Morgunblaðið - 03.05.2004, Qupperneq 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2004 B 3
Á ÁRSÞINGI Körfuknattleiks-
sambands Íslands, KKÍ, sem fram
fór á Selfossi um helgina voru
helstu tíðindin þau að keppnisfyr-
irkomulagi í 1. deild karla verður
breytt með þeim hætti að sigurveg-
arar í deildarkeppninni öðlast rétt
til þess að leika í úrvalsdeild en lið-
in í 2.–5. sæti leika í úrslitakeppni
um eitt laust úrvalsdeildarsæti til
viðbótar.
Að auki var reglugerð um úrvals-
deild karla breytt með þeim hætti
að liðin geta aðeins haft tvo leik-
menn sem eru ekki með evrópskt
ríkisfang, og að auki verður launa-
þakinu sem verður áfram 500.000
kr. á mánuði skipt með þeim hætti
að ekki má nota meira en 3/5 hluta
til þess að greiða leikmönnum utan
Evrópu laun, 2/3 hlutar af launa-
þakinu fara þá í að greiða öðrum
leikmönnum liðsins laun.
Það var samþykkt á þinginu að
auka kröfur um skil á tölfræðiupp-
lýsingum úr leikjum og frá og með
næsta keppnistímabili verða lið í 1.
deild karla að skrá tölfræði úr leikj-
um og skila inn til KKÍ. Það sama
gildir um 16 liða og 8 liða undan-
úrslit og úrslit í fyrirtækjabikar-
keppni KKÍ og bikarkeppni KKÍ.
Tillaga um að taka upp fast núm-
erakerfi var felld og um bann á er-
lenda leikmenn í 1. og 2. deild karla
og 1. deild kvenna var einnig felld.
Aðrar tillögur sem teknar voru
fyrir á þinginu á Selfossi má sjá á
heimasíðu Körfuknattleiks-
sambands Íslands, www.kki.is.
Hömlur settar á
leikmenn utan Evrópu
JUAN Pablo Angel skoraði sitt
22 mark á keppnistímabilinu
þegar hann tryggði Aston Villa
sigur á Tottenham, 1:0. Leik-
menn Villa hafa leikið sjö leiki í
röð án þess að tapa í ensku úr-
valsdeildinni. Þeir eru að berj-
ast um rétt til að leika í Meist-
aradeild Evrópu við Liverpool
og Newcastle. Spennan verður
mikil á milli liðanna á loka-
sprettinum.
Liverpool er með 56 stig og á
tvo leiki eftir – fyrst gegn
Birmingham og síðan heima
gegn Newcastle.
Aston Villa er með 55 stig og
á eftir tvo leiki – fyrst gegn
Southampton úti og síðasti
leikurinn verður á Villa Park
gegn Manchester United.
Newcastle er með 53 stig og
á eftir þrjá leiki – gegn Wolves
heima, Southampton úti og síð-
ast hinn þýðingarmikla leik
gegn Liverpool á Anfield.
Gerard Houllier, knatt-
spyrnustjóri Liverpool, var
ánægður með sína menn eftir
að þeir lögðu Middlesbrough
að velli á Anfield, 2:0. Danny
Murphy og Emile Heskey skor-
uðu mörkin.
Houllier sagði að sínir menn
hefðu sýnt mikla baráttu að
undanförnu og væru ákveðnir í
að leggja hart að sér til að ná
fjórða sætinu og fá rétt til að
leika í Meistaradeild Evrópu
næsta keppnistímabil.
Hörð keppni um fjórða
sætið í Englandi
Angel fagnar sigurmarki sínu.
EDDIE Gray, sem er í tíma-
bundnu starfi sem knattspyrnustjóri
Leeds, er afar reiður yfir þeim
áformum forráðamanna félagsins að
ætla að selja sterkustu leikmenn
liðsins. Alan Smith og Mark Viduka
ku vera falir og þykir víst að mörg fé-
lög ætli að bjóða í þá eftir leiktíðina.
