Vísir Sunnudagsblað - 20.02.1944, Blaðsíða 7

Vísir Sunnudagsblað - 20.02.1944, Blaðsíða 7
vísffi SUNNUDAGSBLAÐ kókospálma, og eni það akrar, sem ekki er hægt að rækta á kryddnellikur. Kókoshnetur eru eí'tirlæ/tis- fæða Sansibar-búa, en samt eru flutt út minnst 10.000 tonn af copra árlega. Kókoshnetur eru teknar 4 sinnum á ári. Til þeirr- ar uppskeru eru einkum valdir innfæddir menn, er klifra upp á hina risavöxnu pálma, og eru í böndum. Margir halda, að tfl kólcoshnetu-uppskerunnar séu notaðir tamdir apar, en slíkt er aðeins hugarburður, sem margir ferðamenn trúa þó á. Þrátt fyrir það, þótt Sansibar virðist liafa sæmilegar tekju- lindir, er mikil afturför í hin- um gamla þrælaverzlunarbæ. Sansibar er nú ekki lengur mið- stöð afrikanskrar verzlunar, eins og á blómatíma þrælaverzl- unarinnar. Þess verður fljótt vart, er gengið er um iniðborg- ina. Þar standa stór hús, sem áður voru auðmanahallir, en nú stendur í öllum gluggum: “To be let” -—til leigu. Eg færði þetta í tal á hóteli því, sem eg bjó í, því eina, sem til er í vestrænum stíl. Það er aðeins eitt hótel í borginni, sem hefir þó 45 þúsund ibúa. Þjónn- inn svaraði — svartsýnn í huga: „Allur bærinn er til leigu.“ Þýtt. Kontrakt-Bridge Eftir B. G. daginn fékk: frá þessu spili. Hann * - V 6 3 2 K 8 5 4 3 2 ♦ 5 4 3 2 Þegar ein hinna stóru flutn- ingsflugvéla lenti í Montreal seinl í nóvembermánuði siðast- liðinn, steig út úr henni 24 ára slúlka, sem falið hafði sig i geymsluklefa flugvélarinnar. Hún sagði að sig langaði til að læra að fljúga, en hún hefði ekki gelað fengið tækifæri til þess á Englandi. Hún Iiefði því slolizt með flugvélinni lil Canacja lil þess að vita hvort hún gæt ekki lært að fljúga þar. A þessum tímum, þegar verið er að gefa út kennslubækur í bridge og prenta alþjóðalög og spilareglur (drengskaparregl- ur), getur verið gaman að at- huga, hversu fánýtt er að setja reglur, ef spilararnir hafa með sjálfum sér ákveðið að virða þær ekki. Við skulum byrja á passinu. Snöggt pass táknar auð- vitað engan styrk, eða sáralítinn, en hægl pass og hugsandi getur táknað að spilari hafi næstum því nægan sagnstyrk. Á sama hátt er hægt að láta hverja sögn hafa tvær merkingar. Til dæmis S V N A i spaði ]iass [ grand pass TVEIR SPAÐAR eða tveir spaðar í fyrra tilfellinu felst tilboð um að lialda áfram, ef Norður hefir lumað á einhverjúm styrk, en í síðara tilfellinu (veikt og hikandi) felst aðvörun um að fara alls ekki hærra. Það er talsvert flókinn munur á upplýsingadoblun og sektar- doblun, og margir nota þennan möguleika til að segja með á- herzlumun, hvort þeir ætlast til að félagi taki doblunina af eða láti hana standa. Þá er úrspilið. Spilari kann að eiga það til að fáta með eitt spil eða fleiri, unz hann fylgir lit með einspili sinu. Eða hann á kóng annan undir ás blinds. Þá segir hann að sig furði að blindur skuli ekki hafa meldað upp i slem. Af þessu dregur sagnhafi þá ályktun i fyrra til- fellinu, að hinn eigi fleira en eift spil og i því síðara, að hann FRÁ ÍTALÍU. eigi ekki kónginn. Eða þá að liann sér í gegnum svikavefinn, sé liann nógu glúrinn. Einu sinni var eg að spila við tvær dömur, og við karlarnir vorum í vörn. Þegar sú blinda lagði niður spil sín, nagaði hin sig í handarbökin fyrir