Tíminn Sunnudagsblað - 30.09.1972, Page 22

Tíminn Sunnudagsblað - 30.09.1972, Page 22
Norska þjóftin hefur svaraö spurningunni um þaö, hvort hún vilji breyta lifsháttum sinum til samræmis og aöiögunar viö hin stóru þjóöriki Vestur-Evrópu, og hún sagði nei. Þetta norska nei er hiklaust einhver mikilvægasti straumhvarfastaöur í norrænni sögu á þessari öld, og þótt enn veröi ekki séö, hver farvegsbreytingin verður, er engan veginn óliklegt, aö þetta veröi siðar talinn timamóta- viðburður, merkisteinn, i sögu nýrrar, norrænnar félags- og stjórnmálaþróunar. Manni hlýtur beinlinis aö hlýna fyrir brjósti viö aö.fá svo áþreifan- lega og óræka sönnun þess, aö norrænn þjóðfrelsisandi lifi öflugu lifi i Noregi, og vökul þjóöarvitund skuli standa svo tryggan vörð um kjarna og kviku norræns mannlifs og menningar. Það er auövitaö fráleitt að halda þvi fram, aö i þessu norska svari felist úrelt þjóðernisviðhorf eöa einangrunarstefna. Hér er aðeins um að ræða glögga vitund um eöli- leg möj( þjóöasamstarfs. Þaö sam- starfá og þarf aö vera eins og gott sveitafélag, sem styrkir vé og sjálfstæöi heimilanna og fjöl- skyldnanna, en veikir ekki heim- ilisböndin. Þetta norska nei er lika glöggt vitni um ákveðna stjórnmálaþróun meöal almennings, þróun, sem við höfum séö augljósan visi að i is- lenzku stjórnmálalifi. Flokksbönd og miöstjórnarhöft eru að verulegu leyti brostin. Áður gátu öflugar flokksstjórnir með sterka vél áróðurstækja ráðið miklum úrslit- um. Nú hefur fólk með meiri og fjölþættari andlegri samgöngu- tækni náö saman utan þessara virkja meö nýjum hætti, og öflug hreyfing getur myndazt. i Noregi var svo að segja allri hinni grunn- múruöu stjórnmálavél þjóöfélags- ins beitt fyrir EBE-vagninn, niu af hverjum tiu iandsblöðum var óspart beitt. Samt dugöi það ekki. Norska nei-ið getur einnig orðið upphaf að nýjum þætti norrænnar samvinnu, veitt til hennar nýju blóði og fundið henni nýjar leiöir aö mikilvægum markmiðum. Hingað til hefur norræn samvinna að mcstu verið klikusamstarf stjórn- mála leiðtoga. Baráttan fyrir norska nei-inu bendir á þá leið, að almannahreyfingar fyrir ákveðn- um norrænum markmiðum geti náö saman yfir landamæri og framhjá vegum rfkisstjórna og stjórnmálaleiðtoga, og skal þó eng- an veginn gert litið úr þýðingu á samgönguleiöum ríkisstjórnanna. Loks hljótum við islendingar að gleðjast yfir þcim .stuðningi, sem þessi norsku úrslit eru útfærslu fiskveiöilandhelgi, málstaö okkar, sem ekki er aöeins bundinn við okkar strendur, heldur alþjóðlegan framgang. Norska þjóðin hefur með þessu skrefi stigið fram til nýrrar og öfl- ugri forystu i samstarfsmálum norrænna þjóða og hlýtur að gegna þar meira forystuhlutverki en áð- ur. Ömurlegt er að sjá, hvernig leið- togar EBE i Vestur-Evrópu taka þessum úrslitum. Þeir hafa þegar i hótunum, um að Norðmenn muni ekki njóta „vinsemdar” eða eiga kost sæmilegra samninga og sam- vinnu við þessi riki. Þetta varpar ef til vill skýrustu ljósi á kjarna þess- ara samtaka. Hann er pólitiskur, og það er óhrjáleg stefnuyfirlýsing, að sérstakt hugarþel og vináttu- kaup muni ráða því, en ekki cfnis- atriði og málavextir, hvort sæmi- legir efnahagssamningar nást eða ekki. En norska þjóðin hefur vaxið mjög af þessu verki. Hún á þökk og heiður skiiið. — AK. Ósfjöll Framhald af siöu 727 flyttist til Norðfjarðar árið 1924 og ætti þar heima mörg ár. Guðný var glæsileg kona og gest- risin. Ég þáöi hjá henni margan sopann og bitann, þegar ég var i göng- um i Njarðvik. Mér eru minnisstæð æðareggin á vorin. Þau voru mikið sælgæti og saðsöm. Guðný var glaðvær og kunni vel að skemmta sér með ungu fólki, og hún lánaði oft unga fólkinu i Njarðvik stofuna sina til þess aö dansa i. Oft fór ungt fólk þangað, bæði frá Bakkagerði og Nesi, til þess að dansa i stofunni hjá Guðnýju. Systkinin i út- bænum áttu harmóniku og spiluðu vel, einkum Anna G. Helgadóttir. Þarna var oft glatt á hjalla. Siðast sá ég Guðnýju skömmu áður en hún dó hjá Boggu dóttur sinni. Hún hafði gaman af að spjalla um gamla daga i Njarð- vik. Glókollur Framhald af siðu 737. landið fyrir svo sem hálfri öld og gistu góðbændurna, kom ekki ósjaldan fyrir, að þeir fengju að gamna sér við einhverja vinnukonu staðarins nætur- langt. Afleiðing þess gamans varð oft á tiðum barn, En hvernig voru þessar óhamingjusömu vinnukonur leiknar? Börnin voru tekin af þeim um leið og þau fæddust, og þær fengu sjaldnast að sjá þau framar. Og þess var meira að segja ærið oft vandlega gætt, aö móð- erni þessara barna heyrðist aldrei nefnt. Það þótti skömm. En Þórkatla er enn hamingjusöm móðir, og litli bersköllótti sveinninn hennar er orðinn fimmtán vetra sið- hærður bitill. Og henni til mikillar gleði er nú farið að brydda á ýmiss konar uppfræðslu- og kynningarstarf- semi um þessi vandamál lifsins. Hún Þórkatla veit það, að þetta er eina ráðið til þess að forða stúlkum eins og henni Jónu frá þvi að lenda i sálar- kreppu. Lausn á 30. krossgátu ltAfi* 'Ofí L / D nu n fí 2> fí L / K B K I B S'fí V £ s Tfi R /3 UT T i L A) AS> / F'fí RK /? L J 'fí R TftUMfí G'fíT L fíU fí R T Rfí F J K'fí R fí Ú K I t> fí L L R K L fí £fí i> / K 'fiR L FG> fí £ f & fí 2> KR 5 K£ I S fíN G Lfí5 URt IC £ L L H o fí K 'l M fí fítf i F’fí KVos ST'ORQN fíKTríp/ S£K / a ft í> £ £ K/ 742 Sunnudagsblað Tímans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.