Tíminn Sunnudagsblað - 13.09.1964, Page 11

Tíminn Sunnudagsblað - 13.09.1964, Page 11
orðum Ingunn hafði nefnt Jón í Brekkubæ föður að barni sínu, er það var fætt, þó að hún hefði áður sagt Ólaf eiga það. Bæði gengust þau við því, að almennt væri talið, að Ólafur ætti barnið. Sýslumaður vísaði nú Brekkubæj- ar-Jóni frá rétti á þeim forsendum, að hann væri sjálfur sökum borinn og skírskotaði til lagagreinar, er hann þóttist styðjast við. Hreppstjór- unum hafði ekki verið stefnt, og er annað tveggja, að þeir hafa ekki vilj- að bera vitni ótilneyddir eða sýslu- maður komið í veg fyrir það. Voru því ekki fleiri vitni yfirheyrð. Ekki kom heldur fram skjal það, er séra Jón hafði í vörzlum sínum með und- irskríft Ólafs og ótvíræðri hendi hans, hvort sem það hefur stafað af þvi, að prestur hefur ekki viljað ganga svo í berhögg við hann eða eitthvað annað komið til. Nú var því það eitt eftir að yfír- heyra Ingunni. Fyrst var spurt um aldur hennar, samvistir við Jón í Eiði og fæðingu barnsins, en síðan vikið beint að efninu: „Hverjum hefur þú kennt þetta barn þitt?“ „Ég hef engan nefnt opinberlega," svara'ði Ingunn. „Ég lýsi Ólaf Björns- son svo sannan föður að þessu barni sem ég er móðir þess.“ Hún varð þó að viðurkenna, að hún hefði tæpt á nafni Jóns í Brekku- bæ í eyru ljósmóðurinnar, og þegar hún var spurð, hví hún hefði svo lin- lega kveðið að orði um hann, svar- aði hún: „Ég vissi fyrír samvizku minni, að hann ekkert var við það riðinn, þó svona væri gert, og var svo i mér deyfð að lýsa hann.“ Yfirleitt mátti segja, að framburð- ur Ingunnar og vitnanna kæmi Ólafi ekki sérlega þægilega. En sýslumað- ur lék á als oddi, og nú skaut hann fram spurníngu, sem ekki var laus við ertni í garð Jóns í Eiði, er ef til vill hefur ekki hlustað á það orða- laust, að málinu væri eytt fyrir hon- um. Sýslumaður vildi vita, hvað hefði „hrært“ Ingunni tíl þess að leita frek- ar til Ólafs á Munaðarhóli en manns síns. Ingunn dæsti raunalega: „Það gerði ólán mitt,“ sagði hún •— „það stríddi svo á mig.“ Nú þótti sýslumanni nóg komið. Hann sleit rétti í snatri og lét þíng- vitni skrifa nöfn sín í þingbókina. Anriað þeirra var Þorleikur Þorleiks- son, sem sjálfur hafði hlustað á sögu Ingunnar og Brekkubæjar-Jóns í skemmunni á Eiði þremur vikum áð- ur. Fimm vikum síðar kvað sýslumað- ur upp dóm. Þótti honum rækilegri rannsókn ekki verða við komið, þar sem þeir Jóhann og Jón í Brekku- bæ mættu ekki bera vitni í málinu, en Ingunn tvísaga orðin og ómerk orða sinna og yrði því ekki yfirheyrð í annað sinn. Ilann hafði engar vöflur á: „Ingunnar Pálsdóttur upp á admini- strator Ólaf Björnsson á Munaðarhóli gerða barnsfaðernislýsing skal sök- um hennar umvitnaða og fyrir rétti játaða tvímælis álítast óeftirréttan- leg og ekki koma áðurnefndum ad- ministrator Ólafi Björnssyni til neinnar vanvirðu upp á gott nafn og rykti . . . hann skal ekki heldur skyldast til að afleggja sinn fram- boðna fríunareið í þessarí sök.“ Hugulsemi dómarans leynir sér ekki. Hann tók ekki heldur ýkjahart á Ingunni. Þrátt fyrir tvímælið skyldi hún vera ,óærukrenkt“ og ekki borga meiri sekt fyrir barneignar- brotið heldur en lausaleíksbrot hefði verið, enda þótt hjónabandi þeirra Jóns í Eiði hefði aldrei verið lög- lega slitið. En með því að sýslu- manni fannst sjálfum dómurinn væg- ur, lét hann liggja að því, að til- hlýðilegt myndi vera, að hún léti lítið eitt af hendi til rakna til sveit- arinnar,þótt hvorki segði hann skýr- um orðum, hversu mikið það skyldi vera, né dæmdi hana fullkomlega til þess. Þá lýsti hann því, að hjóna- bandi þeirra Jóns og Ingunnar væri slitið, og loks dæmdi hann Jón til að greiða Ólafi tvo ríkisdali fyrir til- efnislausa málsýfingu, auk þess sem hann skyldi bera málskostnaðinn, sex dali. Jón í Eíði varð ekki hýr á svip- inn við þessi úrslit. Hann lýsti þeg- ar áfrýjun, krafðist afrits úr dóma- bókinni og dró upp peninga til þess að borga hana. En sýslumaður band- aði hendínni á móti þeim og sagði, að hann gæti fengið útskriftina, þeg- ar annir sínar leyfðu, og vitjað henn- ar á heimili sitt gegn sanngjörnu gjaldi. Sennilega hefur sýslumanni ekki þótt það eftirsóknarvert, að gerðir hans þennan dag kæmu fyrir yfir- rétt. Og nú barst honum liðsinni úr óvæntri átt. Ingunn Pálsdóttir kvað upp úr með það, að sögn sýslumanns sjálfs, að hún hefði aldrei beðið Jón að skipta sér af þessu máli. Jón hélt því aftur á móti fram, að hún hefði sagt um áfrýjunina: „Ilann ræður því, hvort hann ger- ir það, en ég hef ekki beðið hann fyrir það, en ég vil, að það sé upp á hans kostnað, en ekki minn.“ Afíur á móti sést ekki, að þing- vitnin hafi verið látin skera úr um það, hvor fór réttar með orð hennar, og kynni það að benda til þess, að sá, sem hafði bókina undir-höndum, hafi eitthvað hnikað til orðum Ing- unnar. XXIII. Það var löngum siður ófyrirleit- inna sýslumanna að þrjpzkast við að að láta mönnum í té afrit af máls- skjölum, er þeir vildu koma í veg fyrir að ísjárverðum málum yrði áfrýjað, og var þá oftast borið við önnum. Slík aðferð stoðaði þó ein- ungis við þá, er lítils máttu sín. Jón í Eiði var agndofa yfir þeim hrekkj- um, sem hann hafði verið beittur, en vildi þó með engu móti sætta síg við dóm Sigurðar sýslumanns. Sótti hann fast sitt mál, og var þó komið fram í ágúst og nálega þrír mánuðir Framhaid á 861. s£3u. 8»? Hellissandur — myndin mun tekin á Munaðarhólstúni. Ljósmynd: Þorsteinn Jósepsson. TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.