Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 19.09.1965, Qupperneq 4

Tíminn Sunnudagsblað - 19.09.1965, Qupperneq 4
hún fallega brjóstnál, langan. rauð- an rúbinstein á tveimur silfurmillum, — Þennan rúbín grófu hænsnin á Teigi upp úr kálgarðinum, segir hún brosandi. Það var auðséð á óskemmdri gullumgerðinni, að þetta hefur verið dýr steinn og mun vera kominn frá Einar, sem var gullsmið- ur á Burstafelli í Vopna- firði snemma á 19. öld. Á hann var Ietrað með gylltunl stöfum Erindring, en enginn veit lengur hverra tryggð steinn- inn batt. Áletrunin fór af, þegar ég setti hann í þrifabað með silfrinu mínu. (Aðeins fyrir húsmæður: hún hreinsar silfrið með því að hleypa aðeins upp á því suðu í alúminíum- potti og lætur í vatnið sína teskeið- ina af hvoru, lyftidufti og bökunar- sóda. Skolar síðan í köldu vatm Ég byrja á að spyrja Guðfinnu um ýmsa Vopnfirðinga, en hún er kom- in í hið heiðríka sálarástand áttræð- isaldursins, sem ekkert vili láu hafa eftir sér um það, sem mörgum þyk- ir skemmtilegast að heyra, sem sé skrýtilegheit náungans. Segist hafa þekkt margt gótt fólk, en sne, hjá hinu, enda oftast fundið á sér fljót- lega illar fylgjur. þar sem þæi voru. Snemma á búskaparárum sinunj bjó Guðfinna, ásamt manni sínum, á sama bæ og karl, er Bjarni hét, Þor- grímsson, og kennd.. var við Vetur- hús síðar. Þegar ég spyr hana, hvort eitthvað sé hæft í þeirri getgátu aQ Bjarni þessi hafi verið fyrirmynd Halldórs Laxness að Bjarti í Sumar- húsum, hleypur henni kapp i kinn, og ég sannreyni, að enda þótt nú séu þrjátíu ár liðin síðan Sjálfstætt fól'k kom út, hafa Vopnfirðingar ekkl enn fyrirgefið Laxness, að hann skyldi hafa tíkina Bjarts lusuga. Þeim finnst mesta óhæfa að bera sér slíkt í munn og neita haiðlega ætterni lúsarinnar við raunveruieik- ann. Eftir þetta er 'ekki von, að ég þori að spyrja hina gömlu, góðu konu um allrosalega sögu, sem ég hef heyrt af Bjarna. Hann átti að hafa misst ráðskonu Aftur myndi ylna lund, óma þögul harpa, ef ég mætti eina stund annafargi varpa. Þannig kveður húsfreyjan frá Teigi í Vopnafirði, sem lét hvorki erfiðan búskap né stóran bamahóp drepa niður sálarfjörið. Síkát og sí- yrkjandi gaf hún samtíðinni nánan gaum og skrifaði niður það, sem henni fannst markvert. Hún tók sér skáldanafnið Erla, því að, „skemmtileg fuglunum ævin er, sem ástfangnir vagga í trjánum sér og vængléttir svífa um heiðloft há, en horfa á jörðina ofan frá.“ Ég hitti Guðfinnu Þorsteinsdóttur á heimili dóttur hennar, sem auð- sjáanlega hefur það, sem enskir kalla „grænan þumalfingur" því að hjá henni breiðir Hawairósin úr sér og jarðarberin verða risastór. Guð- finna, sem nú er 74 ára, er á fal- legum upphlut. 1 stkyrtunni hefur sína um hávetur í frosti og fanna- lögum, en þar eð hann áttti óhægt með að þvælast með líkið langa og örðuga til byggða, skaut hann þeirrj gömlu upp á dyraloft. Þar var húú gaddfrosin er gestir komu næst a bæinn. Aðra sögu af Bjarna, senj mun vera sönn, fann ég í sagna- safni, sem Guðfinna gaf út árið 1958, Hún er eitthvað á þessa leið: Þa§ var komið fram yfir síðustu aldamót. þegar sendibréf fannst á þúfu úti 1 haga á prestssetrinu Sauðanesi á Ö44 ItHINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.