Nýja dagblaðið - 21.12.1934, Side 3

Nýja dagblaðið - 21.12.1934, Side 3
H Ý J A ÐAQBIaAAIB 8 Nýiar barnabækur Á ferð og flugi. Sérprentun úr Unga Is- landi. Þýtt, safnað og samið af Guðjóni Guð- jónssyni og Steingrími Arasyni. — Rvík, 1934. 96 bls. 1 þessari bók eru fyrst ferða- sögur, þar sem sagt er nokkuð frá ferðum tveggja norrænna hetja: Fridtiof Nansen og Sven Hedin. Þá koma greinar um Sólar- uppkomulandið (Japan), Boli- via, Afriku, Chile og um Indi- ána, og loks stutt Indiánasaga. Bók þessi er fröðleg og skemmtilega rituð og fylgja góðar myndir, efninu til skýr- ingar. Sérstaklega er ánægju- legt að lesa kaflann um ferðir þeirra Nansen og Hedins. Asninn öfundsjúki. Saga í ljóðum og myndum. — Kisa veiðikló. Saga handa börnum. — Lítið skrítið úr heimi barn- anna. Þessar þrjár bækur hefir Bókhlaðan gefið út handa böm- um, sem nýlega eru byrjuð að lesa. Tvær fyrri bækurnar eru sögur, en í þeirri þriðju eru Málverkasýning Olafs Tubals Niðurlag. „Fögur er hlíðin“ er dómúr sem Fljótshlíðin hefir hlotið i vöggugjöf og honum mun eng- inn hagga. Ólafur Túbals er fyrst og fremst málari Hlíðarinnar. Þar er hann borinn og alinn upp. Þar þekkir hann hvem drátt og hver ljósaskifti. Hann hefir byrjað ungur, af eigin hvöt að reyna að festa það á lérei't með línum og litum. Það er því næsta undarlegt að sjá honum borið á brýn, að hann skorti kærleika til verkeínisins. Slíkt hlýtur að vera mælt út í hött. Ég hefi séð allmargt af myndum Túbals, gamlar og nýj- ar, einkum vatnslitamyndir. Og ég held að ég sé varla svo glámskyggn, að mér sé ekki ó- hætt að fullyrða, að um milda og góða framför sé að ræða hjá honum og að þessi sýning hans beri af hinum fyrri. Sama máli gegnir um olíu- liti, sem Túbals hefir lítið not- að fyrr en síðustu árin. Þar hefir verið framför frá ári til árs. En fyrst og fremst er hann vatnslitamálari og ég ef- ast um, að margir ísl. málarar séu honum fremri á því sviði. Nei, Ólafur Túbals málar einmitt af innri þörf og kær- leika til verksins, og með elju hins vandláta og lítilláta manns. Ég hygg, að það lægi næst að finna að því, að hann vanti sjálfstraust, vanti ennþá hina djörfu og sjálfvissu með- ferð línu og lita. En vafalaust sjálfstæðar myndir með skýr- ingum hver fyrir sig. Allar bækurnar eru með fallegum og fjölskrúðugum litmyndum og hljóta því að vera bömunum kærkomnar. Heiða E. P. Briem bóksali hefir gefið út fyrri hluta sögunnar „Heiða“ eftir hina heimsfrægu skáldkonu Johanne Spyri. Fyrir 15—16 árum birtust í barna- blaðinu Æskan tvær framhalds- sögur eftir þenna sama höf., („Toni“ og ,,Jörundur“) og munu þær hafa notið mikilla vinsælda. En þessi saga er með réttu talin meðal hinna beztu barnabóka á erlendum markaði og má nokkuð marka það af því, að í Þýzkalandi hafa t. d. selzt af henni um 400 þús. eint. Ég hefi lesið þessa bók mér til mikillar ánægju og efast ég ekki um, að íslenzk börn hlakki til að fá síðari hluta hennar, sem vonandi kemur út á næsta ári. Frú Laufey Vilhjálmsdóttir hefir þýtt söguna og er hún prýdd fjölda góðra mynda. Þ. K. er form hans mýkt og mótað við hæfi vatnslitanna. Á sýningu Túbals eru nú skráðar 77 myndir, 33 með ol- íulitum, hinar með vatnslitum. Það eru mikil afköst, en ber- sýnilega sprottin af hlífðar- lausri vinnu, því af hroðvirkni eru þau ekki gerð. Verkefnin eru úr Fljótshlíð, Vestmanna- eyjum, frá Laugarvatni og Þingvöllum. Fjórar myndir eru frá Danmörku. Af