Tíminn Sunnudagsblað - 17.07.1966, Side 21

Tíminn Sunnudagsblað - 17.07.1966, Side 21
Framhald af bls. 593 hins ber að gæta, að til skamms tíma var hér ekkert nema sveitalíf og ekki nógu mikil tradisjón komin á Reykja- vík, en ég hef lítið að athuga við hin- ar svonefndu „kerlingabækur," sem raunar er ekki séríslenzkt fyrirbrigði. Annars tel ég,, að skáldsagan lúti eng- um landfræðilegum lögmálum, hún fjallar fyrst og fremst um manneskj- una, ekki um einstaka staði. — Hvernig lízt þér á ástand og horfur í íslenzkum nútímabókmennt- um? — Hér ríkir ótvírætt millibils- ástand, margt nýtt er að koma fram. Ljóðræna í óbundnu máli getur ver- ið mikill skáldskapur, og eins getur verið um leirburð að ræða, þótt ort sé undir dýrum háttum. Um ádeilu- verk hef ég það að segja, að mér finnst ádeilan þurfa að hafa algilda merkingu til þess að hitta í mark. Það hefur oft eyðilagt tendensskáld- sögur, að persónur eru notaðar í sér- stökum tilgangi og skemma þannig fyrir heildaráhrifum. Höfundur þarf að vera hlutlaus gagnvart þessu öllu. Þá eiga ýmis ung og efnileg skáld við þann vanda að stríða að trúa of mikið á form sem slíkt. — Skáld- sagan verður að hafa skáldsöguform til þess að kafna ekki undir nafni, og hið sama á við um smásögur. En annars hef ég ekkert á móti tilraun- um og tel til góðs, að nokkur hreyf- ing sé á þessum málum. — Þú ert þá bjartsýnn á varð- veizlu íslenzkrar menningarhefðar. — Já, ég tel ekki ástæðu til þess að óttast lok gamallar menningar- hefðar, þrátt fyrir ýmis óheillavæn- leg erlend áhrif svo sem hermanna sjónvarp og annað í líkum dúr. En þess vegna verða allir, sem hugsa um íslenzka menningu, að vera vel á verði. — Nú hefur mikið verið rætt um úthlutun listamannalauna að und anförnu. Hvaða leiðir telurðu væn- legastar í þeim efnum? — Ég held, að fastar slarfsreglur fyrir úthlutunarnefnd sé það, sem vantar. Ég sé ekkert á móti því, að neíndin sé þingkjörin, þó að sumir telji, að slik nefnd megi ekki hafa pólitískan lit. Það er alltaf erfitt að útiloka sérsjónarmið, og isma-póli tík myndi varla reynast betri. Mér þætti eðlilegt að þeir, sem eiga lang an starfsaldur að baki og hafa skilað miklu og góðu verki, njóti sæmi- legra fastra launa. Þá þyrfti að styrkja þá lislamenn vel, sem fram eru að koma, því að það er mikils virði fyrir unga menn að geta farið utan, dvalizt með erlendum þjóð um og víkkað sinn sjóndeildarhring. — I-Ivað segir þú um hugmyd þá, sem .fram hefur komið um stofnun akademíu? — Ég hef lítið hugleitt það mál, en eftir því sem mér hefur virzt í Danmörku og Svíþjóð, kynni það að vera til gagns. Hitt er svo ann að mál, að kollegar ættu aldrei að úthluta ríkisstyrk til kollega. Það hefur verið reynt og gefizt illa. — Er ekki ærinn munur á því að vera rithöfundur á íslandi og í Danmörku? — Vissulega er það. Persónulega þarf ég ekki að kvarta viðtökum hér heima, en ritlaun hér geta aldrei orðið há sökum fámennis. Það eitt finnst mér ærin röksemd fyrir ríf- legum styrkjum, og ég held, að ekki sé á neina listgrein hallað, þótt sagt sé, að fámennið sé verst fyrir rithöfunda af öllum listamönnum. Viðurkenndir rithöfundar í Dan- mörku hafa alltaf örugga sölu. Þar eru alltaf á ferð agentar héðan og handan og engum vandkvæðum bund ið að fá þýtt. Aftur á móti eru fá- ir erlendir bókmenntamenn, ' sem skilja íslenzku, og ég tel, að einangr un málsins sé erfiðastur þröskuldur í vegi íslenzkra rithöfunda. — Hvaða skoðun' hefur þú á fyr irhugaðri nýskipun á