Tíminn Sunnudagsblað - 19.09.1965, Side 3
Hvernig geta úlfaldarnir þrammað óraleiðir
yfir sólheita eyðlmörk, án þess að svaia þorsfa
sínum? í þúsundir ára hefur þvj verlð trúað,
að þeir varðveittu vatn | bakhnúð sínum eða
maga. Nú vita menn, hvernig þeir treina sér
vatn.
Vatn gufar fljótt iit úr líkama manna og dýra í miklum hit-
um. Líkamshiti okkar fer ekki yfir um það bil 37 stig vegna
þess; að við svitnum. Líkamshiti úifaida er 34 stig að morgni
dags, en hann getur komlzt, að honum heilbrigðum upp í
41 stlg. Úlfaldi þarf með öðrum orðum ekki að fórna eins
miklu vatni og maður til þess að halda reiðu á líkamshita
sfnum.
Það var hugmynd margra^ að
hnúðurinn á baki úlfaldans væri
eins konar vatnsgeymir. í rauninni
er hann fitusafn og gefur dýrinu
frekar þrek en hann firri það
borsta.
Magi úlfaldans er ekki heldur
dularfullur vatnsgeymir. Þar er að
vjsu mikið af vökva, iíkt og í maga
nautgripa, en það er meltingarsafi
frekar en vatn við þorsta.
Leyndardómur úlfaldans er sá,
hve hann þolir mikla útgufun. Hann
sakar ekki^ þótt hann léttist um
nálega þriðjung vegna vatnsmissis.
Það er manni banvænt, ef hann
léttist um meira en tfunda hluta af
þeim sökum.
IfffífffífffffS
-
Úlfaldinn bætir sér upp vatns-
missínn í eyðimerkurferðunum með
þvf að svelgja kynstur af vatni
þegar hann kemst f það. Langþyrst-
ur úlfaldi getur drukkið 103 lítra
á níu mfnútum.
Jafnvel á auðnum Norður-Afrfku
þrífst grænn gróður, þegar rignir
um skeið. Á vetrum getur úlfaldinn
lifað á þessum gróðri vikum og
mánuðum saman án drykkjarvatns.
Fullyrt er, að eyðimerkurfarar hafi
bjargað Iffi sfnu með því að slátra
úlfalda og drekka ^vatn" úr maga hans.
Hn þeir hafa þá drukkið meltlngarsafa
úr maga dýrsins, en ekki vatn.
T I M 1 N N — SIINNUDAGSBLAÐ
843