Vísir Sunnudagsblað - 18.05.1941, Síða 1

Vísir Sunnudagsblað - 18.05.1941, Síða 1
1941 Sunnudaginn 18. maí 20. blað Guðmundur Einarsson, frá Miðdal: HVÍTIR PÁSKAR. Fjallamenn kveðja veturinn með hópferð um suðurjökl- ana. Milli Mýrdals- og Eyjafjalla- jökuls stendur skáli „Fjalla- manna“ á Fimmvörðuhálsi í 1100 metra liæð. Þarna er para- dís skíðafólks, ódáinsakur sesk- unnar. Við ætlum að dvelja þar páskavikuna. Þátttakendumir eru úrvalslið ýmsra iþróttafé- laga höfuðstaðarins - skemmti- legt fólk. Við köstum farangrinum út úr bílnum á grundinni við Skóga: Malpokum, sleðum, tjöldum, húðfötum, rekum, skíðum og hátíðamat fyrir fjölda manns: Hangikjöt, bauti og sigin ýsa. Að Skógum er okk- ur tekið tveim höndum og þar bíður Magnús á Steinum með hestana til að flvtja okkur upp á jökulinn. Við þrömmum upp heiðar- brúnirnar brattar og fölvar eftir fang vetrarins. Eg gleðst yfir félögunum og ferðalaginu, því þetta er einvalalið. Skógaheiðin er auð og þur, fyrstu veiði- bjöllurnar eru þegar farnar að svipast þar um eftir varpstöð- um. Við þræðum hryggina milli Skógár og Kvernugils, tærar bergvatnsár falla þar í fögrum gljúfrum með fossum og brött- um flúðum. Vorið hefir farið höndum um heiðina, en við liöldum hærra upp á móti. Við bláan bimininn rísa jöklamir livítir og hreinir sem brúðarlín, í 900 metra hæð tekur snjórinn við. Urðarsvelgirnir við jökul- röndina skjóta kryppunum upp úr hjarninu, á efsta geirann, þar sem vötn falla til norðurs og suðurs, blasa við 5 vörður á söðulmynduðum hálsi. Þar stendur skálinn okkar og ber við himin. Hið efra er hjarn og efst á hvolfþökum jöklanna rjúkandi mjöll. Á móts við Hvítmögur spennum við á okk- ur skiðin, hestarnir horftf á okk- ur kringlóttum undrunaraug- um, við kveðjum bvggðina eins. ...X?.. ..;..ó.... fcr Skáli Fjallamanna á Fimmvörðuhálsi. og tröll Frödings með nokkur- um trega: „Pá fjellets vidd, der er storm snor, der er ödsligt, tomt ocli kalt.“ — en i liugan- um leynist æfintýraleg þrá er lreimtar „hvíta páska“. Skálinn olckar er hlaðinn snjó og ís, brátt er eldur á arni og hlýir feldir á setstokkum — ys og þys í ríki jöklanna — ljós í gluggum. I ríki jöklanna er kyrrð og ró. Það er næstum því hægt að gleyma ófremdarástandi og kraðaki þessarar vandræðaald- ar, því ekkert rýfur þögnina. Jazz, simi, bílaöskur og póli- tískt nudd er þagnað, en við okkur blasir drifhvít veröld — flughálar skiðabreklcur og frjálst líf. — Og dagarnir líða, ýmist glitrandi af sól og blíðu eða gráir af hrímþoku og kaf- aldi. Við byggjum snjóborgir, æfum svig og förum í göngur. Á kvöldin er hlýtt og notalegt í skálanum, þótt veðurhljóð ymji í brúnum Heljarkambs. Um bænadagana bætist fjöldi fólks í hópinn. I skálanum er setinn bekkurinn — almenn flatsæng — en í snjóhúsum logar nú á kertum; til að sjá eru þau eins og maurildi, því snjó- kögglamir eru ljósgrænir og gegnsæir að sjá utan frá. Tjöld eru reist og hlaðnir um þau þéttir veggir, til skjóls. — Á Fimmvörðuhálsi er sungið og kveðið, þar er Drífa Viðar með gítarinn sinn, og slangur úr ýxnsum kórum höfuðborgar- innar. í hlíðinni sunnan við skálann liafa skátar reist tjaldbúðir og snjóhús, en breklcan er sVo brött, að fæstir okkar leggja í liana, nema þegar þokuslæðing- ur er við brúnina. Á 5. degi er fólkið farið að litkast af útiverunni — orðið útitekið, eins og Ólafur Frið- i’iksson ritstj. ségir. Hann benti mér eitt sinn á að oi’ðið sól- brenndur sé norska, og mun það rétt. Það fólkið, sem bezt notar liáfjallasólina gengur bert að bellisstað, þegar logn er. Hauk- ur bróðir og Guðmundur Sig- mundsson eru orðnir eirbrúnir. Við suðui’brún Goðasteins, efst á Eyjafjallajökli er 20—30 stiga biti, þegar sólin skín, þótt fi’ost og kuldi sé norðanvert við liann i skugganum. Við njótum útsýnis um allt miðbilc lands- ins, jafnvel smáfell á Kili sjást greinilega, og þeir sem bezt vita segja nöfn á fjöllum og greina öx’nefni, „því fjöllin væru lílils virði, ef þau hétu ekki neitt“, segir Tómas frændi. Einn daginn göngum við á Mýrdalsjökul; það er 5—6 tima ganga frá skálanum, göngufær- ið er ágætt og skriður á fólkinu, eitt sinn var talað um að skríða á skíðunum. „Finnur (Finn- lendingur) skriður -fui’a vex, stendur honum byr beinn und báða vængi.“ Þegar íslendingar töpuðu flxxginxx og frelsinu fyi’X’unx, þá umhverfðist merk- ing þessai-ar fögru sagnar. Nú tölunx við uixx kappgöngu á skíðum í stað skriðgöngu — skriðkeppni. Valur flýgur vor- langan dag, — svo mörg eru þau orð. En hvort sem við nú göngum eða skríð- um upp Mýi'dalsjökul, þá er skemmtilegt að sjá skíðafólkið bugða sig upp á milli sprungu- beltanna á hájöklinum. Mýr- dalsjökull er ganxall skjaldgíg- Snjóborg og tjald nxeð skjólgörðum. „Þriggja herbergja íbúð með öllurn þæg- indum“.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.