Tíminn Sunnudagsblað - 17.07.1966, Blaðsíða 11

Tíminn Sunnudagsblað - 17.07.1966, Blaðsíða 11
Úr HornaflrSI. (Ljósmynd Páll Jónsson) Línudráttiurinn gekk vel, en- afli var tregur. Sigilingin heim á leið gekk áfailalaust í fyrstu, þó hægt yæri á vél einu sinni eða svo. Eitíihvað var rætt um það um borð að ganga vel frá öllu laus- legu. Við öllu mátti búast, er nálgast tæki ósinn, en ekki virt- ist nein sérstök ástæða til að vera með frekari varúðarráðstaf- anir en vant var. Hásetarnir þrir voru I hásetaklefa, en vólstjóri og formaður i stýrishúsi. Þegar Bára er stödd á siglingaleiðiuni S.V. frá Þinganesskerjum og nokkrar bátslengdir ófarnar af þeirri leið,''sem varasömust er tal in, sjá þeir, sem í stýrishúsi eru, að mjög stór brotsjór tekur sig upp vestan við bátinn og stefna holskeflunnar er beint á hann. Formaður snýr í skyndi stefni Báru í sjó — þó ekki beint — heldur beitir hann bakborðakinn- ung í sjóinn, af ótta við að stýr- ishús og allt ofan þilja geti sóp- ast brott með sjónum. Sýnt þótti, að ekki varð undankomu auðið. Þessi feikna holskefla, á hæð við siglutoppa Báru og íhvolf eins og þær verstar geta orðið, ógnaði með sínum ægikrafti, og hamingjan ein mátti vita hvernig fara mundi. Báran mætir örlögum sín- um sterkbyggð, en lítil á nútíma mælikVíarða, — eins ög smáhnoðri í hafrótinu. Hún lyftist fyrst upp á brotið, en svo er eins og kippt sé undan henni skorðum og hún hafi engan flöt að síanda á. Hún snýst undan sjónum í stjórnborða en síðan með miklu afli á hlið- ina, svo siglutré nema við sjó. Ifolskeflan æðir yfir og allt hverf- ur sjónum manna. Rétt áður en brotið skellur yf- ir bátinn heyra þeir sem í háseta- klefanum halda sig undarlega há- væran gný og finna að eitthvað er öðruvísi en á að vera. Þeir verða varir við að bátnum er snúið og slegið af vél og einn hásetanna stekkur upp í lúkars- kappann til að athuga, hvað um er að vera. Þegar hann lítur út, er sjórinn í þann veginn að skeila á bátnum. Hann sér, hvað að fer og finnst hyggilegast að forða sér sem fyrst niður aftur. Um Ieið og hann fer niður, sér hann að lóðabalar úr bakborðs- gangi hefjast á loft og eins og svifi í boga upp og yfir stýris- *hús bátsins. Síðan verður allt óljóst, hvað gerist. Allt lauslegt í hásetaklefa fer á fleygiferð — það heyrist braka og bresta í tré. Nokkrir menn hafa fylgzt með ferðum Báru frá því hún fór að nálgast landið. Menn eru staddir í Hvanneyjarvita í u.þ.m. 500 m. fjarlægð frá þeim stað, er sjór- inn reið yfir bátinn. Nokkrir menn eru staddir uppi á Miklu- eyjarþúfu, svonefndri, einum bezta útsýnisstaðnum yfir ósinn, í nágrenni Hafnarkauptúns. Þar á meðal tveir bræður formanns og vólstjóra á Báru og faðir þeirra. Einnig urðu vitni að þessu skipsmenn á v.b. Sporði, sem var í tæpra 100 m. fjarlægð frá staðn- um. Allir stara þessir menn, lostn- ir skelfingu, á sjóinn kaffæra bát- inn — sjá hann hverfa — og þeir standa á öndinni drykklanga stund, að þeim finnst, augu þeirra hvanfla leitandi um úfinn sjóinn — Báru er ekki að sjá á yfirborð- inu. Allt í einu sjá mennirnir í Hvanneyjarvita eitfchvað rautt í vatnsskorpunni, botninn á Báru kemur í ljós — kvikan brotnar yfir rekaldið — sem smáhæbkar í sjónum og loksins brýtur bátur- Framhald á bls. 597 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 587

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.