Vísir Sunnudagsblað - 20.02.1944, Blaðsíða 3

Vísir Sunnudagsblað - 20.02.1944, Blaðsíða 3
VÍSJLR. SUNNUDAGrStíLAÐ 3 Um samskotin og ferð Eiriks urðu mikil skrif, jafnvel reynt að sverta bann fyrir afskipti hans af málinu. En það fór á þann veg, að þessi skrif náðu ekki tilgangi sínum. Sá eini árangur varð af þvi fargani, að enska samskota- nefndin hætti störfum og sam- skotasjóðnum var lokað. Hafði nefndin ætlað að senda fleiri skipsfarma til íslands, en hætti við það og afhenti líknarnefnd- inni í Kaupmannahöfn eftir- stöðvar sjóðsins, 760 pund. Alls námu gjafirnar rúmum 5570 pundum. Þann 12. jan. 1883 gerði stjórnin Eirík að riddara af Dannehrog fyrir atorku lians, ósérplægni og drenglyndi i vandræðamáli þjóðarinnar. Það var hennar opinbera svar gegn þeim, sem unnu að þvi að ó- frægja hann og rógbera. Borðeyrarfundurinn. Um slcipting gjafavörunnar yfirleitt .þekki eg ekki, því eins og sakir standa eru handritasöfn Landshókasafnsins ekki liér í Reykjavík. Líkur eru til, að eitt- hvað hafi komizt inn í þau frá sýslunum, en þótt svo sé, verð- ur það ekki lagt til grundvallar fyrir frásögnum þessum, og þvi aðeins stuðzst við fornar frá- sagnir. Sú frásögn frá Borðeyrar- fundinum, er eg heyrði i æsku, var meðal annars sú, að hann liefði verið fjölmennur, er staf- aði af því, að varan, sem lögð var þar upp, var bæði mikil og átti að skiplast á stórt svæði. Ennfremur lieyrði eg, að ýmsar skoðanir liefðu verið uppi um það, eftir hvaða mælikvarða bæri að skipta vörunni á milli hreppanna, en þrátt fyrir skoð- anamun hefðu skiptin komizt á og verið undirrituð af viðstödd- um fulltrúum. Eftir líkum að dæina hefir vara sú, er setl var á land á Borðevri, átt að skiptast í Dalasýslu, Strandasýslu og báðar [Húnavatnssýslur, — sem á þeim tíma var ein sýsla. Um 1890 heyrði eg sagt frá því, að Jóscxj Einarsson, bóndi á Hjalla- Jósep á Hjallalandi. landi, liefði sótt fundinn i það minnsta fyrir Sveinsstaða- og Ashrepp. Hann var gildur bóndi, atkvæðamikill og drengur góð- ur. — Eftir þeim frásögnum, er eg heyrði, átti Borðeyrarfundurinn að hafa verið snemma i desem- her, og að skiptin á milli hrepp- anna hafi verið byggð á skýrsl- um um efnahag hreppanna og tjón af völdum harðindanna. Fundurinn á Undirfelli I Vatnsdal. Eins og tekið er fram í byrj- un, er frásögnin af fundi þess- um tekin eftir Jóni sál. Jónssyni lækni, og er henni að öllu leyti fylgt, og var hún á þessa leið: Fundurinn var fyrrihluta vetr- ar, — eg man ekki á hvaða tíma, en mjög var hann fjölsóttur, — nálega allir bændur í dalnum. Þess utan mætti Jósep á Hjalla- landi á lionum, og mig minnir einhverjir fleiri, er voru á Borð- eyrarfundinum. Tilefni fundar- ins var að skipta gjafavöru þeirri, er skipt hafði verið í hrep])inn, á heimilin. Strax í fundarbyrjun komu fram tvær stefnur í málinu. Önnur, að skipta eftir skepnutölu; þeirri stefnu fylgdu efnabændurnir og nokkrir aðrir. En hin, að skipta eftir cfnahag og ástæðum manna. Þeirri stefnu fylgdu þeir Lárus Blöndal sýslumaður og Hjörleifur prófastur Einarsson. |Út af þessum skoðanamun varð langt þras og allheitar deilur. I umsögn sinni um málið höfðu þeir sýslumaður og pró- faslur haldið fram, að yfirleitt væri mun betri ástæður með fóður í Vatnsdal, en í hinum sveitunum mörgum. í Vatnsdal hafði bæði verið betri sxjretta og nýting, t. d. töður hirtar um höfuðdag, og