Vísir Sunnudagsblað - 02.11.1941, Blaðsíða 1
wmm^
1941
Sunnudaginn 2. nóvember
44. blað
Bjarni Jdiisson vígglnfoigknp 6Q ára
Prestar eiga að gráta
99
íi
með grátendum - -
og fagna með fagnendum
--¦ m -¦ ¦ ¦.*.*¦¦ rj
Þann 21. okt. átti einn af kunnustu og vinsælustu borgurum Reykjavíkurbæjar sextugsafmæli. Það var síra Bjarni Jónsson vígslu-
biskup. Síra Bjarni hefir verið þjónandi prestur við dómkirkjusöfnuðinn í Reykjavík um 30 ára skeið, og sennilega þekkir hann
fleiri íbúa þessa bæjar en nokkur einn maður annar. Hann hefir komið í fleiri hús höfuðstaðarins og á fleiri heimili, en nokkur ann-
ar embættismaður þessa lands, og prestverkin, sem hann hefir innt af hendi, eru legíó. — Síra Bjarni er borinn Reykvíkingur,
faðir hans og móðir voru Reykvíkingar, afi hans og amma voru fæddir Reykvíkingar, svo það má segja um hann, að ef nokkur
maður er Reykvíkingur í húð og hár, þá er það síra Bjarni. Hann er fæddur í Mýrarholti í Vesturhænum, sonur Jóns Oddssonar
tómthúsmanns og konu hans, ólafar Hafliðadóttur, en þau eru komin af svokölluðum Kjósar- og Engeyjarættum. ÞaS var heit-
asta ósk móður síra Bjarna, að hann yrði prestur, og sá hún ósk sína rætast.
Vísir fór þess á Ieit við síra
Bjarna Jónsson vigslubiskup,
að hann segði lesendum Sunnu-
dagsblaðsins eitthvað frá ævi
sinni, frá ýmsu því, sem hann
teldi mikilvægast við lifsstarf
siít, og varð síra Bjarni góðfús-
lega við þeirri bón. Tiðindamað-
ur Vísis sótti hann því einn góð-
an veðurdag heim — í hrak-
smánarveðri reyndar — að ný-
afstöðnu afmælinu.
Það mátti svo að orði komast,
að ekki væri hægt að þverfóta
fyrir blómum á heimili sira
Bjarna — öll herbergi voru full,
allt frá eldhúsinu og inn i svefn-
herbergi, og afmælisbarnið
sagði, að ef hann væri ekki jafn
blómelskur, myndi hann senni-
lega haf a sett upp blómaverzlun.
Inni á skrifstofunni er ekki
aðeins allt fullt af blómum —
og bókum, heldur var borðið
þakið heillaóskaskeytum og
kveðjum og þar var heiðurs-
doktors-dokumentið frá Há-
skóla íslands. Á veggjim-
um hanga myndir af fjölda
manna. „Það eru kunningjar
mínir og vinir, samstarfsmenn
mínir og andlegir leiðtogar,"
segir síra Bjarni. „Það eru
menn, sem eg á Iífsviðhorf og
lífsstarf mitt að miklu leyti að
þakka." j
„Þarna þekkið þér dr. tlieol.
Jón Helgason fyrverandi bisk-
up," og um leiðir bendir síra
Bjarni á mynd af honum á
veggnum. „Hann var kennari
minn frá því eg var i barnaskóla.
Eg sótti af mikilli árvekni
barnaguðsþjónustur, sem hann
hélt hér í bænum, fyrst eftir að
hann kom hingað til lands, þá
nýorðinn kandidat í guðfræði.
Höfðu þessar guðsþjónustur
mikil áhrif á mig, og þá má eg
heldur ekki gleyma kennistarfi
síra Friðriks Friðrikssonar. Það
er maður sem töfraði mig frá
því eg kynntist honum-fyrst, og
eg er undir áhrifum fcá honum
enn i dag.
Þriðji kennari minn frá
æskuárunum var stea Jóhann
Þorkelsson dómkirkjuprestur.
Hann femdi mig, þegar eg var
14 ára, 14 árum síðar vígðist eg
til iJrests, og i 14 ár starfaði eg
með honum við dómkirkju-
söfnuðinn. Þegar eg gekk til
spurninga til síra Jóhanns,
grunaði mig ekki, að eg ætti ef t-
ir að verða samstarfsmaður
hans."
„Segið þér mér, síra Bjarni,
hvaða menn eru það, sem hanga
þarna á veggnum umhverfis dr.
Jón Helgason?"
„Það er í einu orði sagt annar
kapituli úr lífi mínu. Þetta eru
menn, er eg kynntist á stúdents-
árum mínum, en stúdent varð
eg 1902, og á fræðslu þeirra lifi
eg enn i dag.
Þarna sjáið þér til dæmis P.
Madsen próf. Eg eigriast i hvert
sinn festu er eg minnist hans.
Bjarni Jónsson
vígslubiskup.
Þarna er lika Fenger prófastur,
einn hinn mesti starfsmáður
dönsku kirkjunnar og dæma-
fár mælskumaður. Þá er
Bachevold prestur á Lá-
landi. Á heimili hans dvaldi
eg í jólaleyfum og sumarleyfum,
og á þaðan hinar yndislegustu
minningar um hið blómlegasta
safnaðarlíf. Að honum látnum
var gefin út bók um hann, og
þótti mér vænt um, að mér var
skrifað og eg beðinn að skrifa
einn kapitulann í þeirri bók.
Síðast en ekki síst vil eg
minnast á Olfert Bicard.Eg held,
að enginn erlendur maður hafi
r jafn rikum mæli mótaðprests-
starf mitt sem hann. Eg tel mig
lánsmann, að hafa verið í kynni
við hann, þenna alkunna pré-
dikara og æskulýðsleiðtoga, fná
fyrsta degi er eg kom til Kaup-
mannahafnar, og þar til hann