Tíminn Sunnudagsblað - 30.09.1972, Page 15

Tíminn Sunnudagsblað - 30.09.1972, Page 15
Hannes M. Þórðarson: SUMARNÓTT Ljós er nóttinjygn er áin, létt af heiðarbrún. Fer um láðið friðarboði, faldar grænu tún. Þú ert hraust og ör af æsku, áfram gengur , nær. Brún er kinn og blómavarir, blika augun skær. Hárið flæðir herðar yfir, höndin smá og þétt. Bringan hvelfd og bakið mjúka býr þér tiginn rétt. Reisn i spori, fim á fæti, fljóðið ástamáls. Armar þinir fast og fastar falla mér um háls. Kossar þinir kæta sinni, komin ertu ein tryggðaheits að tala máli, trúin er svo hrein. Ljúf er stund og lokkar þinir leika mér i hönd. Við sjáum glöggt og sækjum beint sólar inn á lönd. þina trúlofunarhringi? — Nei, ekki var það nú. Ég átti danskan tuttugu króna gullpening sjálfur, hafði eignazt hann á unglings- árum og hélt fast i hann. Þegar menn voru að fala hann hjá mér, sagðist ég ef til vill þurfa að nota hann sjálfur. Að þvi kom lika sem betur fór. Þegar ég festi ráð mitt fór ég til Þórðar gull- smiðs á Akureyri og bað hann að selja mér hringa. Hann dró fram gott safn af ýmsum stærðum, en þá kom i ljós, að hinir stærstu hringir Þórðar voru alltof þröngir á mina fingur. Ég hef alltaf verið svona fingradigur. Þórður sagðist fátækur af gulli og spurði, hvort ég gæti ekki útvegað gull i hring. Þá kom danski hlunkurinn minn sér vel, og gullið úr honum var meira en nóg i hring handa mér. Þórður átti hæfilegan hring handa konunni, og einhver afgangur varð af gullinu úr peningnum. — Blandaðir þú ekki geði við unga fólkið á Heiðinni á þessum árum? — Jú, ég var eiginlega i tveimur sveitum, með annan fótinn á Heiðinni og hinn uppi i Sveit. Á vetrum var oft hlemmifæri um heiðina, og var þá ým- ist hægt að fara á skautum, skiðum eöá hestasleðum. Heiðafólkið hafði sinar skemmtisamkomur og skiptist á um að halda þær á bæjunum, þar sem húsakynni voru nokkur. Ég man að ég dansaði af miklu fjöri i baðstofunni i Brenniási oftar en einu sinni. Við gáfum lika út skrifað blað, sem hét Heiðir. Helgi i Hörgsdal skrifaði æði mikið i það. Við höfðum lika lestrarfé- lag. og bækurnar gengu milli bæja á Heiðinni, en siðan seldum við þær öðr- um lestrarfélögum og keyptum nýjar. Einnig var gott að leita i bókasafnið á Skútustöðum. Ég fór þangað æði oft að sækja mér bækur, einkum ef ég gat bundið skautana á mig i bæjardyrun- um heima og rennt mér upp i Skútu- staði. eða út um alla sveit. Skautar voru aðeins samgöngutæki hjá okkur Mývetningum. Ég man ekki til þess, að við værum að leika okkur á skaut- um. nema þá helzt smákrakkar. Mý- vetnsku skautarnir voru með sérstöku lagi. heimasmiðaðir. Beygjan á járn- unum náði langt fram af trénu og var mjög stór og há, svo að skautarnir flugu vel yfir ójöfnur á is og hjarni. Sama var að segja um skiðin. Þau voru aðeins göngutæki, og menn höfðu einn staf sterkan vel. En um 1910 yarð á þessu breyting. Þá dvaldist norskur maður i Reykja- hlið við simaviðgerðir. Siminn hrundi beinlinis niður á Fjöllunum fyrstu ár- in. ef nokkuð varð að veðri. Fyrsti vir- inn var mjúkur eir og þoldi enga is- ingu. Siðar var skipt um vir. Þessi norski maður hafði norsk skiði og not- Sunnudagsblað Tímans aði tvo stafi. Hann pantaði fyrir menn slik skiði, sem þóttu afbragð, og þá breyttist þetta til batnaðar. —• Var ekki stundum villugjarnt i hriðum á Heiðinni? — Jú, ekki er þvi að neita. Hriðar- veður urðu þar mjög dimm, svo að ekki sá fram fyrir tær. og þegar allt var á kafi i snjó, var litið um kennileiti að átta sig á. en viðáttan mikil, og tækju menn ranga stefnu, gátu þeir lent fram á öræfi. Ég lenti oft i dimmu, en vilitist sjaldan. Ég get þó eiginlega ekki gert mér grein fyrir þvi, hvernig á þessari ratvisi stóð. Hún var eins og ósjálfráð. Maður lagði stundum af stað i myrkri og muggu eftir vinnudag ofan úr Sveit, en rambaði alltaf á bæinn. — Urðu þá engar meiri háttar villur eða mannskaðar, sem þú manst eftir á Heiðinni? — Ég man ekki eftir, að menn yrðu«‘ þar úti menn þegar Kristin Berg- sveinsdóttir, kona Guðlaugs Þór- steinssonar i Stóraási varð úti. Þetta var um eða upp úr 1920. Þá skall snögglega á kafaldsbylur. Guðlaugur var i kaupstaðarferð, og Valdimar sonur þeirra annaðist féð og var úti. Kristin var hálflasin i rúminu, en rauk á fætur og út i bylinn. Hún varð úti skammt frá bænum. Þetta var hörmu- legt slys. Ég man vel eftir þessum byl. Veður var stillt, bjart og fagurt fyrri hluta dags. Ég hafði bundið á mig skauta i bæjardyrum eins og stundum áður og ætlaði að skjótast upp i Skútustaði eftir bókum. Þegar ég kom i Gautlönd var Kristjana Pétursdóttir, siðar skóla- stýra á Laugum, þá ung stúlka, að leggja af stað á söngæfingu upp i Sveit, og ætlaði að fara á reiðhesti Péturs föður sins, miklum gæðingi og vel járnuðum. Við lögðum saman af staö úr hlaði og allir dáðust að veðrinu. En 735

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.