurrt í lek- um, gömlum og fúnum báti úti á reginhafi — og svo loks af hreinustu tilviljun vera bjargað, það var undursamleg heppni. Er frá leið fyrntist yfir þetta æfintýri og nafn Mac Namara gleymdist. Það munu víst fáir hafa veift því athygli, þegar „Lyderhorn“ fórst ári seinna við árekstur á kolaflutninga- skip, að meðal þeirra, sem björguðust, var maður að nafni Mac Namara. Það var ekki fyrr en „Seminole“, skip Colonial- útgerðarfélagsins, brann úti á reginhafi, að nafn lians varð að nýju heyrum kunnugt. Þá var þess loflega minnzt, að Mac Namara háseti hefði allra manna mest lagt sig i liættu til að bjarga farþegunum. Ein- hverjir blaðamenn uppgötvuðu þá jafnframt, að það var sami maðurinn, sem einn komst lif- andi af „Flintshire“, og þeir notfærðu sér óspart þessi atvik til að rifast um forlög og frí- vilja. Mac Nainara bar ekkert skynbragð á forlög eða frívilja og hann lét þau mál afskipta- laus. En það var annað, sem honum kom betur en blaða- rifrildi um forlög sín, og það var fjárfúlga, sem útgerðarfé- lagið gaf honum fyrir hina frækilegu björgun farþeganna úr lifsháska. Og þar að auki voru sumir hverjir farþeganna ekki nízkir menn og létu eitt- hvað af höndum rakna sjálfir. í nokkra mánuði velti Mac Namara sér upp úr peningum. En loks gengu þeir til þurrðar eins og svo mörg önnur lífsins gæði, og Mac Namara varð að nýju að sjá sér fyrir atvinnu. Hann hafði komizt til New York, ásamt þeim mönnum öðrum, er björguðust af „Sem- inole“. Og nú reikaði liann dag eftir dag á milli skrifstofa út- gerðarfélaganna, í þeirri von að fá einhvers staðar atvinnu að nýju. Loks hitti hann gaml- an uppgjafa skipstjóra — Sharp hét liann —, er um tutt- ugu ára skeið liafði eins kon- ar ráðningastofu á hendi. Þessi Sharp kom Mac Namara að sem liáseta á gömlu, fúnu, skit- ugu 2000 tonna stóru flutninga- skipi, sem hét „Atahualpa". Það var að minnsta kosti 40— 50 ára gamalt, og tvívegis hafði verið ákveðið að rífa það, eri í hvorugt skiptið orðið af. — Menn eru yfirleitt ágjarnir og þeir vilja lialda í reiturnar í lengstu lög. Að þessu sinni lá „Atahualpa“ í skipakví í Brook lyn og átti að flytja vopn og skotfæri til Mexíkó, því þar var uppreist. Áhöfninni var borgað tvöfalt kaup og þeir fengu fríðindi, sem áhafnir annarra skipa fengu ekki. En þetta slafaði ekki af rausn né velvilja i garð skipshafnarinnar, lieldur út af vandræðum, því það fékkst ekki nokkur sála á skipið nema fyrir tvöfalt kaup. Það voru fleSlir sannfærðir um, að í staðinn fyrir að komast til Mexíkó, yrði tæplega hjá því komizt að sigla beinustu leið til himnaríkis — en jafnvel þangað vildu sjómennirnir ekki fara fyrir tvöfalt kaup og aukin fríðindi. Mac Namara einn var ekki smeykur. Hann hafði ekkert að ótlast, hann vissi af gamalli reynslu, að skip gátu farizt þó ný væru, og loks var liann of hamingjusamur yfir því að fá atvinnu aftur, til að vera nokk- uð að draga úr ánægju sinni með ástæðulausum ótta. Hann hló hæðnislilátri, kvaðst ekk- ert þurfa að óttast, þvi að liann hafði komizt heill á húfi af „Flintshire“, af „Lyderliorn“ og af „Seminole", hví skyldi hann ekki eins komast lífs af úr þessum dalli. Það má vera að Mac Namara hafi trúað á giftu sina, en svo mikið er víst, að þessi orð hans lifðu i hugum félaga lians og í minni þeirra, sem björguðust úr „Atahualpa“-slysinu. Fyrir utan lítið sjávarþorp á strönd Mexíkó, rétt á enda leiðarinnar, flaug dallurinn í lofl upp. Sjö af tuttugu og