að hafa ekki sagt upp í slennn. En þær fóru tvo niður. Félagi minn hafði annan kæk. Ilann stundi og bölvaði sér, þegar hann sá blindan, einkum ef dömurnar böfðu doblað. Hann vissi samt að hann gat vel unnið með heppnuðu gegnumspili. En þeg- ar dömurnar sáu „vandræði" hans, uggðu þær ekki að sér og spiluðu rangt í gegnumspilið. Kunningi minn sagði mér um A Ii 2 V 9 7 6 2 ♦ 8 * 10 8 7 6 4 2 10 9 7 6 3 “ Þeir vorii í hættu, og félaginn vakti sögn með einum spaða. Nú vissi vinnr minn að félaginn var háskalegur glanni, og vildi fyrir alla muni stemma stigu við sögninni. Millihöndin pass- aði og hann svaraði með einu faufi: Lögum samkvæmt varð hann að gera sögnina fullnægj- andi. Hann sagði því tvö lauf, og félaginn fékk ekkerl að segja. Þeir unnu tvö lauf, vegna eyð- unnar í spaða og sumparl fyrir heppni. En þeir hefðu farið hrottalega niður á hvaða spaða- sögn sem var. En þetta bragð er auðvitað því aðeins hægt að nola að menn spili eftir bókstaf laganna, en ekki anda þeirra. Hér er frægt dæmi um sak- levsisleg spilasvik. A V ♦ * D G 3 7 D Hermenh úr 8. her Breta starfa að loftskeytásambandi milli hinna ýmsu deilda hersins. Vestur (utan hættu) byrjaði á þrem spöðum, Norður passaði, Austur sagði fjögur hjörtu. En Suður sagði formálalaust fimm tigla og fékk samninginn. Vest- ur spilaði út einspilinu i hjarta, og þólti Suðri það einsætt, að liann myndi ekki eiga meira. Meðan hann var að ihuga spil blinds, sá hann að allt stóð og féll með því að tígulgosinn félli í ás, kóng eða drottningu. Þeg- ar Austur spilaði aftur úl'há- hjarta, svcik liann því lit og trompi með níunni. Vestur gal ekki yfirtrompað, og leiðrétti Suður litsvikin, strax og hann hafði komizt að þvi, og er það leyfilegt að lögum. Síðan lcomst hann inn á eigin spil, spilaði sig' inn á spaðakóng Norðurs og svínaði með tromptíunni. Með ]ie ssu vann hann spilið. Á sama hátt myndi hafa farið, ef Vest- ur hefði getað yfirtrompað með gosanum. En þá var auðvitað ekkert annað hægt cn að láta slag standa, hvort gosinn næð- ist út með Á, K eða D. Síðasta dæmið er um útspil í rangri röð. Félagar höfðu kom- izt upp í sjö lauf í löngu „sam- tali“, og andstæðingur rankaði allt i einu við sér og spilaði út lág-laufi. En honum var skipað að hesthúsa sitt spil. Nú var drottningin úti, og sagnhafi á- lyktaði, að ekki hefði ]>essi far- ið að spila út frá henni. Hann spilaði þvi gegnum þann, sem ekki átti drottninguna, og slemmið tapaðist. Það getur verið nógu gaman að heyra og lesa um svona bragðvísi, en vist er um það, að ekki telst hún af fínni endan- urn, Það er því full ástæða til að hafa augun hjá sér og beita til fulls öllum sektarákvæðum laganna við hvaða broti sem er. Með þvi móti einu er hægt að hamla upp á móti þeim, sem viljandi recma að hafa rangt við. Harward stjörnurannsóknar- stofan birti nýlega tölu fund- inna stjarna á einum þriðja af himinhvolfinu; nam talan 30 biljónum. Allur þessi stjarnafjöldi og ibúar þeirra, cr aðeins smár hluti þess svæðis og þeirra ein- staklinga sem gætu með líman- um komið til mála, vegna þess að beztu stjörnukíkjar eru ekki fullkomnari en svo að þeir ná aðeins þeim himinhnottum, sem erú 100 milljónir ljósára frá jörðinni.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.