Tíminn Sunnudagsblað - 28.05.1967, Qupperneq 11
Sjónvarpið er ekki stofnun,
sem lætur berast fyrir blæ og
báru. Það heldur að sjálfsögðu
áfram að kynna nýju réttrit-
unarreglurnar sínar, en fer þó
ekki svo geyst, að mönnum sé
ofraun að nema nýmælin: Á
dögunum kenndi það okkur, að
framvegis á að skrifa „munntu“
og nú vitum við líka að rita
skal „mannstu". Spyr nú mað-
ur mann, hvort ekki muni líka
eiga að skrifa „fávisska“, og er
sjónvarpsúrskurðar um það beð
ið með vongleði.
Sjálft musterisblómið, Símon
dýrlingur, sem flestir héldu
fremur hafa gáfur sínar í hncf-
unum en höfðinu, er raunar
liðtækur brautryðjandi hins
nýja orðafars, enda ekki vork-
unn, þegar hann hefur annað
eins fólk sér til fulltingis og
„Lauru“, sem lék með honum
listir sínar á föstudaginn fyrir
hvítasunnu. Allir geta séð,
hversu miklu snjallara það var
að segja, að „Laura“ væri
„veð“ á skipi ,,mokríks“ skálks-
ins heldur en kalla hana gisl
eins og tíðkazt hefur í slíkum
tilvikum, og frumleg tilbreytni
var að tala um „að ganga að
mönnum dauðum“ (þótt lif-
andi væru). Það er kannski ekki
stórbrotin mannlýsing, þó að
sagt sé um pilt, að hann sé
„sætur og huggulegur" (fer
samt vel á sjónvarpstjaldi), en
hitt liljóta allir að játa, að eng-
inn meðalmaður leggur sögu-
fólki sínu í munn jafnhniðmið-
aða setningu eins og þessa:
„Hann er ruddalegur og glans-
andi.“ Ekkert tiltökumál ;ar,
þótt „Laura“ greyið væri „reið
út í“ unnustann, og vildi held-
ur „mann, sem er spennandi“,
og var svo fyrir að þakka, að
henni auðnaðist „að flækjast
inn í“ margt, drekka „frítt
kampavín" og láta „bjarga sér
frá skaða“. Torskildara er, að
hún skyldi „hata kappakstur“.
En svona var það og skal ekki
vefengt:
Annar eins maður og
Oliver Lodge
fer ekki með neina lygi.
\
En „afsakið músir“ (bersýni-
lega miklu haganlegri fleirtölu-
mynd en mýs) — það lá við,
að grallaraspóarnir gleymdust,
og er þó þeirra kenning
fögur: „Drengileg keppni er
mest um verð“. Þótt svo sé,
getur samt verið full ástæða
til þess að spyrja: „Kennir þér
til?“ — Það ríður á að hafa
fagurt málfar fyrir ungviðinu
eins og annað gott, og spóar
þessir láta sannarlega ekki sitt
eftir liggja.
Svo sáum við líka, hvernig
menn „klifrast upp“ kletta, og
svo varð að „sýna þeim um“,
þegar upp var komið.
Nú hefur sjónvarpsmálfarið
orðið svo rúmfrekt, að úthýsa
verður öðrum að mestu —
„setja þá út undan“, eins
og stundum segir í blöð-
unum. Þó getum við vik-
ið að þeirri nýlundu, sem
Vísir heldur maklega á loft:
Starfsmenn þess blaðs höfðu tal
af forráðamanni fiskimjölsverk-
smiðju, sem sagði, að „mjölinu |
væri safnað saman ómöluðu inn I
í húsinu11. í Morgunblaðinu var "
frásögn af manni, sem tapaði h
peningum, er „fyrirtækið fi
treysti honum fyrir“. Þjóðvilj- |
inn beitir sér fyrir þeirri endur- I
bót, að menn segi heldur ,.í ára- 1
vís“ en árum saman. Og Tím- I
inn flytur fréttir um „litlan f'.ug S
völl i Suðurvogi á Vágeyju".
Hée má að lokum nefna, að
einu Reykjavíkurblaðanna var
það nokkur þyrnii í auga
hér á dögunum, að í
prentuðu máli meðal Engil-
saxa hafði hegningarhúsið
við Skólavörðustíg verið kail
að Skolav Ordgustgur Pns-
on, ein af grannsvePum
Reykjavíkur Moszpeltzneit og
kaupstaðir á Austurlandi Nisk
austathor og Saidixfgordor
(Hins vegar var ekki getið um
Rickydicky Kanajina). En fara
þessi nöfn ekki bara vel á papp
ír, og hver er kominn til bess að
segja nema þau venjist prýði-
Iega? Einmitt þesaa sömu daga
unnu íslenzku blöðin líka að þvi
að klæða staðanöfn sams konar
spariflíkum. Færeyjar bar á |
góma í fréttum um þetta leyti,
og viti menn: Kernur þá ekki
upp úr kafinu, að þar eru bvggð
ir, sem nefnast Parkeri, Hove,
Vág og Sunnbar, og reynir nú
á Færeyinga, hve fljótir þeir
eru að tileinka sér nýnefni Jafn
vel „Suðurvogur á Váseyju“
hefur heitið Sörvágur i Vágum,
en verið á íslenzku stundum
nefndur Saurvogur í Vogum eða
Saurvogur á Vogey. Og nálg-
umst við þá fræði Barða heit-
ins Guðmundssonar um saur-
býli, svínarækt, Freysdýrkun og
skáldskap. Að þvílíkum nafn-
giftum hefði sá, sem íiííndi
eina byggðina á Suðurey
Parkeri, einnig mátt leiða hug-
ann, sér til glöggvunar.
□
T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
467