þriggja manna áhöfn var bjargað, þar á meðal Mac Nam- ara. Nú var Mac Namara orðinn frægur. Þessi einstaka heppni hans þótti ekki einleikin, og fólk var sannfært um, að æðri máttarvöld héldu yfir honum verndarhendi. Héðan í frá var hann ekki kallaður annað en ódauðlegi Mac. En frægðin er ekki alltaf til góðs — og sizt af öllu slík frægð. Það komst Mac Namara því miður að raun um, því að i hvert skipti, sem hann réði sig á skip, gerðu hinir skip- verjarnir uppreist og kváðust livergi fara með þessum manni. „Hann er hættulegur“, sögðu hjátrúarfullu sjómennirnir, — „það fylgir honum ógæfa, sem lendir á félögum lians, og þeir deyja.“ Orð þessara gömlu og reyndu sjómanna liöfðu sin á- hrif og þau stóðu Mac Namara fyrir þrifum, því hann fékk ekki atvinnu. Þegar ódauðlegi Mac var fullur, og það kom oft fyrir, þá stærði Iiann sig af ódauð- leika sínum og sagði, að sjór- inn gæti ekki gert sér neitt mein. „Eg skora dauðann á hólm, og skora á hann að koma ef hann getur og ef hann þor- ir.“ Um leið rak hann upp hvellan hæðnishlátur, drakk til hotns úr glasinu og slöngvaði því niður í gólfið, svo að það lirotnaði í þúsund mola. Eflir mikið stapp og langa árangurslausa leit eftir at- vinnu komst Iiann að lokum á amerískt flutningaskip. Helm- ingur áhafnarinnar voru negr- ar, en lritt voru Englendingar, Bandaríkjamenn og Skandí- navar. Það leið ekki á löngu unz Mac byrjaði að stæra sig af ó- dauðleik sínum og innan fárra daga var öll skipshöfnin búin að frétta af æfinlýrum hans. Þetta hafði sín áhrif, einkum á negrana, sem voru úr hófi hjátrúarfullir. Þeir tóku sam- an ráð sín og þeim kom sam- an um, að einasta leiðin til að bjarga sjálfum sér og skipiuu væri það; að losa sig við þann „ódauðlega". Eina örugga ráðið var að fleygja honum fyrir borð. En dagaruir liðu hver á fætur öðr- um og tækifæri til manndráps buðust ekki nein. En svo var það eina nótt, er ski^iið var ekki Iangt undan ströndinni, að Mac Namara stóð vörð frammi á skipinu. Myrkurs- þoka var á og þetta var hið ágætasta tækifæri fyrir negr- ana að losa sig við þennan ó- lieillagrip. Þeir læddust aftan að honum, réðust á hann og fleygðu honum út fyrir borð- stokkinn. Engin neyðaróp heyrðust og enginn hvitur mað- ur var sjónarvottur að þessu fantabragði svertingjanna. — Mac Namara var ekki saknað fyrr en löngu síðar, er vakta- skipti urðu. Skipinu var strax snúið við og siglt eina mílu til baka, en þegar mannsins varð ekki vart á þeirri leið, var gef- in upp öll von um að takast mætli að bjarga lífi lians, og skipinu snúið við. Loksins var Mac Namara að fullu.og öllú dauður. Og þó gátu félagar hans naumast trú- að því, vegna þeirrar atvilca- keðju, sem á undan var geng- in. Þeir trúðu því, eins og Mac Namara sjálfur, að liann væri ódauðlegur — og gátu alls ekki sætt sig' við að trú þeirra væri brotin þannig á bak aftur í einni svipan og án noklcurs að- draganda. Um skipstjórann var nokkuð öðru máli að gegna. Hann varð að láta staðreyndirnar tala og mátti ekki láta hjátrú né til- finningar ráða gerðum sínum. Hann skrifaði inn í skipsdag- bókina, að Mac Namara liáseti hefði á tilteknum degi, á til- tekinni klukkustund og tiltek- inni breiddargráðu fallið út- byrðis, hans liefði verið leitað, en ekki fundizt. Orsakir til þessa skyndilega hvarfs væru ókunnar og því ekki hægt að álykta annað en að sökin væri hásetans sjálfs. Eftir Werner Granville Schmidt

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.