Vísir Sunnudagsblað - 20.02.1944, Blaðsíða 5

Vísir Sunnudagsblað - 20.02.1944, Blaðsíða 5
VÍSIR SUNNUDAG&BLAÐ 5 - ... • - . * *- allt í einu eftir því, að þú ert farinn að raula kafla úr són- ötu eftir Mozart eða sýmfóniu eftir Beethoven. þar sem þú stendur við hefilbekkinn þinn, eða ert að þvo upp matarilátin með konunni þinni. Þetta eru fyrstu einkenni þess, að sú „hundleiðinlega“ tónsniíð, eða geislar hennar, liafa komizt inn um einhverjar glufur í sál þinni, þér alveg óafvitandi. Og þá verður þess ekki langt að biða. að þér verður eins auðvelt að opna og stilla móttökutæki hug- ar þíns, eins og að opna og stilla úlvarpstækið þitt. „Hlustaðu! ^Hlustaðu! Hlustaðu! Og verlu jKjlinmóður. Mjnnstu Jæss J)á lika, að við lónlistarmennirnir liöfum orðið að vera ákaflega „þolinmóðir“, til Jæss að geta notið þeirra dásemda sem það veitir okkur að elska hana og' gela túlkað liana, sjálfum okk- ur og vinum okkar til sálar- hréssingar, hollustu og yndis.“. Eitthvað á þessa leið fórust jHeifetz orð i þessari tímarits- grein. Og hann er tvímælalaust einn hinna einlægustu og sönn- ustu tónlistarmanna vorrar tíð- ar sem meira metur listina, heldur en það, að skína sjálfur. t. d. á leikninni, á kostnað list- arinnar. En til eru þeir „virtu- ósar“ sem það gera. Mikið og göfugt verkefni er það, fyrir liina fáu sannmennt- uðu tónlistarmenn vora, að leið- beina almenningi í þessu efni, — laða almenning til þess, að leggja við hlustir, hjálpa al- menningi til þess að njóta „sól- baðsins", sem góð tónlist býð- ur upp á. Og það verður þá eins um þá og trúboðana, sem boða fagnaðarerindið um Frelsarann. Þeir verða að gerast börn að nýju, svo að þeir geti sett sig í spor þeirra „barna“ i trúnni — og tónlistinni, sem þeir vilja leiðbeina. Það tjáir ckki að setja sig upp á háan hest, eða tala af rembingi á vísindamáli. Enda er það eðlilegt þéim, sem mestir eru mennirnir og mest hafa til brunns að bera, að þeir eru litil- látir og eiga auðvelt með að tala á alþýðlegu ináli. Vér eigum ábyggilega einn inann slikan meðal tónlistar- manna, vorra — og eflaust fleiri. En eg á hér við Pál ísóffsson. Hann er allra tónlistarmanna okkar vinsælastur og kunnastur meðal þjóðarinnar, hann hefir miþið til brunns að bera, og hann hefir allra tónlislarmanna vorra bezta aðstöðu, til þess að láta gott af sér leiða í þessu. Hann er eins og hinn einlægi og sanni trúboði, upp úr því hafinn, að láta sitt ljós skína. SJÓORUSTAN I BISKAYAFLÓA. A myndinni sézt beitiskipið „Glasgow“, sem ásaml beitiskipinu „Entreprise“ sökkti 3 þýzkum tundurspillum og rak 11 á flótta í Biskayaflóa 28. desember 1943. heldur er honum það aðalatriði •og- hjartans mál, að láta sem bezt njóta sín birtuna og geisl- ana sem af sjálfri listinni stafar. Þessvegna er það fagnaðarefni, að hann hefir nú hafið nýjan þátt í starfi sínu við útvarpið, fræðslu og leiðbeiningar um tónlist fyrir unglinga, og senni- lega verður sú fræðsla enn yfir- gripsmeiri er tímar líða, — og ef útvarpsráð leyfir það. Annars er það nú svo, að jarð- vegur fyrir góða tónlist, í hug- um íslenzks æskufólks, er orð- inn miklu hrjóstrugri en liann var fyrir t. d. 30 árum. Þá var liann ósnorlinn svo að segja, og frjór. — En síðan hefir ver- ið sáð í þann góTia jarðveg ill- gresi, — og þó einna mest kapp á það lagt hin síðari árin, — sem skemmt hefir jarðveginn svo, að erfitt verður úr að bæta, og veitir því ckki af að þeir leggi fram sinn skerf til þess sem eitthvað liafa verulegt til brunns að bera, og fellt gcta sig við það, að tala þannig og rjta, að alþýða manna skilji þá, laðist að „trúboði þeirra, treysti þeim og beri virðingu fyrir þeim og vinarhug til þeirra. ' j>kal hér nú látið staðar num- ið um þessar samlikingar. Með þeim vil eg aðeins benda leik- mönnum á, og reyna að gera skiljanlegl, bvernig þeir geti notið „sólbaðs“ i geislum góðr- ar tónlistar, án undangenginn- ar fræðslu. Þetta er tilraun, gerð af einlægum huga, til þess að laða menn að góðri tónlisl og leiðbeina þeim með fyrstu og einföldustu skrefin. Þegar þau eru lærð, fer á eftir löngunin til að komasf lengra, þprsti eftir frekari fræðslu. Og væntanlega mega „ldustendur“ — hvort heldur eru útvarps- eða hljóm- leika-hlustendur, — eiga von á því, að meira verði gert að því, hér eftir en hingað til, að veita þcim skiljanlegar leiðbeiningar og fræðslu. Um töframátt trú- arinnar liafa menn verið frædd- ir öldum saman, um töframátt sólargeislanna hafa menn lengi vitað, og hér á landi eru menn farnir að gera sér far um að notfæra sér liann, og eru þeir æði margir, einkum meðal æskufólks, sem þekkja liann af eigin reynd. Langminnst veit islenzk alþýða úm töframátt góðrar tónlistar, — en æslcu- lýðurinn hefir hinsvegar kom- izt út á glapstigu, því að margt af því, sem æskulýður vorra fima telur tónlist og vill helzt heyra, er álika óholl nautn og að lesa liina lélegustu mann- dnápa- og glæpareifara, og á ekkert skylt við tónlist. Nú er það hið mikla og göf- uga verkefni tónlistarmanna vorra, að sannfæra alþýðu manna um töframátt góðrar fónlistar og laða hana til þess að notfæra sér hann. Fyrsta myrkvun, sem getið er um að gerð hafi verið í liern- aðarskyni, var gerð i frelsis- striði, Bandarikjanna 1813, i borginni St. Michaels i Mary- land. Brezkur her sótti að borg- inni, og fundu borgarbúar þá upp á því að slökkva öll ljós og hengja luktir upp í tré. Bret- ar miðuð á ljósjn og skutu yfir markið, S k u g g i: Markúa ívarsson vélstjóri. (Borinn til moldar i. sept. 1943.) Hrökkur hrynangur hræringa, bundin bróðerni bragrefja, þegar þrúðmenni þegnheima báru bljúglega blundketil. Inni úðmennis aldreigi réði rangsælis réttlæti — víkka vináttir velsæmis hlægi hamingja heimamenn. Væru vinsældir vöggugjöf, enginn öðlaðist ágæti — heimur hlébarða hraklegur ^færði fáráðleg fyrirtök. Berast blávötnum blíðmæla loftvæg löghelgi ljóðpunda — þjóðsál þroskaðri þessvegna aldrei ofdyri eiginlegt. Þessleg þjóðrekki þegjandi voru vandanum viðbúin — hurfu hetjlega heimanfrá, áttu æfilangt ístríki,

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.