GERARD Houllier, knattspyrnu-
stjóri Liverpool, er sagður hafa
áhuga á að kaupa hollenska lands-
liðsmanninn Mario Melchiot, varn-
armann í liði Chelsea. Líklegt er að
Melchiot verði láta fara frá Chelsea í
sumar en auk Liverpool hefur New-
castle sýnt áhuga á að fá leikmann-
inn í sínar raðir.
HENRIK Larsson, framherji
Celtic, sem hefur ákveðið að gefa
kost á sér í sænska landsliðið á nýjan
leik, segist ætla að leggja
knattspyrnuskóna á hilluna fái hann
ekki tilboð frá stóru og sterku félagi.
Larsson, sem verður 33 ára næsta
haust, kveður Celtic í sumar en þar
hefur hann átt góðu gengi að fagna
undanfarin ár.
CARLO Ancelotti, þjálfari AC
Milan, hefur vísað á bug þeim frétt-
um að Milan sé að reyna að fá arg-
entínska framherjann Hernan
Crespo frá Chelsea fyrir næstu leik-
tíð. „Það er alveg á hreinu að Crespo
er ekki á leið til okkar. Við erum með
öfluga framherja í okkar röðum og
þeir verða hjá okkur áfram.“
AC Milan er ekki á flæðiskeri statt
hvað framherja varðar því í þess röð-
um eru Andriy Shevchenko, Filippo
Inazghi og Daninn Jon Dahl Tom-
asson og allir eru þeir samnings-
bundir Milan á næsta ári.
WERDER Bremen steig stórt
skref í átt að þýska meistaratitlinum
í knattspyrnu þegar liðið burstaði
Hamborg, 6:0. Bremen hefur sex
stiga forskot á meistara Bayern
München þegar þremur umferðum
er ólokið en Bæjarar báru sigurorð
af Köln, 2:1, og þar með féll Köln.
KLAUS Toppmöller, þjálfari
Hamborgar, baðst afsökunar fyrir
hönd liðs síns fyrir hrakfarir þess
gegn Bremen. „Bremen er með frá-
bært lið en það réttlætir ekki þessi
úrslit. Ég hef aldrei áður tapað
svona stórt, hvorki sem leikmaður né
þjálfari og ég get ekki annað en beð-
ist afsökunar. Ég er ákaflega von-
svikinn og það eru leikmenn mínir
sömuleiðis,“ sagði Toppmöller.
REINER Calmund, hinn þéttvaxni
eigandi Bayer Leverkusen, segir að
hver einasti leikmaður liðsins sé fal-
ur berist rétt tilboð í þá. Leverkusen
hefur eins og fleiri félög í Þýskalandi
átt við fjárhagserfiðleika að stríða og
og á síðustu árum hefur það þurft að
láta frá sér fara sterka leikmenn á
borð við Michael Ballack og Ze Ro-
berto en þeir gengu báðir í raðir
Bayern München.
FÓLK
Svanasöngur Leedsara í úrvals-deildinni var á Rebock-vellinum
í Bolton í gær þar sem heimamenn
unnu öruggan sigur. Leeds komst
yfir með marki Mark Viduka úr víta-
spyrnu á 27. mínútu en Ástralinn
gerði sig sekan um ótrúlega heimsku
skömmu síðar. Hann nældi sér í sitt
annað gula spjald og var sendur í bað
í annað skipti á skömmum tíma.
Bolton-menn færðu sér liðsmuninn í
nyt í upphafi síðari hálfleiks og á átta
mínútna kafla gerðu þeir út um vonir
Leeds með því að skora þrívegis.
„Við áttum líklega skilið að falla;
lið sem er næstneðst eftir 36 leiki á
ekkert annað skilið,“ sagði Eddie
Gray sem tók tímabundið við sem
knattspyrnustjóri liðsins í vetur.
