Tíminn Sunnudagsblað - 31.03.1968, Side 5

Tíminn Sunnudagsblað - 31.03.1968, Side 5
SySri-Vellir í Kirkjuhvammshreppi, þar sem Soffia Jónatansdóttir gekk um garSa í nær fjórðung aldar. Ljósmynd: Vigfús Slgurgeirsson. Vigdísarstöðum, og varð sá mót- leikur Jóhanns, að hann vistaði til sín h'jú vorið 1860, þótt engin hefði hann búsfórráð, er heitið gætu, annaðhvort með samþykki foreldra sinna eða í trássi við þau, sem líklegra er. Hjúin sótti hann ekki að þessu sinni í ættarvé konu sinnar eins og hann hafði gert meðan allt lék í lyndi þeirra á miili, heldur að Syðri-Völlum. Það voru hálfsystkinin Soffía Jónatans- dóttir og Jónas Daníelsson, sem nú komu að Vigdísarstöðum. Virðist mega af ýmsu ráða, að Syðri-Valla- fóik, einkum Guðrún Loftsdóttir, móðir systkinanna, hafi ekki verið andsnúin þessu. Ef til viil hefur (það talið skásta lausn á löngu og hvimleiðu þrátefli, að Jóhann og Soffía næðu saman, ef svo mætti verða. Bersýnilega hefur það verið ætl- un Jóhanns að bola Guðfinnu, konu sinni, brott af heimiiinu, og fékk það ekki einu sinni haggað þessari ákvörðun hans, að rétt áð- ur en Soffía kom að Vigdísarstöð- um andaðist annar tveggja sona þeirra hjóna „úr tauga- og .sára- veiiki“. Það var yngri drengurinn, Björn. Kallaði Jóhann ástkonuna bú- stýru sína, en Jónas mun hafa átt að vera þeim til halds og trausts á heimilinu, því að nú var svo hreðusamt orðið, að Soffiu hefði varla verið vært einni í húsunum, er Jóhann þurfti að bregða sér af bæ. Guðfinna tók þangaðkomu hennar óstinnt upp, og fólk henn- ar á Litla-Ósi, sem skamma leið átti að Vigdísarstöðum, lagði af skiljanlegum ástæðum fæð mikla á Jóhann og Soffíu. Soffía var ör í lund og hörð í 'kröfum og aUgóðu vön af heimili móður sinnar. Mun hún hafa gert sér vonir um, að fljótt myndi draga til úrslita, er hún var kom- in að Vigdísarstöðum. Sú varð þó ekki raunin á. Guðfinna hafði ein- sett sér að vikja ekki af hólmi, hvað sem á dyndi, og storkaði elju sinni sem mest hún mátti. Jóhann kveinkaði sér aftur á móti við að reka konu sína beinlínis að heim- an, enda kunna foreldrar hans að hafa ha'ldið yfir henni hUfiskildi. Þótti Soffíu seint vinnast sitt mál og fylltist óþreyju og gremju, sem fæddi af sér brigzl og ásakanir við látlausar skærur þeirra kvenn- anna. Bitnaði þetta á Jóhanni, sem snerist öndverður við þessum veðraibrigðum, svo að af spruttu deil'ur milli ffáns og ástkonunnar. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 221

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.