Vísir Sunnudagsblað - 03.10.1943, Síða 2

Vísir Sunnudagsblað - 03.10.1943, Síða 2
2 VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ ír a^kiiitiiiiiiiii^eiin: í TJALDSTAÐ. Tún var alhirt nema útskæí'- ur. Taðan var mikil og góð, komin græn og óhrakin i hlöðu og húið að halda töðugjöldin, mjólkurgrautur með rjóma út á og kaffi og lumniur á eftir. Svo var frí fyrir fólkið frá nóni til kvölds, nema að taka sig sam- an undir niorgundaginn, en þá uni mörguninn átti að flytja engjafólkið upp i Iválfadal og hef ja viðleguna. Tjald og súlur var nú tekið frarn og athugað, hrífur lindað- ar, ljáir dregnir á stein, ný brýni tekin fram, reipi bætt og reið- ingar athugaðir. Þá var nú að hugsa um næringu engjafólks- ins. Smjöröskjurnar teknar fram, hvers og eins, með út- deildu sauðasmjöri. Steinbítur, þorskliausar og brauð, og eigi mátti heldur gleyma slcyrhrær- unni eða sýrunni úr brennivíns- tumiunni, sem. gaf svo einlienni- lega goft J)ragð af blöndunni, með vatni úr tærri fjallalindinni. Og lóks var það hvérfisteinninn méð tilheyrandi. Sólin var hnigin á bak við Frakkadalinn og blár kvöld- skugginn lá í hliðinni, og tindar og fjállaskörð teygðu sig yfir á fjörðinn, en kvöldsólin gyllti ennþá vikur og voga hinsvegar Íjárðalins, og það var sern roða s.ægi á hæð og laut á ströndinni, eins og hún væri feimin við hinzlu kveðju dagsins. Vaðal- fjöll'n stóðu þarna tigin og glæsl og báru við blátt heiðið og litu niður á sveitina, en beindu þó aðallega sjón um órafjarlægðir liálendisins víðsvegar, Daginn eflir var þykkt Ioft og hægviðri. Engjafólkið var snemma á fótum með orf og hrífur, en hross og annar út- ur, mikill, aftur og aftur, þang- að til eg var orðinn alveg ör- magna og lagðist útaf og sofn- aði, eins og í gamla daga, að öðru leyti en þvi, að eg vaknaði ekki aftur. Eg fannst þárna morguninn eftir í blóði mínu, dáinn — á bersvæði, þvi að þarna var eng- inn garður lengur, enginn mó- kofi, hann var fyrir löngu rifinn, ekltert, nema gatnamót. Mér finnst þetta vera saga. Hvað segir þú um það? Eftir Gudjón Jónsson búnaður skyldi koma síðar. Héldum við nú sem leið lá upp í Kálfadal. Er það fjalldalur, vel grösugur. Samfelldust er þó slægjan neðst, og þar var venja að tjalda við skeifumyndaðan hól sem Tjaldhóll hét. Var hann 1 boga fyrir norðrinu og vall- lendisgrund á milli. Er þarna ágætis tjaldstæði og lieimalegt, er hinn hvíti bær reis af grunni, og fólkið að vinnu á breiðunni fyrir neðan. Piltarnir felldu fjallastörina og snjóhvít fífan, hrein sem mjöllin, hneig til jarð- ar fyrir sigð sláttumánnsins. Við lcöstum nú mæðinni. Þok- an sveif um fell og brúnir hið efra, og fjallféð dreifði sér viðs- vegar, búslið og frjálslegt og horfði forvitið á þessa óboðnu gesti neðan úr byggð, en sætti sig þó fljótt við nærveru okkar, er það sá að við létum okkur ekki varða um þess hag. Hinsvegar við ána var fólkið frá næsla bæ að heyverki, og bjarti bærinn þess stóð við tæra lind í Iiliðinni mót austri. Þar voru sátur á víð og dreif, sem biðu þess að Iirossin kæmu. Fór- um við nú að hugsa til hreyfings og fengum. okkur nú góðan blett, svo að sem fyrst væri hægt að drifa upp á fyrstu ferðina, og slógum af kappi um stund; og stúlkurnar rökiiðu „styttar í slæju að knjám“. En þarna komu þá hrossin. Og upp á þau bundum við í snatri og vorum búnir að láta upp á okkar hross, þegar þeir hinsvegar í dalnum fengu sín hross inn á dalinn. Þótti okkur nú vel hafa skipazt, er okkar ferð var komin heim á leið. Fólkið frá Þórisstöðum voru 2 karlmenn og ein stúlka, auk drengs, sem fór á milli, en við vdrum fjögur, auk lestardrengs- ins. Um kvöldið var búið að reiða heim hjá okkur 20 hest- burði, en 16 lijá þeim hinsveg- ar við ána, og þótti þetta sæm.i- legur heyskapur. Ekki er þess að dyljast, að nokkurs metnað- ar og kapps gætti milli fólksins á bæjunum, einkum í svona ná- býli, þegar hver sá annars hand- tök jafn gerla og hér. Þegar síðasta lestin var farin heim á leið, var farið að reisa tjaldið við hólinn, hey látið í það til mýktar, og hærra út við skörina. Var nú búizt um eftir föngum, hverfisteinninn settur niður. hlóðir byggðar undir kaffiketilinn o. s. frv., svo