Vísir Sunnudagsblað - 19.04.1942, Blaðsíða 3

Vísir Sunnudagsblað - 19.04.1942, Blaðsíða 3
VÍSIR SUNNUÐAGSBLAÐ 3 Theódor iruason: Fyrír þrjátíu árum Þáttur úr tónlistarsögu Reykjavíkur, Það kann að láta kynlega í eyrum, að haltla því fram, að einu sinni hafi veitingasalirnir á Hótel ísland verið menningar- stofnun. Um þessi salakynni, og Jk') einkum stóra salinn, er mönnum að sjálfsögðu minnis- stæðust ófremdin, sem þar hefir ríkt undanfarin ár, og farið var að votta verulega fyrir löngu áður en „ástandinu“ var til að dreifa. Og það er eins og að nú- verandi eiganda Jiessara sala- kynna liafi rámað í, að hálfgerð skömm væri að allri „útgerð- inni“ á stóra salnum, þvi að sjálfur nefndi liann salinn „Fær- eyinga-sal“, sem menn skildu að ætti að vera í óvirðingarskyni, — ja, við gestina, sem Jiangað sóttu, líklega? Þetta var þó illa til fundið, og móðgun við Fær- eyinga, — og hefði verið nær að nefna salinn „sal hinna livítu skrælingja“, — og gefa tekjurn- ar af honum til byggingar tón- listarhallar í Reykjavík, í minningu um ])að, að einu sinni var tónlist í hávegum liöfð í J)cssum sölum. Það er ekki svo að skilja, að ekki liafi verið sukksamt áður á „Landi“. En J)að var „í gamla daga“. Þá var þar „pumpan“ — og ýmsar vistarverur, æðri og óæðri, ])ar sem Bakkusi var blótað. Góðtemplurum var J)essi ráðsmennska með húsakynnin þyrnir í augum, og vildu þeir svæla Bakkus út, keyptu eign- ina og hugðust að starfrækja liana brennivínslaust. Tóku þeir við henni 1. jan. 1907, og gekk eins og aðrir, harn síns líma, en hún var uppi, sem fyrr var gel- ið, á liinni verstu skegg- og skálmöld. Hún nam eigi slaðar á ])eirri braut, sem hún nú var komin úl á, heldur framdi glæp þann, sem ekkert fær afsakað. Hún byrlaði elskhuga sinum eitur, en er liáhn dralck úr bikar þeim, er hún rétti honum, kviknaði illur bevgur í brjósti hans, og knúði hann hana ti! þess að drekka J)að, sem eftir var i hikarnum, og dóu þau bæði lcvaladauða, Rósamunda drottning og hinn vaski riddari Hehniakis. F. M A T A N 1 A Lauslega þýtt lír ensku síðan á ýmsu um reksturinn. Gekk illa að láta veitingasalina bera sig, eftir að hætt var að selja þar bjór og brennivín. Ekki kemur sú saga því máli við, sem liér verður gert að umtalsefni, að öðru leyti en því, að ])egar illa liafði gengið um hríð reksturinn, var Pétur Þ. J. Gunnarsson, stórkaupmaður, — sem ])á var ungur maður og hugvitssamur, — fenginn til að taka að sér framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Reynt hafði verið, að liafa „músik“ í salnum í kaffitíma síðdegis og á kvöldin, og jafnvel til fengnir liðlétting- ar frá útlöndum að þenja þar hljóðfæri. En ekkert dugði. Mun Pétur hafa séð, að ef vel átti að vera, þurfti lielzt að ganga alveg fram af okkur, sem vorum „públikum“. — „Þá er að gera J)að!