Tíminn Sunnudagsblað - 22.09.1968, Blaðsíða 10

Tíminn Sunnudagsblað - 22.09.1968, Blaðsíða 10
Þetta er Óíafur. Tungu, hjá heiðurshjónum, sem hétu Guðmundur og Hólmfríður. Nokkrum misserum síðar réðst hann vinnumaður til Hjartar Lín- dals og Pálíriu Jónsdóttur á Efra- Núpi í Miðfirði. Efra-Núpsheimilið var allstórt, Hjörtur var hrepp- stjóri og sýslunefndarmaður og Ólafur var þar viðloðandi í tólf ár. „Fyrstu átta árin var ég vinnu- maður og gat með því önglað sam- an fyrir lausamennskubréfi. Mig minnir, að lausamennsbuleyfið hafi kostað fimmtán krónur og sjálft bréfið tvær að auki. Og þá var ég orðinn frjáls maður! Nei, ég á bréfið ekki lengur. Það brann í bókakofforti með bænum hans pabba á Hvammstanga. Það var eftirsjá að þeim bæ. Hann var vinalegur, ekki stór, tvö stafgólf og eldhús. Mesfu undur, hvað var hægt að tuskíisft í þess- um þröngu húsakynnum, Þetta var utarlega, kauptúnið aðeins í hvarfi og einn dag þegar pabbi hafði far- ið út á Hvammstanga, komst neisti úr reykháfnum í þekjuna og kveikti í henni. Stjúpa mín varð um seinan elds- ins vör, og ekkert bjargaðist-nema einhver rúmföt. í koffortinu brunnu Ferðabók Þorvaldar Thor- oddsen og sextán rímnaflokkar. Fleira og fleira. Og Ólafur segist einu sinni hafa grafið sig í fönn á Hrútafjarðar- hálsi og kveðið Svoldarrímur til að halda sér vakandi. „Ég var að koma vestan af Borð- eyri' með fjörutíu potta olíubrúsa um nótt, þegar á skall sótsvarta hríð og sá ekki út úr augunum. Ég var orðinn þreyttur og ákvað að bíða birtu, gróf smáholu í snjóinn og settist par niður, en hafði staíinn minn í handarkrikan- um og lét hann standa upp, svo hægt yrði að finna mig, ef ég dræp ist. Það snjóaði fljótlega yfir mig. Ég var blautur í fæturna, svo ég reyndi að hafa þá á sífelldri hreyf ingu og tautaði rímnaslitur fyrir rnunni mér til að sofna ekki: . . . brostinn er með nauðum nú Noregur þér úr hendi. .. Ólafur Tryggvason og Einar þambarskelfir héldu á mér hita, eftir þrjá fjóra tíma fór morgun- birtuna að leggja niður snjóinn til mín. Það er merkilegt hvernig ljósið smýgur í gegn, ég gæti bezt trúað, að um hádag væri lesbjart undir fönn. Ég kraflaði mig gegnum snjó- þekjuna, sem á mig hafði lagzt um nóttina, og var enn hríð og all- mikið frost. Varð mér fljótt hroll- kalt, en komst heim heill á húfi.“ Svo segist Ólafur eiga mörg spor in á Tvídægru, ýmist að sækja fé og fleira suður í Hvítársíðu eða haldið áfram og gengið út á Akra- nes eða austur í Þingvallasveit. „Mikið breiðabæli, Tvídægra, maður lifandi" segir hann. „Og undir færðinni komið hvernig gekk. Einu sinni var ég ekki mik- ið meira en sex klukkutíma suður yfir. Þá var allt á hjarni og norð- an stormur í bakið, sem létti mik- ið undir. Annað sinn var ég sex- tán tíma norður yfir, færðin var svo slæm. Þá kom ég úr Reykja- vík, stuttu fyrir jól Tók bát til Akraness og gekk síðan á tveimur dögum upp að Þorvaldsstöðum, fremsta bæ í Hvítársíðu. Klukkan að ganga sjö um morgun lagði ég á heiðina. Dimmt var í lofti og lausasnjór mikill. Þegar ég kem norður á svokáll; aðar Lambavörðuhæðir byrgist allt af þoku og lognmuggukafaldi. Færðin afleit og langur vegur fram undan. Sjálfsagt skynsamlegast að snúa við. En ég hélt áfram og hugsaði um það eitt að halda réttri stefnu. Engan hafði ég áttavitann, en úrið mitt kom að góðu gagni. Ég hafði nefnilega sett mér á- kveðin kennileiti, mest hóla, og vissi hvað ég var vanur að vera lengi milli þeirra. Væri ég ekki á réttum hól á réttum tíma, hlaut eitthvað að hafa farið úrskeið- is. Nú var færðin svo vond, að ég varð að ætla mér ríflegan tíma, en þama fór ég á Lambatungur og norður á Skjaldarhæð og á Valdimarshól, án þess að lenda í villu. Svo ætla ég á Böðvarshaug, og geng unz mér finnst, að sam- 730 1ÍH1NN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.