Tíminn Sunnudagsblað - 22.09.1968, Page 15

Tíminn Sunnudagsblað - 22.09.1968, Page 15
V Vogurinn í Bjarneyjum. ( Bjarneyjum var fyrrum verstöS mikil. einkum í norðanátt. En um stór- strauma, þegar sjór er hálffallinn eða kannski rúmlega þáð, fara tangamir, sem mynda hann, í kaf og verður þá aðeins eftir flá vík eða bugur inn í eyna, sem vestan- brimið nær að fylla og gengur þá óbrotið á land eftir vild. Er þá ó- lendandi í Vognum og betra að hafa alla báta á þurru. — Hef ég hvergi séð hætbulegri lendingu í verstöð nema ef til vill á Hjalla- sandi. — Fremsti hluti tanganna, sem mynda Voginn — þegar um vog er að ræða — heita Tástein og Gauti. Er Tásteinn á syðri tangan- um, en Gauti á þeim nyrðri. Leið- in í Voginn liggur um sundið milli þeirra félaga, þó nær Tásteini. Sundið er ekki mjög mjótt, en verra er, að í því er rif eða treggjaldi, sem kemur upp ur sjó um hverja stórstraumsfjöru, og verður þá alls ekki í Voginn kom- izt. Er það mikill galli. En þegar flýtur yfir rifið og sloppið er inn- fyrir það, er öllu borgið. Tekur þá við sléttur sandpoliur, en upp af honum brimsorfin malarfjara með rifum og hleinum alla leið upp í bakka. — Þegar komið var að á aðfalli og gott var í sjóínn, voru bátarnir oft látnir fljóta í Vognum meðan gert var að aflan- um og sjórinn hækkaði. Við það styttist setningurinn til rnuna. En •væri ekki hægt að bíða eftir því, að sjórinn stytti þannig setning- inn, varð að taka bátana langt niðri í Vog og setja þá yfir rífana og hleinarnar alla leið upp á gras í naust. Hefur til skamms tíma sézt fyrir níu naustum í grasbakk- anum upp af Vognum. Óefað hafa þau verið fleiri fyrrum. En djúp kjalför í klöppunum niður allan og segja sögu um langan setn- ing og bakverk þreyttra vermanna um tíu alda skeið. En þrátt fyrir hina torsóttu leið í Voginn, gátu góðir sjómenn og kunnugir staðháttum lengi lent þar, þegar flaut yfir rifið. Aðrir skyldu ekki reyna þar við lendingu í vestanátt. — Það voru einkum Suður-Breið- firðingar, sem sóttu róðra í Hösk- uldsey haust og vor: Dalamenn, Skógstrendingar og Helgfellingar. Heimamenn reru þaðan vitanlega meira og miniia allt árið. Síðast var róin haustvertíð frá Höskuldsey árið 1934. Þá gekk það an aðeins einn bátur. Var formað- ur á honum Jónas Pálsson, þá flutt ur úr Höskuldsey og orðinn vita- vörður í Elliðaey. Hásetar hans voru allir úr Helgafellssveit. Þetta verður að nægja um sjó- sókn frá' Höskuldsey á þessum vettvangi, og er þá mikið ósagt. — Þó að Höskuldsey hafi upphaf- lega verið byggð sem verstöð sök- um þess, hve stutt var þaðan á fengsæl fiskimið, hefur hún líka verið ábýli, a.m.k. á seinni öldum. Árni Magnúson og Páll Vída- lín geta þar þriggja ábúenda árið 1702, en ekki var nema einn þeirra búsettur í eyjunni. Og lengstum hefur verið þar aðeins einn bóndi. Bóndabærinn stóð þar, sem heitir Blikahóll, skammt upp frá miðj- um Vognum. Það var höfuðból eyjarinnar. Fyrsti bærinn, sem Jónas man eftir á Blikahól og faðir hans bjó í, var gamall og fornfálegur torf- bær, samt öilu reisulegri og rýmri en búðirnar, sem áður er lýst. Hálfþil var í honum og sneri s'tafn- inn í suðurátt. Á þilinu var lítill gluggi og annar í baðstofuþekj- unni móti vestri. Baðstofan var fjögur stafgólf á lengd, undir reisifjöl og löng göng til hennar frá útidyrum. Á bak við baðstof- una var allrúmgóður skáli, hlað- inni úr torfi og grjóti. Moldargólf var í húsunum. Allt timbril í bæn um hafði áður verið í síðasta bæn- um í Kiðey, og var því komið til ára sinna. — Vitanlega var Höskuldsey ekki mikið ábýli. Um stærð hennar er áður getið, og enginn hólmi eða eyja liggur undir hana. En nokk- uð bætti það í búi, að hún átti ítök í ýmsum jörðum í landi. T.d. móskurð í Berserkjahraunslandi, selstöðu í Staðarbakkalandi, húsa- torfuristu í Ögri, raftvi&arhögg í Drangaskógi og hagagöngu fyrir tólf ær í Grunnasundsnest. Á móti þessu kom, að nefndar jarðir áttu ítök í Höskuldsey, s.s. frit búðar- Vogurinn í Höskuidsey um fjöru. T 1 M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 735

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.