þarna var nú orðið heimalegt. Síðan var setzt að kvöldverði, fiski, brauði, smjöri, skyrhræru og mjólk, rabbað saman um við- burði dagsins, og unga fólkið, sem væri farið að gefa hvert öðru hýrt auga. Haft var á oiði að annar maðurinn hinsvegar við ána hefði þegar fellt ást til kaupakonunnar, sem Valgerður hét, og varð hljóðbært og lét þá ekk'i hagyrðingurinn á sér standa: Er Valgerður yfrið ferðug kona til vinnu ei smá og vel þrifin vist með knáa dugnaðinn. Ög víst var um það, að þetta var efnisstúlka á marga lund, en þó ekki nein skýjadís, að okkur fannst. Sváfum við nú af um nóttina, en heldur svaf maður laust fyrstu næturnar eftir rúmin heima. En maður vandist þessu fljótt við tært fjallaloft- ið og hinn safaríka gróðurihn, sem maður andaði að sér dag og nótt. Næsta morgun rann sólin upp yfir hæðunum í austri, en við vorum enn í skugganum. Kaffi- reykirnir stigu upp í loftið, með- an við lögðum á ljáhia og tind- uðum hrifurnar fyrir stúlkurn- ar; drukkum síðan kaffið og gengum út á teiginn. Var þá fólkið handan farið -að slá og sólin þegar farin að ylja því. Gengum, við þegar til verks, og nú var um að gera að liafa til hey í ferðina, er meðferðar- maðurinn kæmi. Og innan skamms kom hann og sagði sín- ar farir ekki sléttar, því i gær- kvöldi hafði slitnað sili, og hann ek'ki getað látið upp, og nú yrð- um við að hjálpa sér að láta upp á hrossið. Þctta þótti okkur súrt i broti, en varð þó svo að vera, þó langt væri að fara. Hann færði okkur m.jólkur- kútinn, sokka, hlifar og annað, sem okkur þótti betra að liafa en án að vera. Létum við hann færa þetta í tjaldstað, meðan við girtum á hrossunum, með því að hann vildi fá að sjá livíta bæinn okkar, sem risið hafði upp i gærkveldi, eftir að hann fór heim. Leizt honum vel á hann og kvaðst öfunda okkur af þvi, að mega sofa í svona fögrum bæ um sumarnótt, og vildi nú æfur og uppvægur sofa í nótt i tjaldinu. Sagði hann okkur það, sem hanií k'omst á snoðir um í firð- inum og liáttum fólksins lieima á bænum, þvi nú vorum, við orð- in útilegumenn, rétt á borð við fjallaféð. Bara var sá munur- inn, að það beit grasið, en við slógum það og bundum lieim handa því í vetur. .. Við höfðum góðar gætur á því, hvenær póstur átti að koma frá Bæ, því þá var von á Þjóðólfi, og pabbi var svo liugulsamur að senda okkur hann, ef svo bar undir, og þótti okkur mikill fengur í því. Þá var ekki sími eða útvarp í sveitum, og lítið um gestakomur, því gagnstím- ann þurfti að nota vel, og þótti illa farið með timann, að vera á sífelldu flandri þá. Stundum kom fóllcið frá Þór- isstöðum. yfir ána eftir vinnú ái kvöldin og rabbaði við okkur um stund, og við til þess aftur á móti. Þessu hafði fólkið gam- an af, að kynnast á víxl, ef ske kynni að eitthvað bæri til tíð- inda, fremur á öðrum bænum en hinum, og þá úr sveitinni um leið, um unga fólkið, sem var þá að draga sig saman, eða má- ske liafði þá þegar verið lýst með þvi á sunnudaginn. Um unga manninn, sem keypti sér góðhestinn, til þess að geta boð- ið kærustunni í reiðtúr um lielg- ina.o. s. frv. —r Svo var þá tjald- gestunum boðið að borða bláber og mjólk, sem manni var fært að heiman, til sælgætis engja- fólkinu í útilegunni. Svo var sungið við raust: „En ef eg þar fyndi æskuprúðan svein.“ Blandaður kór, karla og kvenna, ]iví enginn mátti draga sig i hlé, heldur ganga gleðinni á hönd óþvingað, enda var fólki léttara uni söng þá en nú í sveit- unum, því hann var æfður meir i heimahúsum þar en nú er orðið, síðan húslestrar lögð- ust niður að mestu. Svo litum við á slægjurnar hver hjá öðr- um, til þess að geta betur met- ið hvort það væri fremur góð slægja, eða dugnaður, ef liærri var hestatalan um vikuna, eða vegna fleira fólks. Var því mjög veitt eftirtekt, ef eitt heimili var framar um öfiun heyjanna en önnur. Þótti ungum mönnum mikil fremd að því, að fá þannig orð á sig. Það var sem nokkurs- konar uppbót á hið lága kaup, sem menn báru þá úr býturn. Trú og dygg hjú voru þá mikils virt og vel látin, en báru viða of lítið frá borði. Heldur var litið niður á þá menn, eða bænd- ur, sem héldu sig illa að vinnu

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.