Tíminn Sunnudagsblað - 02.04.1967, Blaðsíða 7

Tíminn Sunnudagsblað - 02.04.1967, Blaðsíða 7
Fyrir nokkrum árum skeln tor- tryggnin úr hverju andliti. í bænum, þar sem þessi mynd var tekin, hafa bændur hafið sam- vinnubúskap og komiS upp vín- samlagi, sem frelsar þá af kiafa vínberjakaupmannanna. um við mafíuforingjana og raun ar verið liandbendi þeirra. ★ Daníló dylst þess ekki, að sumt hefur breytzt til batnaðar. Fólkið hefur skárra fæði, það er dálítið byggt af sómasamlegum húsum og börn eru víða fleiri ár í skól- um en áður. En því miður bygg ist þetta ekki á því, að fólkið beri meira úr býtum heima fyrir. Þetta er ávöxtur af batnandi kjörum á meginlandi Evrópu. Peningarnir koma að verulegu leyti frá Sviss, Þýzkalandi og Norður-Ítalíu. At- vinnulausir menn hafa komizt að raun um, að arðvænlegra er að fara í vinnu á fjarlægum slóðum en ganga í flokk ræningja í fjöll unum. Síðasta áratug hefur hálf milljón Sikileyinga leitað sér at- vinnu í öðrum löndum. í sumum fjallabæjum er nú ekki eftir nema helmingur íbúanna. En Sikileyj- ingar unna heimastöðvunum. Þeir senda ættingjum sínum heima pen inga og Iáta gera við híbýli sín. En þetta er ekki nein lausn á vand anum — aðeins líkn í bili. Þetta mun meira að segja hefna sín grimmilega. Unga fólkið streymir burt og fjölskyldur tvístrast. Og oft farnast því illa á ókunnum slóð um. Ólæst fólk og óskrifandi fær lágt kaup og vonda vinnu. Það lærir ekki mál þeirrar þjóðar, sem það er á meðal, og það botnar ekkert í því, sem gerist í kringum það. Annað tveggja týnist það eða kemur aftur heim rótarslitið og unir hvergi upp frá því. Þegar Daníló settist fyrst að i Partinícó, þorði enginn við hann að tala, svo að opinbert yrði. En þess voru dæmi, að menn komu til hans á laun og fitjuðu upp á því, hve þorpið vantaði sárlega gott vatnsból. Sikileyskt máltæki er á þessa leið: „Vatnið er okkar ann ar guð“. Og víða stendur þar vatnsskortur byggðarlögum fyrir þrifum. En óttinn við mafíuna var svo ríkur, að enginn þorði fyrir sitt líf að láta það vitnast, að hann hefði talað við Daníló um þessi mál. Það voru ekki lítil tíð indi, er hafizt var handa um stíflu gerð milli kalkklettanna í Jató- dalnum. Og fólkið vissi, að þar var það að vinna að miklu hagsmuna máli, enda er mál manna, að sjald an hafi vinna á Sikiley verið sótt af jafnmiklu kappi af eins fjöl mennum flokki verkamanna og þar starfaði. Jatódalurinn er líkur mörgum öðrum giljadrögum á Sikiley. Þar er allt þurrt á sumrin. En á vetr um rignir mikið á Sikiiey, og þá fossar vatn um öll gil og skorn- inga. Kynstri af vatni fer þá til spillis. En nú á að fylla Jatóadal inn af vatni á vetrum, og nota það síðan til þess að vökva gróður- blettina fram eftir sumrin. En ekki fagna allir þessu nýmæli. Víða á Sikiley er þar gróðavegur að flytja vatn á staði, þar sem vatnsskortur er, og þegar þurrkar eru í meira lagi, getur vatnið komizt í ótrúlegt verð. Vatnsmarkaði okraranna er spillt með hverri stíflu og hverju vatnsbóli, sem komið er upp. Og þeir eru annað tveggja úr flokki mafíumanna eða greiða þeim verndarskatta. Þess vegna er það víða hverju ódæði háskalegra að að impra á stíflugerð. Stíflugerðin í Jatódalnum hófst ekki að frumkvæði stjórnarvalda eins og eðlilegt kann að virðast, heldur gegn harðri mótspyrnu þeirra. Daníló braut hana loks á bak aftur árið 1962. Hann greip til þess rétt einu sinni að fasta, og Víða um lönd hafa veriS mynduS samtök, sem afla Daniló fjár og stySja hann í starfi. Sænska Daníiónefndin kostar nú framfaraáætlanir hans í nítján sveitar- félögum og hefur í hyggju að bœta sex við. Myndin er frá vínsamlaginu, sem nefnt er hér að ofan. TÍMINN- SUNNUUAGSBLAÐ 271

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.