Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 02.04.1967, Qupperneq 20

Tíminn Sunnudagsblað - 02.04.1967, Qupperneq 20
UNNUR EIRÍKSDÓTTIR: APRÍL Konan vaknaði í seinna lagi „Vatt sér fram úr rúminu, hreyfingarn- ar hraðar og ákveðnar. Hún fór úr náttkjólnum og lét renna í baðkerið. Eiturgrænt baðherherg ið varpaði hjákátlegri birtu á harð an líkama hennar, en það sá hún ekki. Gott að vera búin að eignast þessa íbúð. Hún gæti vel rúmað meira en eina manneskju, til dæm is aðra konu á svipuðum aldri, sem líka ynni úti. Jafnvel heil- an karlmann. Það var samt óttaleg fyrirhöfn að hafa karlmann hjá sér alltaf. Ef hún hefði glæpzt til að gift- ast feimna hásetanum — eina manninum, sem hafði viljað eiga hana, en var svo feiminn, að hann þorði ekkert nema drekka fyrst. Og það meira en lítið. Hinir höfðu ekki viljað eiga hana. Nei. Enginn. Ekki heldur þegar hún var yngri. Heppnin hafði einatt fylgt henni. Mest þá, þegar hún fékk háa vinn inginn. Þá keypti hún íbúðina. Það slakar ekkert á taugunum að fara í bað. Hún þurrkaði sér vandlega, burstaði hárið, sem hún hafði haft í ljósum lit frá því um hátíðir. Málaði þunnar varirn- ar dökkrauðar og lagði bláan skugga á augnalokin. Allra þokkalegasta piparkerl- ing. Hún sá sjálfa sig í miskunn arlausu ljósi, þegar hún leit í speg ilinn. í dag verð ég að gera eitt hvað. Strax i dag. Einhvern fjand ann. Hann mætti vera kominn núna, feimni hásetinn. En hans var ekki að vænta. Og það var henni sjálfri að kenna. Ekki hugsa, ekki núiia, alls ekki of mikið. Grá dragtin fór henni fremur vel, háhælaðir skór og lítill, blár hattur: Út. Hitta fólk. Kannski hitti hún einhverja kunningja í bænum. Hún gekk allt Austurstræti, Bankastræti, allan Laugaveginn. Mætti engum. Hún fann til þreytu í fótunum og veifaði leigubíl. Upp í ríki og keypti ákavíti. Síðan heim. Blandaði víni og vatni í stórt vatnsglas og bar inn í stofu. Fyrstu soparnir voru bragðvond ir. En þetta fór batnandi. Þessir laugardagar, þegar hún átti jú allan daginn. Holir og tómlegir dagar. Langir eins og saumarnir á kjólunum, sem hún saumaði fimm daga vikunnar. Drekka. Og aftur í glasið. Gera eitthvað. Hún skipti um föt, fór í svart an, fleginn kvöldkjól. Eyrnalokkar, ilmvatn, hálsfesti. Hún skoðaði spegilmynd sína: Veslings kona, hvað gagnar þér ilmvatn eða eyrnalokkar. Þú kemst ekki frá sjálfri þér, aldri þínum. Ekki heldur taumlausu vorinu, sem umlykur þig. Ekki einmana kenndinni. Það er þýðingarlaust að hugsa, enn verra að horfa á spegilmynd sína. Bezt að fara í Naust. Hún hringdi á leigubíl. í Naustinu sá hún tvenn hjon, sem hún þekkti. Þau buðu henni ekki að borðinu til sín. Hún gekk af stað til dyranna. Sýndist öll borð setin. — Afsakið, ég má víst ekki bjóða dömunni glas af víni? Hún þurfti ekki að líta við til þess að vita útlit mannsins. — Ég er hér einn. — Þökk fyrir, en aðeins eitt glas af einhverju léttu víni. Hann leiddi hana að borði og pantaði vín. —Mér finnst alltaf svo nota.egt hérna. Hún sagði þetta til að segja eitthvað. —Já, og maður getur meira að segja fundið hér ithyglisvert fólk, forvitnilegt, ef ég má orða það svo. Eins og yður núna til dæmis. — Ég er mjög hversdagsleg. Ég var hér að litast um eftir vjn- konu minni. Hún er »kki hér, svo ég ætlaði að fara strax heim aft ur. Konu leyfist ekki að sitja einni að drykkju á skemmtistað. Mann- orðið. Það er ekki margt, sem má. Ég á við, að það er ekki inaigt, sem kona má. — Konur ættu ekki að láta slikt aftra sér, sagði maðurínn — Við lifum aðeins einu sinni, eins gott að fá eitthvað út úr því. — Ég er yður sammála að vissu marki. En konan verður að gæta sín, hún fær harðari dóm en karl maðurinn. — Já, hjá kreddubundnum heimskingjum. Ekki hinum, sem eiga víðsýni, heimsborgurum. Hún virti hann fyrir sér. Hann var að líkindum á sextugsaldri — feitlaginn, öruggur í framkomu, vatnsblá augun, ekki sérlega djúp. Hvað um það: Hún var þó ekki ein. Gæti tæpast afborið aprílkvöld ið ein. —Það er eitthvað sérstakt í fari yðar, sagði hann. — Erfitt að lýsa í hverju það er fólgið. — Ég held, að ég sé mjög venju leg. — Það getið þér ekki dæmt um sjálf. Karlmenn hljóta að taka eftir því. Einhver dul í augnaráð inu, óljósir drættir kringum munn inn. Nei. Þér eruð ekki venjuleg. Skál fyrir því. —Skál. Harðgiftur, fremur heimskur. Leiður á konu sinni, vanur kvenna veiðum. Guð minn góður, núna, í april. Þegar maður er svo varnailaus, einmana, þyrstur. Og svona eintak af karlmanni. Eina ráðið að drekka nóg. Skítt með timburmennina á morgun, sunnudagurinn var einskis virði hvort sem var. —Þér eruð auðvitað harðgift, kannski marggift? —Nei, hvorugt! —Merkilegt. Hefði hún gifzt feimna hásetan- um, ætti hún sennilega börn. Þyrfti að vakna í fyrramálið, og matreiða handa fjölskyldunni. Sussa á krakk- ana, þegar þau ösluðu pollana og báru óhreinindi inn í húsið. Svo, eftir hádegið, færi fjölskyldan í bíl- ferð út úr bænum. Drekka. Drekka meira. — Já, þér eruð óvenjuleg kona. Ég sá það strax. Engin hversdags- manneskja, hugsaði ég, þegar ég kom auga á yður. Ég er þakklátur forsjóninni að láta okkur hittast. Og það var áreiðanlega engin til- viljun, sem réði því. Yður skjátlast. Forsjónin hefur lít- ið skipt sér af mér. Og 284 TÍM-NN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.