Tíminn Sunnudagsblað - 13.09.1964, Blaðsíða 19

Tíminn Sunnudagsblað - 13.09.1964, Blaðsíða 19
Sigurður Jónsson frá Brún: Síbbornar afmæíis- I hugleibingar TIL GUÐMUNDAR BÖÐVARSSONAR SKÁLDS SEXTUGS Milljónatugir milli sex og sjö sagt er nú bætist við á hverju ári af nýjum mönnum, mjög þótt dauÖinn skári. Meir fjölgar eftir Jsrjú ár — jafnvel tvö. Samt fækkar jseim, sem eiga rímuráti og réttan klið í mál sitt geta unnið, úr hverfisteinsins surgi söngva spunnið og síían létta skammhendu sér kljátS. Hver dagur sá er drottins náÓargjöf, sem dauíiinn e<Sa knjáskæcS gtapamóÖir. bjó'Öinni leyfir ljótS á fjallajörÖ. VerÖi þér afkár ellin seint aÖ töf, allir þér vertii tímar hollir, góðir, fimleikamanni atf fagurkvæðagjörð. —-- um rak hana á fjörur í stórviðrum. Um sumarmál 1863 er sagt, að rekið hafi feikn af síld í Vogum. Á síldar- hrönnin við ströndina að hafa náð mönnum í mitt læri. Árið 1880 fór ívar Helgason, bróðir Péturs, til Noregs, ásamt tveimur öðrum mönn- um, til þess að læra síldveiðar. Hann kom upp með 30 síldarnet og hóf veiðar. Síldina notaði hann einkum í beitu og varð manna aflasælastur. Af fvari iærðu menn hina nýju veiði- - tækni. Síldveiðar við Faxaflóa eiga upphaf sitt að rekja til Flekkuvíkur. Sjór brýtur kampa utan við Flekkuvík eins og víðar á Strönd- inni. Þar hafa fundizt fornar rost- ungstennur i bökkunum og eitt sinn heiltennt hauskúpa. Hér hafa rost- ungar bylt sér í fyrndinni, en ís- birnir leitað að bráð, þótt bein þeirra hafi ekki fundizt. Rosmhvala- nes er kennt við rostunga, rosmhvali, svo að þar hafa þeir leitað að landi á fyrstu öld eða öldum landsbyggð- arinnar. Bílabrautin á að liggja úr Kúa- gerði út yfir Vatnsleysuheiði, Vatns- leysustrandarheiði eða Strandarheiði og Vogaheiði og suður um Voga- stapa til Keflavíkur. Strandarheiði sker byggðina milli Flekkuvíkur og Kálfatjarnar og nær til sævar á Keilisnesi. Strandarar kalla suður fyrir heiðina til Kálfatjarnar, en Kálf tirningar inn fyrir heiðina til Vatns- leysu, en hvorir tveggja fara þeir suður til Reykjavíkur. Brautin verður það innarlega á heiðinni, að hún liggur handan við holt og hæðir suður frá byggðinni, sem fylgir ströndinni rækilega. Hér voru sel í eina tíð ínnar á heið- inni. Skúli Magnússon segir, að Strandarheiði sé „eitthvert hið bezta land til sauðfjárræktar, það sem ég hef séð á íslandi". Hér hafa verið skógar, eins og ýmis örnefni votta, en gróður hefur eyðzt mjög frá dög- um Skúla og land blásið. Skammt fyrir utan Kúagerði á brautin að liggja um allbreiðan sig- dal, sem takmarkast af Hrafnagjá að utan, en Brúnum að innan (sunnan) og les sig út á Reykjanestá um Snorrastaðatjarnir og Seltjörn. Utan vegar á Strandarheiði verða Hrafnhólar fyrst, en þá Þorsteins- skáli. Af Þorsteinsskála er mjög víð- sýnt um strendur Faxaflóa og Reykja. nesskaga. Þá koma Lágar, sem ýmist eru kenndar viS Vatnsleysu eða Kálfatjörn, og Lynghóll. Utan og norðan við Þorsteinsskála sér mikla fjárborg á sléttri klöpp, og nefnist Staðarborg eða Prestborg. Munn- mæli herma, að vinnumaður á Kálfa tjörn hafi reist borgina og ætlað að topphlaða hana, láta hleðsluna ganga saman í hvelfingu, en prestur bann- að það. Þetta gramdist bygginga- meistaranum, svo að hann hljóp úr vistinni. Borgin er meistara- verk sinnar tegundar. Byggingarlag- ið er sömu ættar og byggðaborgir, héraðsvirki, sem menn reistu í forn- öld í Skandinaviu og á skozku eyj- unum, og er Móseyjarborg þeirra mest og frægust. Fjárborgin íslenzka er fórnrar ættar, telur jafnvel til frændsemi við hernaðarmann- virki bronsaldarmanna, en hér var hún hlaðin sauðkindum til varnar í vetrarnæðingum. Þetta mun vera ein hver stærsta fjárborgin íslenzka, og er hún friðlýst og stendur undir vernd þjóðminjavarðar. Sunnan vegar eða innan er Kirkju holt, Marteinsskáli og Kolgrafar- holt í útsuður frá Staðarborg eða nokkru utar við brautina. Þar hefur áður verið höggvinn skógur til kola- gerðar. Hrísíð á Strandarheiði var að mestu uppurið á 19. öld, en menn rifu lyng til eldsneytis, unz allt þraut. Rányrkjan var ekki afleiðing skiln- ingsleysis á þeim landspjöllum, sern unnin voru, heldur neyddust menn til að afla eldsneytis, hvað sem það kostaði. Stórbændurnir i Vogum bönnuðu með öllu hrístekju í Voga- holti laust fyrir 1900 og gerðu upp- tæka síðustu hrísbaggana. sem land- seti þeirra tók í holtinu. Skógarvörð settu bændur við heið- ina um miðja 19. öld Gamli vegurinn bræðir með byggð- inni við ströndina, enda var hann henni ætlaður i árdaga. Keilisnes er nyrzti tangi Vatns- leysustrandar. Undan nesinu fórst togarinn Coot 16. desember 1908, fyrsti vélknúði botnvörpungurinn, sem íslendingar eignuðust, keyptur til landsins 1904. Hann var með skútuna Kópanes i eftirdragi. Mann- björg varð. Á sömu slóðum fórst vél- báturinn Haukur frá Vatnsleysu 11. febrúar 1921 með fimm manna áhöfn. TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 859

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.