Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1973, Blaðsíða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1973, Blaðsíða 13
11 III I iiátliimnnar A'XtS Á þurrum, sólbrenndum berghjöllum i þrjú þúsund metra hæð i vesturhéruðum Bandarikjanna uxu furur, sem litu út sem lifandi beinagrindur. En trén tórðu þó enn og báru græna sprota. Þegar náttúrufræðingar boruðu i stofn trésins og töldu árhringana, varð þeim mikið um. Hve gamalt getur tré orðið? Þúsund ára? Tvö þúsund ára? Öldum saman héldu menn, að elzta tré heimsins væri „mammút-tréð” i Amcriku og var talið fjögur þúsund ára. En fyrir allmörgum árum uppgötvuðu náttúrufræðingar fimm þúsund ára tré. <>*.- IJSDf.tó: \ , 2635 f Kr, íKXeVSXSi ili 9 Á-grrmw z/mx? tm?% 4» «*í»N6 VAOVN íiHí-t 4K' KteHS AM UrWHNS. *** vt .-V,- fiu Eikur verða varla eldri en þúsund ára. Hinum háa aldri sinum ná refaskottsfururnar vegna þess, að viðurinn geymir rotvarnarefni, sem dregur mjög úr rotnun. Meö samanburði við það tré, sem menn töldu áður elzt — mammút- tréð — er refaskottsfuran aöeins dvergur. Elztu einstakiingar þeirra 100 metra háu risafuru eru taldir 3- 4000 ára. Refaskottsfuran fær næringu sina aðallega i leysingavatni, sem sigur af yfirborði i bergsprungurnar. Um hásumariö er hiti og uppgufun svo mikil, að trén ná aðeins næringu á árdegisstundum. Margar refaskottsfururnar sprengdu fræskurn sina á gullöld Babýlonar 2600 árum áður en tima- tal kristinna manna hófst. Elzta furan, sem fundizt hcfur, er 4900 ára. V.V.V.W.'.W.V.VA Venjulega telja skógfræðingar árs- hringi trjáa meö borun. Þaö er ekki taliö samræmast náttúruvernd að saga sundur ævagömul tré og fella þau til þess eins að komast að aldri þcirra. Tréö var kallað refaskottsfura vegna likingar grænu greinanna við það liffæri refsins. Þær uxu ótrúlega hægt. Árshringarnir sýndu, að jók stundum þvermál stolnsins aðeins um einn mm á ári. Sunnudagsblað Tímans 21

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.