Tíminn Sunnudagsblað - 19.09.1965, Page 2

Tíminn Sunnudagsblað - 19.09.1965, Page 2
Mannréttindabaráttan í Bandaríkj unum, sem miðað hefur að því að bæta hag blökkumanna þar í landi, hefur einnig beint athygii manna að þeim skerf, er, blökkumenn eiga í uppbyggingu landsins. Þetta er efni bókarinnar Blakkir kúrekar, sem nýlega kom út í Banda- ríkjunum og vakið hefur talsverða eftirtekt, Margt af því, sem fólk heldur, að það kunni skil á í þróuninni í Banda- ríkjunum vestan Mississippi-fljóts, hefur þekkingu sína einungis úr skáld sögum, kvikmyndum og ævisagnarit um, sem ætluð eru unglingum. þai sem saga og þjóðsögur tvinnast oft saman, svo ekki má í miili greina. Þar sem oft hefur verið vanrækt að greina frá hlutverki blökkumanna í uppbyggingunni í „villta vestrinu" sem svo er kallað, hafa tveir háskóla kennarar í Kaliforníu reynt að fylila í eyðurnar. Háskólakennararnir Philip Dur- ham og Everett L. Jones, könnuðu rúmiega þrjú hundruð endurminn- ingar og sagnrit og leituðu þar að tilvitnunum varðandi blökkumenn, er létu gamminn geisa sem kúrekar á siéttum vesturríkjanna á síðustu ára- tugum 19. aldar. Meðal þeirra ríðandi manpa, sem ráku nautgripahjarðirnar eftir troðn- um slóðum frá beitilöndum Texas- fylkis til markaðsstaða í hundruða mílna fjarlægð, voru rúmlega fimm þúsund blökkumenn. í bók þeirra prófessoranna er sey- tján blaðsíðna kafli um efni úr sagn- ritum og minninigaritum, er þeir sóttu í frásagnir um svarta kúreka. En þótt til séu frásagnir um skerf þessara kúreka, komust prófessoram- ir að því, að blökkumennimir eru því sem næst gleymdir í sögusögnum, sem myndazt hafa um lífið um „villta vestrið." „Fáfræði í sagnfræði," telja háskóla kennararnir, „mikilvægustu ástæðuna fyrir því, að blakkir kúrekar þeysa ekki á gæðingum í skáldsögum" þeim, sem nú era skrifaðar. Alit frá því að langhyrndu naut- gripirnir, sem nú eru útdauðir, vora á beit á sléttunum, hefur stöðugt blómaskeið haldizt í Texas, og nú er skerfur þess fyliris í nautgripa- ræktinni meiri en nokkurs annars fylkis Bandaríkjanna. Á síðustu ára- tugum nitjándu aidarinnar var ódýr- asta aðferðin til þess að koma naut- gripunum frá Texas á markað og til járnbrautarstöðva að láta kúreka reka þá hópum saman á ákvörðunar- stað. Við reksturinn sat reiðmaðurinn í hnakknum tólf til sextán klukku- stundir daglega og oft voru menn tvo eða þrjá mánuði á ferðinni. Hæfni manna til þess að leysa verk sitt af hendi var þýðingarmeiri en hörundslitur þeirra. Leiðin til þess að vinna sér álit var fólgin í að kunna að fara með hest, byssu og nautgripasnöru. Nákvæmar athuganir háskólakenn- aranna tveggja leiddu til þeirrar nið- urstöðu, að tveir eða þrír blökku- menn voru meðal hverra átta kúreka, en það var algengur fjöldi þeirra manna, sem fóru með hvern rekstur. Nautgripir í hverjum rekstri voru venjulega um 2.500. Gömul landamerki eru horfin og víðáttumikil beitiiönd afgirt. Kúreka- hetja sögusagnanna er eklri lengxr til, nema í bókum. En þetta er vin- sælt efni í sjónvarpsþáttum og kvik- myndum. Þar er kúrekinn sífelit á hestbaki og heyr bardaga, annað hvort í löngu liðinni fortíð eða í óraunvemleika nútímans. En á öldinni sem leið fóru blakkir kúrekar ríðandi allar götur frá Texas og ráku milljónir nautgripa. 842 ílMINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.