„Okkur skorti meiri gæði í leik-
mannahópinn. Þrjú ár er langur tími
í knattspyrnu, sérstaklega þegar
flestar skrautfjaðrir liðsins eru farn-
ar, og að auki voru ekki til fjármunir
til þess að kaupa aðra leikmenn. Ef
ég fengi að velja sex leikmenn frá
Arsenal og Manchester United væri
staðan önnur á okkar liði,“ sagði
Gray í gær en hann er bjartsýnn á
framhaldið hjá Leeds. „Það eru
margir sorgmæddir þessa stundina,
leikmenn jafnt sem stuðningsmenn
liðsins, sem eru frábærir, og þeir
verða áfram til staðar þrátt fyrir að
leikmenn verði seldir í sumar,“ sagði
Gray.
Manchester City rak síðasta nagl-
ann í líkkistu Leicester með því að
leggja Newcastle að velli, 1:0, og
þrátt fyrir sigur Úlfanna á Everton
koma þeir til með að fylgja Leicester
og Leeds í 1. deildina.
Leicester kvaddi úrvalsdeildina
með 2:2 jafntefli gegn Charlton á úti-
velli þar sem Les Ferdinand jafnaði
metin fyrir Leicester á 88. mínútu
leiksins.
„Ég var ánægður og stoltur af
frammistöðu minna manna og þeir
sýndu mikla þrautseigju að jafna
metin einum manni færri. Mér finnst
við eiga heima í úrvalsdeildinni en ég
er hræddur um að önnur félög komi
til með að taka frá okkur leikmenn,“
sagði Micky Adams, stjóri Leicester.
Hermann Hreiðarsson lék allan leik-
inn fyrir Charlton sem hefur aðeins
uppskorið tvö stig í síðustu fjórum
leikjum sínum.
Úlfarnir bitu vel frá sér gegn
Everton og lönduðu 2:1 sigri sem
dugar þó ekki til að liðið haldi sér í
deild þeirra bestu.
„Það mátti svo sem alveg búast við
að þetta yrði okkar hlutskipti en við
komum sterkir til leiks á næsta tíma-
bili, reynslunni ríkari. Leikmenn
mínir gáfu allt sem þeir áttu og ég er
hreykinn af þeirra frammistöðu,“
sagði Dave Jones, stjóri Úlfanna.
Carl Cort og Henry Camra skoruðu
mörk Wolves eftir að Leon Osman
hafði náð forystunni fyrir Everton.
Jóhannes Karl Guðjónsson var ekki í
leikmannahópi Wolves.
Paolo Wanchope tryggði Man-
chester City afar dýrmæt þrjú stig
en hann skoraði eina mark leiksins
með fallegri kollspyrnu í síðari hálf-
leik á móti Newcastle. Þetta var
fyrsti sigur Manchester-liðsins í átta
leikjum og aðeins fjórði sigur þess á
nýja glæsilegan leikvanginum í Man-
chester.
„Þetta var afar erfið fæðing og við
vissum það fyrir leikinn að hann yrði
erfiður. Ég var hins vegar mjög
ánægður með framlag minna manna.
Þeir börðust eins og ljón og upp-
skáru sanngjarnan og þýðingarmik-
inn sigur. Við erum ekki búnir að
tryggja veru okkar í deildinni en við
stigum stórt skref með þessum sigri
og vonandi léttir hann mestu press-
unni af okkur,“ sagði Kevin Keegan,
stjóri City.
Leeds kvaddi úrvals-
deildina í Bolton
Reuters
Stuðningsmenn Leeds og
leikmenn liðsins brustu í
grát í gær á Reebok Stadium
í Bolton, þar sem Leeds
kvaddi úrvalsdeildina.
ÚRSLITIN í fallbaráttunni í
ensku úrvalsdeildinni eru ráðin.
Leicester, Wolves og Leeds fá
það hlutskipti að kveðja úrvals-
deildina, Leicester og Úlfarnir
eftir eins árs veru en Leeds hef-
ur átt sæti í efstu deild sam-
fleytt í 14 ár. Wolves og Leeds
geta að vísu náð Manchester
City að stigum en markatala
City er svo miklu hagstæðari að
útlokað er fyrir liðið að falla.
■ Úrslit/B6
■ Staðan/B6
Paul Robinson markvörður og Alan Smith fallast í faðma.