útlánsrétti bóka safna? — Það er óhjákvæmilegt að færa þessi mál til samræmis við norræna löggjöf um þessi efni. Nýskipunin ætt að vera til bóta, en tíminn mun skera úr því. — Þá langar mig að spyrja þig, hvað þú sért með á prjónunum um þessar mundir? — Ég er nú að þýða skáldsögu mína um Valtý á grænni treyju á dönsku, og svo er ég auðvitað með sitthvað í huga, sem of snemmt er að tala um. Mig hefur lengi langað til þess að skrifa nútímaskáldsögu, en ekki veit ég, hvað úr verður. Und anfarin ár hef ég átt við veikindi að stríða, en er nú komin yfir þau og ætla mér ekki að slíðra pennann í bráð, segir Jón að lokum. I.S. Sjávarháski Framhald af bls. 587 inn af sér ok sjávarþungans og kemst á réttan kjöl. Um borð i Báru var ömurlegt um að litast — línur og bótfæri vöfðust um bátinn frá siglutoppi að sjávarfleti. Sjö línubelgir voru fastir við „sa!ningu“ á aftursiglu. ÖIlu lauslegu hafði skoilað fyrir borð og lunningin stjórnborðsmeg in horfin. — Framsig’lan brotin sundur, en á sínum stað. — Bóm- urnar dingluðu lausar — kaðlar sem héldu þeim höfðu slitnað. í hásetaklefa var allt á tjá og tundri. Hringir ad eldavél og kola glóð höfðu markað brunabletti í loft hásetaklefa og lágu nú ima. í kojum skipverja. Stýrishúsið hafði staðizt sjóinn að mestu, en allar rúður þar voru brotnar. í vélarrúminu hafði allt gengið úr skorðum — ekkert lauslegt á sínurn stað Sjór hafði komizt í bátinn, en minna en búast mátti við. Þegai formaður og véistjóri verða þess varir, að báturinn er að komast á‘ réttan kjöl, grípa þeir báðir til þess að gefa vél- inni fullan kraft áfram. Hún hafði gengið allan tímann síðan bátur- inn fékk á sig sjóinn. Báturinn rífur sig upp, og þeir þ'-kjast úr helju heimtir. En sjaldan er ein báran stök. Er þeir leggjast á stýrið og hyggjast sveigja bátn- um inn á ósinn. fór vélin að þyngja ganginn, og að lokum stöðvast hún alveg Þeir gera sér grein fyrir því, hvað að er. — Línur o-g bátfæri, sem voru allt í kringum bátinn hafa lent í skrúfunni — og nú virðast allar bjargir bannaðar. Stormur og straumur bera nú bát og menn í áttina til hinna ógnvekjandi Þing nesskerja austan við ósinn og hér má engan tíma missa. Bátverjar stökkva að akkerinu, losa um það og koma því út. — Keðjan rennur á eftir og viz. sem tengd- ur var keðjunni. Til allrar ham- ingju nær akkerið festu í botni, og það strengist á vírnum, en sífellt nálgast þeir skerin. Nú er fátt góðra ráða. Skipverjar, sem sáu slysið, snúa á brott frá staðn- um. Bát og vél er ekki treyst í þær aðstæður, sem þarna eru. Að hleypa upp í sand var ekki fýsilegt og varla hægt. Veður fór versnandi. Bátverjar hugsa til lands og hvort þaðan væri hugs- anleg björg-un, en þeim kemur saman um, að enginn mundi fara um ósinn nú. Allar bjargir virt- ust bannaðar og brotin á Þinga ness-kerjum varð meira en báts- lengd aftan við Báru. Hér varð eitthvað óvænt að koma til og svo lengi er von sem lifir. Af Miklueyjarþúfu hafði verið fylgzt með því, sem gerðist, og þegar sást að báturinn var kom- inn upp og rak undan straum og vindi, var brugðið hart við til að leita eimhverra ráða til björgun- ar. Sennilega mun flestum hafa komið eitthvað svipað í hug. — Hvanney! Hún var með nýju afl- miklu vélina og auk þess — þar um borð voru menn í þess orðs fyllstu merkingu. Gætu þeir ekki bjargað Báru, var lítil von. Þangað var farið, tíðindin sögð og það var engin fýluför. Þeir tíminn - sunnudagsblað 597

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.