“ sagði Pétur og brá sér til útlanda. Kom hann heim úr þeirri för ærið íbygg- inn og í fylgd með honum mað- ur einn ungur, mikill á velli, glæsilegur og geðslegur i alla staði. Og næsta dag var auglýst í blöðunum, að þá um kvöldið og framvegis, myndi Oscar .To- hansen, ágætur fiðluleikari danskur, láta til sin heyra með aðstoð frk.Kristrúnar Hallgríms- son, i veitingasölnnum á Hótel ísland. Og ])að var ekki fjærri ])ví, að Pétur gengi nú fram af fólkinu, því að mönnum þótti það undruni sæta, að honum skyldi liafa tekizt, að fá hingað svo snjallan fiðluleikara. Nú voru salirnir troðfullir af gest- um á hverju kvöldi um langt skeið, eða svo að segja allan tímann sem Johansen var hér. Johansen þessi var rösklega . tvitugur maður og hafði hlotið prýðilegt músik-uppeldi frá barnæsku, — en siðustu fágun hafði hann fengið á kgl. tónlist- arskólanum í Khöfn, — hafði lokið námi þar röskum tveim árum áður en hann kom hingað, en síðan verið í Svíþjóð um sinn, haldið þar opinbera hljóm- leika bæði í Gautaborg og Stokkhólmi (og átti þaðan lár- viðarsveiga) og einn vetur hafði liann leikið i hljómsveit „Göte- borg Theatern“. Mun hann hafa verið nýkominn til Hafnar, þeg- ar Pétur Gunnarsson klófesti liann, og verið að svipast um ef tir atvinnu þar, eh Pétur boðið girnileg kjör. Eitt atriði i samningi hans við P. G. var það, að Johansen áskildi sér rétt til að halda op- inbera hljómleika, sjálfum sér til hagnaðar, einu sinni i mán- nði. Notaði hann sér þetta að minnsta kosti fyrri veturinn, sem hann dvaldi hér og efndi til hljómleika bæði í „Iðnó“ og „Bárunni“, þar sem okkur heimaalningunum gafst í fyrsta sinn kostur á að heyra ýmislegt af því sem fegurst er talið af fiðlutónsmíðum, t. d. Mendels- sohns-konsertinn, Kreutzer- og Vorsónötuna og ýmsar aðrar sónötur Beethovens og Mozarts, ýmsar tónsmíðar Wieniawskis, ÖSCAR JOHANSEN o. fl. o. fl. og jafnvel Paganini- tónsmíðar, og allt í ágætri og vandvirknislegri meðferð. Það, sem hann lék í veitingasalnum, var svo að segja eingöngu vönd- uð músik, en eftir hverja hljóm- leika var auðsótt að fá að heyra þar hinar stærri og veigameiri tónsmíðar, sem hann hafði far- ið með á hljómleikunum. Nú varð virðulegt yfirbragð yfir J)essum sölum. Menn sóttu þang- að til að hlýða á góða músik. — Johansen var svo skemmti- legur og lifandi fiðlari, að lion- um var ])að leikur einn að ná tökum á áheyrendum, og oft var svo hljótt í sölunum, að undrum sætti, — því að þetta var þó veitingastaður, — en þar heyrðist hvorki stunur né hósti. Og þjónustufólkið hafði sínar fyrirskipanir: Það varð að gæta itrustu varkárni um að láta ekki heyrast nokkurn hávaða eða diskaskrölt við afgreiðsluna, og ])jónarnir læddust um gólfin hljóðlega, alvarlegir á svip og fyrirmannlegir, — því að þeir voru oflast menn útlendir, — cn gestirnir hvísluðu að þeim pöntunum sínum. Eg ætla ekki að fjölyrða um þetla. Pétur Gunnarsson á þakkir skilið fyrir þetla tilvik, því að þólt fyrir honum vekti það auðvitað fyrsl og fremst, að fyrirtækið hagnaðist á þessu, ])á réyndisl það lika mikill á- vinningur mörgum öðrum, frá sjónarmiði ' lónlistar, — fyrir mér og inörgum öðrum opnuð- ust dýrðarheimar, sein við þekktum aðeins af afspurn, og óteljandi eru þeir menn og kon- ur, sem minnast ánægjulegra stunda i sölunum á Hótel ísland, þegar Johansen var í „essinu“ sínu. Þetta var í fyrsta skipti, — og raunar er þetta eina tíma- bilið, allt til þessa dags, — sem þess hefir verið kostur að njóta, Sitjaudi (frá v. til h.) : Carl Möller, Theodór Arnason, Oscar J.ohausen, Jónas Magnússon og Gísli Guömundsson.. Standandi: P. O. Bernburg, Jón ívarsson, Agúst Markússon, 'þorfi Sigtnundsson, Eiríkur Hjalte- sted og Stefrán Gunnarsson.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.