Tíminn Sunnudagsblað - 31.03.1968, Side 14

Tíminn Sunnudagsblað - 31.03.1968, Side 14
Mýtur að bera ávöxt út yfir gröf dauða, enda grundvöltuðu Friðrik og hans samhenti lífsförunautur, Guðlaug Pétursdóttir, fyrstu, en væntanlega ekki síðustu tónlistar- deildina við almenningsbókasafn hérlendis. Þau arfleiddu Hafnarfjarðarsafn að um það bil tvö þúsund bókum, sem þau áttu, mest lútandi að tón- list. Um hana hafði Friðrik safnað öllu innlendu, sem hann náði í, og verður sumt þeirra bóka ekki met- ið til fjár, svo sem gamlir gráílar- ar. Og það var ekki látið þar við sitja að raða bókum hins músík- alska dánumanns snyrtilega í hill- ur. „Við vorum svo heppin“, segir Anna, „að í gjafabréfinu var þess óskað, að. Páll Kr. Pálsso^i organ- * isti tæki að sér umsjón 'þessarar deildar, og hefur hann reynzt okk- ur stoð og stytta.“ Og þó að deildin hafi nú aðeins verið opin í tvö ár, er búið að bæta um fimmtán hundruð hljóm- plötum og töluverðu af bókum og nótum við hinn upprunalega stofn. Pátl fór strax á stúfana og leitaði að gömlum, íslenzkum plötum og nótnaheftum á hanabjálkum og í kjallarageymslum hljóðfæraverzl- ana í Reykjavík, item fylgdist hann með því, sem á boðstólnum var hjá einstaklingum. Hraðgengar plötur eru lánaðar út, hálfan mánuð í einu, og kem- ur fólk viða að til að notfæra sér þessa þjónustu. En gamlar, 78 snúninga plötur eru vandlega geýmdar. „Hver er elzta íslenzka hljóm- platan?“ „Líklega sú, sem Einar Hjalte- sted söng inn á í New York rétt fyrir 1920“, segir Anna, „en okkar elztu plötur eru frá því 1930. En Páll hefur á prjónunum að fá leyfi til að hljóðrita þær plötur, sem ekki fást keyptar.“ Því auðvitað er til segulbands- tæki í þessu safni. Og svo á að gera meira. Það á að útbúa litla klefa með heyrnartækjum, þar sem fól'k getur hlustað á hverja þá tónlist, sem það kærlr sig um Það skortir sem sagt ekki hug- myndirnar og aðeins er beðið-eftir auknu húsnæÖi — og fjárveitingu til að hefjast handa. Á eftir förum við'heim til Önnu, sunnar í bæinn, að drekka kaffi í rólegheitum. Hún lærði að aka í vpr sem leið, og býður mér upp í Iítinn, nýjan Skóda. ^„Ertu ekkert taugaóstyrk?“ Nei, hún er sallaróleg við akst- urinn. í sumar ók hún vinum sín- um á vit angandi, norðlenzkra birkiskóga og háfjallasólar, þvi sá er frjáls, sem er á bíl. „En auð- vitað get ég ekkert gert við hann sjálf“, segir hún. Margir jafnaldrar Önnu eruliálf ragir við að nota sterka liti inni hjá sér og halda sig gjarna víð brúnt og grátt sem aðalþátt. En hún hefur gluggatjöldin heiðgul og bólstruðu húsgögnin blá, næst um eins og hjá Gauguin, og á veggjunum eru líflegar myndir í óhefðbundnum stíl, meðal annars eftir abstraktmálara staðarins, Ei- rík Smith. Og kaffið er borið fram í eldrauðum leirbollum eftir ís- lenzka listakonu. Þetta gefur heim- ilinu unglegan svip. Maður hennar, ljóðaþýðandinn Magnús' Ásgeirsson, lézt fyrir þrettán árum. Upphaflega var það 'hann, sem ráðinn var að safninu, en veikindi, sem hann stríddi við síðasta áratug ævinnar, urðu tl þess, að hún tók að sér æ meira af störfum hans þar. Um stund röbbuðum við um listamannalíf almennt. Okkur kem ur saman um, að það sé sterkum sveiflum háð, aldrei lognmolia. Með fiáum er hægt að eiga skemmtilegri stundir, því margir eru þeir andríkir og fyndnir. Þeg- ar gleðin ber að dyrum, þá opna þeir upp á gátt fyrir henni og hún rí.kir ein. En það getur líka brugðið til á hinn veginn, og þá verða sveif’l- urnar jafn sterkar, „því gleðin er bara upp á kvöldist u nd a rk rít, en bvölin löng eins og skuldin. . . .“ Listin er dýrkeypt. Það liggur við, að listamaðurinn úthelli eig- in hjartablóði — og sinna nánustu. Kannske getur maður ekki skilið lífið, nema hafa sjáltfur kafað nið- ur í dýpstu dreggjar og það gerist ekki sársaukalaust. En um eigin ástamál fæst Anna ekki tl að tala. „Flókin ástamál hafa lengi loð- að við konur ættarinnar“, segír bún og hlær við, „að minnsta kosti frá dögum Guðnýjar frá Klömbr- Páll Kr. Pálsson við virginalið, 230 TÍIBINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.