annað, að mest- ur heyskapurinn hefði orðið á heztu heyskaparjörðunum, en á þeim flestum hyggju mestu efnamenn, er vafasamt væri að ættu nokkurn rétt til gjafanna, enda hefðu hetri aðstöðu að afla sér fóðurs en bláfátækir fjölskyldumenn. En hinsvegar, að ef skipt yrði eftir skepnutölu, Lárus Blöndal. fengju þeir mest, er rikastir væru. Eftir langt þras og deilur um hvernig skipta ætti, voru þessar umþráttuðu tillögur bornar upp til samþykkta. Varð sú tillaga ofan á, að skipting færi fram eftir skepnutölu á fóðri. Þessari niðurstöðu hafði síra [Hjörleifur reiðzt mjög mikið. IJafði liann risið úr sæti sínu og sagt, að þetla væri að misnota drenglyndi hinnar hrezku þjóð- ar, þeirrar þjóðar, sem hefði rétt bróðurhönd yfir hafið snauðu fólki og þurfandi, en nú væri svo komið, að hinir ríkustu fengju mest á kostnað hinna snauðu. Jafnframt hefði hann lýsl þvi yfir, að samkvæmt þess- um væntanlegu skiptum mundi hann láta hirða það, sem sér hæri, en ekki handa sér. Hafði liann verið prðin'n mjög reiður og rokið úl af fundinum og inn í haðstofu og vakti vinnumann sinn, og bað hann að ná i reið- hest sinn og leggja á hann. tJti var dimm yeírarnótt og norðgn hríðarveður, Þegar hesturinn kom var prófasturinn ferðbúinn; rauk hann á bak og reið í spretti út í koldimma vetrarnóttina. Um morguninn kom hann heim, og var þá rólegur, sem ekkert hefði i skorizt. Nokkrum dögum síð- ar fréttist, að hann hefði riðið um nóttina inn í dalinn, og skipti sínum hlut af gjafavör- unum á milli fátælcs fólks, er bjó við slæm heyskaparskilyrði. Litlu síðar fréttist um dalinn, að Lárus Blöndal sýslumaður hefði einnig skipt sinu gjafa- fóðri up[j á milli fátæks fólks í dalnum. Um leið og frásögn þessi skýr- ir frá niðurstöðum þessa fund- ar, sýnir hún meira og fleira. Hún greinir frá því, hvernig tveir báttstandandi áhrifamenn fóru að því, að móta þá samtíð, er þeir lifðu með, með sinu eig- in fordæmi, með þvi að gjöra allt, sem þeir gátu til að halda uppi rétti hinna minnimáttar. Á peningamælikvarða voru báðir þessir menn vel efnalega sjálf- stæðir, en hvorugur ríkur — nema af hjartagæzku og dreng- lyndi. Niðurlagsorð. Nú er frásagnaþáttum þess- um lokið. En aðeins til viðbótar skal þessa getið: Að Eiríkur Magnússon lézt í London 24. janúar 1913. Lárus Blöndal lézt að Kornsá í Vatnsdal 12. maí 1894; hafði honum verið veitt amtmanns- embættið norðan- og austan- Iands 26. febrúar um veturinn. Hvíla bein hans i grafreitnum á Undirfelli, við hlið konu hans, er dó 25 árum síðar. í sam- bandi við fráfall hans skal þess getið, að full 400 manns fylgdu honum til grafar, og mun sú jarðarför fjölmennust i Húna- þingi á árabilunum 1889—1938. Sveitungar hans báru likkistu hans frá Kornsá að Undirfelli. Kveðjuræður fhlttu auk hér- aðsprófastsins séra Hjörleifur Einarsson, prestarnir síra Stefán M. Jónsson á Auðkúlu, séra Bjarni Pálsson, Steinnesi, séra Þorvaldur Björnsson, Melstað. og séra Eyjólfur Kolbeins Staðarbakka. Við jarðarförina söng bland- aður kór, cr samanstóð af úr- vals söngfólki víðsvegar að. Börn hans reistu honum virðu- legan minnisvarða. Fmfall Lárusar sýslumanns Blöndal, er hann var ákveðinn að flytja burtu, sýnir fyrst og fremst það, að æðri máttarvöld gripu þar inn í og ákváðu hon- um að vera áfram mitt á meðal þeirra, er hann um langt og

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.