einstökum myndum lang- | ar mig til að vekja athygli á j Gjá á Þingvöllum með Arnar- j fell í baksýn (nr. 53) og j Hrafnabjörg (nr. 8). Af Fljóts- ; hlíðarmyndum vekur Morgunn í Fljótshlíð (nr. 30) mesta at- hygli. Sér þar yfir Múlakot með Eyjafjallajökul í baksýn. Vatnslitamynd 64 er Frá Múla- koti með blómskrúð í nærsýn en Dímon bak við víðlenda flatneskju í baksýn. Þá er vert að nefna Tindafjöll (61) og Múlakot (75). Af Laugar- vatnsmyndum eru 31 og 33 með Heklu í baksýn mér næst skapi. Margar götumyndir frá Vestmannaeyjum eru sérkenni- legar og vel gerðar, t. d. nr. 2. En slík upptalning hefir vitan- lega litla þýðingu. Sjón er sögu ríkari. Enginn sýningargestur má heldur gleyma að líta á nisti og skrautsteina úr fáguðum ís- lenzkum ópal, sem ungfrú Soffía Túbals hefir fundið og látið slípa. Þeir eru bæði fagr- ir og fáséðir. Jón Eyþórsson. Allt með Isienskuin skipum? *fil ágætar jólagjafir' i Egdls saga Skalla-Grímssonar Útgáfa Fornritafélagsins. Verð heft kr. 9,00, ib. 15,00 Iiaxdæla saga Útgáfa Fornritafélagsins. Sama verö Sagan nm San Michele eftir Dr. Munthe 13,50, 17,50 og 22,00 Sög'ur irá ýmsnm löndnm 1., 2. og 3. bindi, kostar 7,50, ib. 10,00. Sög-ur handa börnum og ungllngum Fást hjá bóksöluni. 2., 3. og- 4. hefti, hvert ib. 2,50 Bdkaverzlun Sigfúsar Eymundssonar og Bókabúð Austurbæjar B S E. Lvg. 34 ENGIN IOLAGJOF er kærkomnari en gott viðtæki og ekkert heimili má fara á mis við þá margvíslegu ánægju og fróðleik, sem það veitir. HIÐ LÁGA VERÐ OG HINIR HaGKVÆMU GREIÐSLU- SKILMÁLAR GERA NÚ ÖLLUM KLEIFT AÐ EIGNAST VIÐTÆIÍI Leitið upplýsinga í útsölum vorum: VIÐTÆKIAUTSÖLUNiNI, Tryggvagötu 28, Sími 4510 og VERZL. FALKANUM, Laugaveg 24, Sími 3G70 Viðtækí inn áhvertheimili « Viðtækjaveizlun ríkisns. Sími 3823 — Lækjargötu 10 B. Framh&ldslíf og nútimaþekkiug' efth- Jakob Jónssoi. Þetta er allstór bók. Hún fjallar um rannsóknir og rök- semdir þeirra sálarrannsóknar- manna, sem þau efni hafa kynnt sér undanfarna manns- aldra. Efnið er stórmikilvægt. Þar er skýrt frá athugunum á hæfi- leikum heimsfrægra miðla, á- rangri þeirra athugana, trygg- ingarráðstöfunum gegn hugs- anlegum svikum og líkindum og sönnunum fyrir öðru lífi. Auk þess er í bókinni margt mynda, m. a. af því, hvernig vísindamenn fara að því að fyrirbyggja möguleika til svika með ýmiskonar útbúnaði. Þessi bók er ein með þeim merkustu, sem út hafa komið á þessum vetri og er ekki efi á að marga mun fýsa að eign- ast hana og kynna sér efni hennar. Hún er rituð af glöggum skilningi og gagnrýni, en for- mála að bókinni ritar Einar H. Kvaran. E. P. Briem hefir annast út- gáfuna og á þakkir skyldar fyrir. K. Hangíkiot til jólanna. Biðjið verzlanir yðar um hangikjöt úr reykiiúsi S. i. S. Þá er tryggt að þór fáið vel reykt kjöt. Jólahangikjötið er af sauðum af Hólsfjöllum. Það er vænsta sauðakjöt landsins Pantiö eem tyrst. Samband isl. samvinnufélaga Jólagjöf Nýja dagblaðsins ■j í dag býður Nýja dagblaðið þessi kostakjör, þeim sem gorast nýir kaupendur: Þeir sem borga 5 krónur fá blaðið til 1. febr. | (og einnig það af eldri blöðum, sem til er, þar á meðal hið merka jólablað frá 1933). Dvöl alla sem út er komin, 34 hefti (hvert hefti kostar 25 aura) og langa (á þriðja hundrað blaðsiður) spennandi skáldsögu nýútkomna. — Allt þetta fá nýir kaup- endur fyrir aðeins 5' krónur. Aths. Dvöl öll frá byrjun er ágæt jólagjöf

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.