Tíminn Sunnudagsblað - 22.09.1968, Blaðsíða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 22.09.1968, Blaðsíða 2
Þíjtur í skjúnum Ég hef það fyrir satt, að um langan aldur hafi hugsuðir velt því fyrir sér, hvaða rök stjórni gerðum manna. Menn hafa ým- ist gert sér í hugarlund, að þau byggju í þeim sjálfum eða væru ráðsályktun einhverra dul arafla, himneskra eða jarð- neskra formyndara eða einvalda sem öllu stýrðu í stóru og smáu. Seinustu aldir hafa margsinnis orðið rökræður um það, að hve mi'klu leyti skýringa kynni að vera að leita í líffræðilegum eigindum og áhrifamætti Umhverfis og samfélags. Aldrei hefur sú spurning kannski ver- ið áleitnari en nú, hvers vegna atferli manna er svo farið sem raun ber vitni, ef til vill sökum þess, að aldrei hafa þeir verið hræddari við sjálfa sig en nú. Því veldur geigvænleg tækni, sem verður æ stórkostlegri, við- tæk þekking, sem ekki styðst við aukinn, andlegan þroska Á seinustu tímum hefur verið fitjað upp á nýrri vísindagrein, sem sinnir rannsóknum á með- fæddu, eðlislægu atferli dýra. Markmið þessara rannsókna er að finna þau atferlislög- mál, sem kunna vera sameigin- leg mönnum og dýrum, ákvarða dýrið í manninum, finna hina fyrndargömlu erfð, sem maður- inn losnaði ekki við, þótt hann risi upp á afturfæturna, og enn kann að stjórna athöfnum hans að meira eða minna leyti líkt og dýrsins á mörkinni. Fjöldi manna í mörgum löndum fæst nú við slíkar rannsóknir með ýmsum hætti. En það kemur kannski ekki á óvænt, að álykt anir, sem þeir draga af niður- stöðum sínum, að svo miklu leyti sem unnt er að tala um niðurstöður, hníga ekki allar að sama ósi. Líffræðingar, sem við þetta viðfangsefni glírna, festa flestir augun meira á frumstæð um hvötum og eðli manna en áunnium þroska. Sálfræðingar og félagsfræðingar margir ætla mátt umhverfisins þyngri á metunum, ekki sízt þeir, sem aðhyllast þjóðfélagskenningar Marxs, og er þar löngum bent á þá staðreynd, sem ekki verð- ur um villzt, að maðurinn megnar að breyta því umhverfi, sem hann lifir í, og endurskapa það að ákveðnu marki. Honum hefur auðnazt að hefja sig úr villimennsku og semja sig að flóknum þjóðfélagsháttum. Það segir sína sögu um það, hve ákaft menn leitast við að kanna þessa leynivegu, að í Englandi komu í fyrra út ekki færri en þrjár stórar bækur um þess konar rannsóknir. Einn þessara höfunda, Róbert Ardray, sem vill nefna þessa fræðigrein „hina nýju líffræði", rís mjög öndverður gegn félagsfræði- legri túlkun á hátterni manna. Öll bók hans stefnir að einu marki: Að leiða rök að því, að ríkasta eðlishneigð manna og dýra sé að eiga og verja land eða blett. Lykillinn að atferli þeirra og viðbrögðum er fólg- inn í því, segir ,hann að láta sér skiljast, að þetta eru svæð- isbundnar verur. Ályktun hans er sú, að mannlegir þjóðfélags- hættir séu í mestu samræmd við svæðiskennd og eignareðli manns í þeim löndum, þar sem kapítalismi má sín mest, svo sem Bandaríkjunum, en fjærst þvílíkum frumhvötum, og þar með manneðlinu sjálfu, i sam- eignarlöndum. í framhaldi af þessu telur hann stríð eðlis- bundna nauðsyn og skilyrði þess að maður geti lifað og dafnað Styrjöld Bandaríkjamanna 1 Víet Nam fordæmir hann þó, þar eð þeir létu sér sjást yfir það, er þeir hættu sér út i hana, að eðlislæg svæðiskennd Víet-Nama verður ekki vopnum vegin fremur en aðrar frumstæð ar e^lishvatir. „Nakinn api“ heitir bók eftir Desmond Morris. Hann lýsir homo sapiens, sem einni 193 apategunda. Hann fjallar einn- ig um efnið frá líffræðilegu sjónarmiði, og ber manninn, apann nakta, saman við loðna hálfbræður sína, sem hann seg- ir fyrst og fremst frábrugðna þeim að því, að hann hafi tvö líffæri stærri, annað ofan þind ar, en hitt neðan. Hann jafnar saman atferli manna og apa, og meðal annars kemst hann að þeirri niðurstöðu, að innantómt málæði samkvæmisgesta í kokk teilboðum sé samkynja atferli apa, þegar þeir leita hver öðr um lúsa, fellt að samfélagshátt- um nútímamannfélags. Fleiri eru í bókinni þær skýringar og ályktanir, sem kunna að koma undarlega fyrir sjónir, og skal þess þó getið til þess að taka af hugsanlegan vafa, að atferi- isfræði er vísindagrein höfund- ar. íuúðja bók heitir „Maður og apar“, höfundur Leonard Willi- ams. Hann segir frá rannsókn- um sínum á háttum apa og leið- ir hann rök að því, að apar hafi hver og einn sinn persónuleika líkt og menn. Þessi persónu- leiki er eðlislægur, en þó mót- aður af umhverfinu. Markmið höfundar er að sýna fram á ná- inn skyldleika manns og apa og sameiginlegar erfðir. En hann dregur ekki jafndjarfar ályktan- ir af niðurstöðum sínum og hin- ir tveir. Hann segir þó, að yfir- ráð karldýrsins séu náttúrleg í samfél^gi apa, en í því samfé- lagi, sem maðurinn hafi búið sér, styðjist þau ekki lengur við náttúrleg rök. Þessar þrjár bækur eru kannski fyrst og fremst vitnis- burður um það, hve þessi unga vísindagrein á langt í land. En margt er skemmtilegt í þessum fræðum, þótt þorri manna hugsi sig sennilega um, áður en þeir játast þeim, sérstaklega þeim niðurstöðum, ,sem sýnilega er reynt að komast að til fram- dráttar einhverjum þjóðfélags- stefnum. Samt sem áður er mjög líklegt, að rannsóknir á atferli dýra kunni síðar meir að varpa ljósi á eitt og annað í fari manna. J.H. 722 ItUINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.