Tíminn Sunnudagsblað - 19.09.1965, Page 13

Tíminn Sunnudagsblað - 19.09.1965, Page 13
gera stíflur miklar og fyrirhleðslur á fjöllum, og er með þeim hætti safn að saman vatni úr ám og lækjum á þremur vatnasvæðum. Var þetta þó erfiðleikum bundið, því að bergið í fjöllum er víða sprungið og lekt. Austur af Vestmannahöfn er þröng dalskora, Heijarauga, og rennur þar fram á, sem á upptök sín langt inni á fjöllum, en fær auk þess vatn úr óteljandi lækjum úr báðum hlíðum. Eitt uppistöðulónið er í þessari dal- skoru. og vatnið leitt úr því i píp um um fremur skamman veg að afl stöðinni. Vatn það, sem safnað er saman á hálendinu sunnan og norð an við þessa dalskoru, fer aftur á móti um jarðgöng, sem sprengd voru í gegnum fjallkúpurnar, svo að unnt væri að nýta það. Þannig fær orku verið vatn úr þremur aðfærsluæðum V. Vegurinn frá Vestmannahöfn ligg ur suður Straumey endilanga til Þórs hafnar, að miklu leyti á fjöllum uppi. Þetta er mjög góður vegur, megin- hluti hans malborinn, en þó er kafli malbikaður sunnan til. Ekki er hann þó alveg fullgerður, og á fjallinu milli Koliafjarðar og Kaldbaksbotns er lækur óbrúaður, er bifreiðar kom ast ekki yfir. Verða því þeir, sem fara akandi frá Vestmannahöfn eða Þórshöfn, að fá aðra bifreið á móti sér að þessum læk. Mun það v< ætlun Færeyinga að brúa ekki þenn an læk fyrr en vegurinn er allur full gerður, því að þeir óttast slys, ef hömtulaus umferð hefst meðan á honum eru kaflar, sem eru mun miórri og ógreiðfærari en meginhluti hans. Það er vafalaust harla dýrt að gera þennan veg. Mjög víða hefur orðið að sprengja hann inn í berg í brekk um og hlíðum fjalla, og að því er enn unnið að kappi, þar sem hann hefur ekki náð fullri breidd. Þetta hamlar því ekki, að hvarvetna er höfð við hin mesta snyrtimennska og natni. Hvergi er skilið eftir opið sár við þennan veg. í kanta alla og flög, sem myndazt hafa, er annað tveggja sáð grasfræ eða þakið yfir, Og það eru ekki einungis vegakant arnir, sem eru hlaðnir upp. Alls stað ar þar, sem landinu hallar, hefur verið gerð steinrenna ofan við veg inn, og upp frá henni hefur síðan verið hlaðinn kampur eftir þörfum, svo að ekki sé hætta á því, að jarð vegurinn skríði fram. Vandvirknin er sýnilega mikiu meiri en tíðkast við vegagerð hérlendis og tvennt óiíkt, hve Færeyingar gæta þess bet- ur að umrót það, sem fylgir slíkri mannvirkjagerð, valdi ekki spjöllum á landi og gróðri. Vegamálastjórinn færeyski varð að hlusta á mörg lofs- yrði af munni okkar íslendinganna, þegar við hittum hann í Þórshöfn, HANS A. DJURHUUS: Havið sang um Föroyar Havið sang um Föroyar í túsund, túsund ár brúðarsöng og líksáim, sang um gleðibros og tár. Ljóðið barst um skorarnar og fleyg um tindar hátt. Havið sang um Föroyar tá longu heystarnátt. Havið sang um Föroyar — í hjómi bergið vóð, omanfyri tindarnar björt störnulindin stóð. Síðar komu aldurnar og hvirlaðust í ský. Havið sang um Föroyar tá beisku vetrartíð. Havið sang um Föroyar. Og havsins feigdarlag hoyrdist inn í bygdirnar ein gráan ódnardag. Kámoygd gjördust fljóðini, tó folin sótu tey: Bátur burtu — maður farin — lívsins eydna deyð. Havið sang um Föroyar. og havsins Ijóð tað var, sum í sálmasongi vára sál at himni bar. Halgikvöld í kirkjuni vit sungum Gudi tökk. Sungu við, tá báturinn í brotasjógvj sökk. Klokkuljóð og brimdun bóru saman hvörja stund, vóru okkum kærari enn fleyr við Oyrasund. Harrin gekk á aldunum, tá náttin fjaldi vág. Havið sang um Föroyar, væ| vit skiltu songin tá. Havið sang um Föroyar, um róðrabát og skeið, sang um beisku norðurferð og blíðu suðurleið, fylgdu tí vit másanum, sum flýgur millum lond fataðu tó havið best á hesi bardu strond. Havið sang um Föroyar sitt eyma, mjúka lag, bivandi og higstrandi — og hvirr vit hoyrdu tað, sótu still á sandinum og vistu neyvan av, at vit bóru ástartrá til Föroya fría hav. Havið sang um Föroyar, og havið syngur enn, brýtur inn um skerstokk millum vásaklæddar menn. Fýkur fon um tindamar og hvirlast hvítt um drang, syngur hav um Föroyar, sum havið altíð sang. Syng tú, hav, um Föroyar, syng fagran song I kvold, syng um stríð og váðaferð, og tak so tíni gjold. Fostraðir av brotinum og berginum í senn líta vit í ódnina, vit havsins royndu menn. Hoyrt vit hava havsins dun frá fyrstu vöggustund. Og til tess vit berast út í deyðans langa blund lýða vit á íðubrot og sjóarfallsins drátt. Eiga vit í barminum tí havsins megnarmátt. X I M I N N — StNNUDAGSBLAÐ 053

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.