Tíminn Sunnudagsblað - 28.05.1967, Síða 7

Tíminn Sunnudagsblað - 28.05.1967, Síða 7
Eitt af því, sem sjálfstæð þjóð verður að eignast, er þjóðfáni. ís- lendingar voru teknir að sækja fast á um það, að þeir fengju sérstak- an fána viðurkenndan, og fána- málið var eitt af því, sem Ung- mennafélag Akureyrar beitti sér fyrir. Komu fram þar nyrðra hug- myndir um ellefu fánagerðir, en að lokum urðu menn á einu máli um að kjósa bláan fána með hvít- um krossi. Stúdentafélag Reykja- víkur hafði þá einnig ákveðið að berjast fyrir bláum fána með hvít- um krossi, en sá var munur á, að krossinn í fána sunnanmanna var mun mjórri en Akureyringar hugs- uðu sér hann. Fékk Ungmennafé- lag Akureyrar fána sinn samþykkt- an á mjög fjölmeonum, almennuin fundi á Akureyri og skrifaði síðan öllum hreppsnefndum, framfara- félögum og ungmennaféiögum, sem þá höfðu verið stofnuð í land- inu, bréf um fánamálið. Nálega sextíu aðilar gerðu samþykkt um málið, og reyndust þeir miklu fleiri sem aðhylltust fánagerð Stúd entafélagsins. Ritstjórar margra Reykjavíkur- blaða höfðu boðað til Þingvalla- fundar um sjálfstæðismálið, og skyldi hann haldinn í lok júnímán- aðar 1907. Varð þetta langfjól- mennasti allsherjarfundur, sem nokkru sinni hafði verið haldimi á Þingvöllum þau sextíu árin, sem liðin voru að slíkir fundir fóru að tíðkast. Hnigu samþykktir þessa fundar á þá leið, að ísland skyldi vera frjálst land í konungssam- bandi við Dani með sáttmála, er báðir aðilar gætu sagt upp, fáni Stúdentafélagsins verða þjóðfáni íslendinga og íslenzkur þegnréttur upp tekinn. Áður en þetta gerðist hafði Bjarni Jónsson frá Vogi haldið fánaræðu á Lögbergi. Hann komst svo að orði um framtíðarlög þau, sem rituð skyldu í hjarta Islend- inga: „Það er fyrsta grein laga vorra, að hverjum íslendingi er skylt að vilja, að ísland nái aftur fornum frægðarljóma sínum og sjálfstæði, — og að víkja aldrei. Sú er næsta grein laga vorra, að oss er öllum skylt að vona, að ísland nái aftur fornum frægðarljóma sínum og sjálfstæði, sem það hefur bezt átt. Þriðja grein laga vorra er sú, að oss er öllum skylt að berjast fyrir því, að frægð og blómi lands vors verði sem mestur á ókomnum tím- um og sjálfstæði þess fullt og ó- skert. En þeir menn, sem berjast með erlendu valdi gegn rétti þess- arar þjóðar, og þeir, sem eigi vilja berjast með þjóðinni — þeir menn skulu verða gerðir þjóðernislausar vargar í véum. Þessi framtíðarlög íslands les ég í hugum yðar, og eru þau undir öllum öðrum lögum og yfir þeim, undirstaða og yfirlögmál" Að ræðulokum sneri hann sér að fána, sem blakti yfir höfði hans á Lögbergi, og mælti: „Og hér er fáni sá, sem borinn skal í broddi fylkingar vorrar. Af- hendi ég hann hér kjörnum full- trúum þjóðarinnar til sóknar og varnar og helga hann að Lögbergi, en það köllum vér að löghelga. Eigi undrar það mig, þótt nú sé gleðisvipur og sólarbros yfir Þing- velli, því að nú renna hér saman sólminningar gullaldarinnar og vorvonir framtíðarinnar, og nú er: Dögg í dölum og dögg á bölum, sól á fjöllum og sól á völlum, gróður á grundum og gróður í lundu: Nú er í landi líf og andi“. Og vissulega var líf og andi í landi. Stjórnmálamennirnir voru TÍMINN — SUNNUDAGSBLAÐ 463

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.