Tíminn Sunnudagsblað - 30.09.1972, Síða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 30.09.1972, Síða 13
Svo segir Jón i Yztafelli i ritinu Byggð- ir og bú, þar sem lýst er jörðum og ábúendum i Suður-Þingeyjasýslu. Stöng var reist i Gautlandalandi norðan undir Sandfelli, en af þvi, þótt lágt sé, er afar við og fögur sýn yfir Mývatnssveit, norður um dali og fjöll, vestur yfir Heiðina og suður um Sel- lönd, Ódáðahraun, til Herðubreiðar og Dyngjufjalla og allt til Vatnajökuls. Fellið er fagurgróið að norðan allt á koll, en að sunnan hrjóstugra með melum. Þannig eru hæstu fellin á Heiðinni, til að mynda Jafnafell litlu vestar. Bæjarstæðið er i fellsfætinum við stóran mýrarflóa, sem Gautlönd og Helluvað eiga lika og heita þar Gaut- landamýri, Stangarmýri og Grófar- mýri, Þar hefur Ræktunarfélag Mý- vetninga ræst fram og breytt stórum fláka i sameignartún allmargra bænda, sem hafa litil túnstæði heima i kreppu hraunsins við vatnið. Þó er fimm km leið frá Stöng til Gautlanda og Helluvaðs, en miklu skemmra til eyðibýlanna Stóraáss, suður með Sandfellinu, og Hörgsdals vestan mýr- arsunds norðan undir Jafnafelli. En gefum nú Kolbeini orðið. — Ertu fæddur á Stöng? — Nei, en ég kom þangaö bráðung- ur. Faðir minn var á nokkrum bæjum i Kinn á fyrstu búskaparárum, m.a. i Fellsseli og Fremstafelli og þar er ég fæddur. Foreldrar minir fluttust siðan i Bjarnarstaði, sem var býli i heiðinni beint suður af Gautlöndum, en fór sið- ar i eyði og hefur nú verið endurreist sem nýbýli og heitir Heiði. Þar bjuggu þau fjögur ár og fluttust siðan i Stöng 1904. — Voru þá gömul bæjarhús? — Já, en ekki mjög gömul. Þar var baðstofa allstór i tveimur hólfum, og ég man það enn, hve mér fannst þetta stór salur og hve hátt bergmálaði i honum tómum.er ég kom þar fyrst inn á gólfið. A hlaðinu var ævagömul skemma, ótrúlega traustlega viðuð, vafalitið byggð af Jóni Hinrikssyni. Hún var að minnsta kosti eldri en önn- ur bæjarhús. — Hvernig heldurðu, að nafnið Stöng sé til komið? — Ég veit það ekki með neinni vissu, en hef heyrt ýmsar getgátur. Hér var ekki býli áður og engin gömul veggjalög að sjá eftir beitarhús eða sel, en staðurinn hét samt Stöng áður en byggt var. Ég held að sú tilgáta sé komin frá Jóni Hinrikssyni, að leið um þessar slóðir hafi fyrr á öldum verið vörðuðbirkistöngum úr skógi, sem hér var áreiðanlega mikill fyrrum, eins og miklir bálkar rétt neðan við þykka öskulagið þarna i mómýrunum sýna. Þéssar leiðarstangir hafa staðið mis- Sunnudagsblað Tímans Kolbeinn Ásmundsson, smiður og bóndi á Stöng. jafnlega lengi, og menn hafa getið sér þess til, að þarna hafi væn stöng staðið öðrum lengur, og staðurinn siðan kenndur við hana. En auðvitað er þetta aðeins getgáta. — Hvað heillaði mest i bernskunni, Kolbeinn? — Það var nú margt, en ég var aldrei búhneigður og verð þvi vist að kallast föðurverrungur að þvi leyti, þvi að faðir minn var búfræðingur og hélt dagbækur og búreikninga. Ég þekkti varla nokkra kind, og þótti vist ódæmi. Systkini min voru miklu bú- hneigðari, og Kjartan bróðir minn, sem hér hefur búið á móti mér, hefur auðvitað verið miklu meiri bóndi. En ég var sifellt að tálga og klambra eitt- hvað á drengsárum, og alltaf að skera mig i fingur. Þá komst ég upp á það að fara að bæjarbaki og núa sárinu i myglumold i veggjarbroti. Þetta stöðvaði blæðingu, og aldrei fór illt i sárin. Það skyldi þó aldrei hafa verið hið fræga efni pensilin i þessari myglu? Þaö kom i ljós siðar, að þau lyf áttu afar vel við mig, en hins vegar .virtust súlfalyfin svonefndu mér eitur i beinum. — Naustu einhverrar skólatilsagn- ar? — Heldur var litið um það, en heimanámið var gott, og nokkuð um bækur, til að mynda úr lestrarfélag- inu, bæði i Mývatnssveit og á Heiðinni. En ég komst einn vetur til smiðanáms á Akureyri og vann þar á verkstæði hjá Guðbirni Björnssyni. Þar smiðaði 733

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.