Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.2003, Blaðsíða 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. MAÍ 2003
H
VAÐ kemur til að þið sýnið
saman?
Kristján: Ja, þetta eru
reyndar tvö rými en við mun-
um sennilega láta verk okkar
skarast með einhverjum
hætti. Það kemur í ljós þegar
við byrjum að hengja upp.
Það gerist ýmislegt í upphengingunni. Annars
ætlum við bara að sýna það sem við erum að fást
við núna.
Blm: Og skarast það með einhverjum hætti?
Þór: Verkin eru af sama meiði þótt þau séu
ekki lík. Sjálfsagt myndi fáum detta í hug að
segja okkur líka listamenn. En það mætti kalla
myndirnar okkar beggja málverk þó að ég notist
við gler en ekki striga eins og Kristján.
Kristján: Við erum fulltrúar tveggja stefna.
Það er alveg augljóst. Menn tveggja tíma enda
37 ár á milli okkar. Við höfum gaman af því að
sjá hvernig verk okkar taka sig út hlið við hlið.
Og sjálfsagt er leikurinn til þess gerður af okkar
hálfu. En einnig má skoða sýninguna sem inn-
legg í það ástand sem myndast hefur í íslenskum
myndlistarheimi um þessar mundir þar sem
klíkumyndun er algeng. Menn eins og ég og Þór
eigum að geta sýnt saman án þess að úr verði
einhver leiðindi. Mér finnst það.
Blm: Ertu sammála því, Þór?
Þór: Já.
Blm: Hvaða sess skipar Kristján í myndlist-
arlegu uppeldi þínu?
Þór: Ég kynntist verkum Kristjáns strax á
námsárunum og hann hefur alltaf verið góður
málari að mínu mati. Ég ber mikla virðingu fyrir
honum. Og þá ekki síst ferli hans en Kristján
hefur vaxið með hverju verki. Hann er enn í fullu
fjöri. Hann er enn að þróa myndmál sitt. Það
mun sjást á sýningunni. Það er fyrst og fremst
þessi stöðuga þróun og nýsköpun í list Kristjáns
sem hefur haft áhrif á mig. Hugmyndafræðileg-
ar tengingar á milli okkar eru hins vegar ekki
miklar.
Kristján: Öll list á það samt sameiginlegt að
vera byggð á hugmyndafræði. Það hefur fylgt
myndlistinni allar götur frá Giotto sem var
Blm: Hlustarðu á samtímatónlist?
Kristján: Ég fer því miður æ sjaldnar á tón-
leika en ég kann að meta þessa nútímatónlist
sem flestir segja að sé óskiljanleg.
En talandi um tónlist þá rifjaðist upp fyrir
mér tónlistarmaður frá fimmta áratugnum sem
kallaði sig Moondog. Hann var betlari og spilaði
á alls konar drasl sem hann sankaði að sér.
Hann minnir mig mjög á það sem háttskrifaðir
menn eru að gera í myndlist um þessar mundir.
Ég hafði mjög gaman af honum. Náði mér í plöt-
ur eftir hann. Það hefði verið gaman að stilla
honum upp við hliðina á því sem sumir eru að
gera í myndlist í dag.
Blm: Þór, þú hefur verið að vinna með gler.
Þór: Já, aðallega einlitt gler sem ég læt vinna í
Finnlandi. Ég hef einkum unnið með iðnaðarefni
í list minni. Verkin hafa helst verið þannig að
hver sem er getur unnið þau, sem er ólíkt vinnu-
aðferðum Kristjáns þar sem handbragð hans
skiptir öllu máli. En verk mín eru líka mjög ein-
föld. Ég mun reyndar nota fleiri liti en oft áður
að þessu sinni en einfaldleikinn er samt sem áð-
ur í fyrirrúmi. Kannski fyrir áhrif frá samfélag-
inu. Ég sé líka ákveðinn áróður í verkum mínum.
Blm: Á sýningunni verður þá samsláttur á
milli iðnaðarins í verkum Þórs og náttúrunnar í
verkum þínum, Kristján.
Kristján: Já, ég mála upplifun mína á nátt-
úrunni, tilfinningu mína fyrir henni. Þannig er
öll myndlist.
Þór: Jú, það er rétt, náttúran er umfjöllunar-
efnið með einum eða öðrum hætti. Mín verk
tengjast þó meira hinum manngerðu hlutum,
kannski ónáttúrunni. En það er gaman að sjá
málara ráða við jafn stóran flöt og Kristján gerir
með jafn fáum strokum.
Blm: Og það er eins og maður hverfi inn í
myndina þegar horft er á hana, verði hluti af
þessari náttúru.
Kristján: Það er eitt af aðalatriðunum í mynd-
list. Möguleikinn á innlifun og þátttöku verður
að vera til staðar. Verkið sendir mann í ferð til
að bæði horfa og gera.
sem ég er að fást við.
Blm: Hvers vegna eru myndirnar að verða
einfaldari?
Kristján: Vegna áhrifa frá kollegum hingað og
þangað um heiminn. Og svo vegna áhrifa frá
tímanum sem við lifum. Þetta eru sérstakir og
raunar einstakir tímar í myndlistinni. Annað
eins hefur aldrei gerst. Það er gríðarleg fjöl-
breytni og átökin eru mikil. Ég finn fyrir þessu
og það skilar sér inn í verkin.
Blm: Margir tala um að heimurinn sé alltaf að
verða flóknari.
Kristján: Já, rétt, og það mun leiða til þess að
heimurinn verður einfaldari. Ef heimurinn held-
ur áfram að verða flóknari mun enginn botna
neitt í neinu. Hann hlýtur því að verða einfald-
ari. Að endingu verður allt einfalt. Vonandi.
Líka í listinni. Myndirnar mínar stefna að
minnsta kosti í þá átt.
Blm: Þú málar tilfinningu þína fyrir umhverf-
inu og tímanum.
Kristján: Ég hef alltaf verið í tengslum við
umhverfi mitt. Tónlist hefur til dæmis alltaf haft
mikil áhrif á mig, kannski vegna þess að mínir
bestu vinir hafa alltaf verið tónskáld fremur en
málarar.
áhrifavaldur Tizians og Tintorettos. Allt heyrir
þetta því saman að vissu leyti.
Blm: Í viðtali við mig fyrir sjö árum sagðir þú
að öll list væri ávöxtur skynsamlegrar niður-
stöðu.
Kristján: Já, myndlistin á það sameiginlegt
með öðrum listgreinum að hún verður til eftir að
menn hafa lagt höfuðið í bleyti.
Blm: Geturðu tekið undir þetta, Þór?
Þór: Já, mér þykir þetta skynsamlegt. En ég
er hins vegar ekki mikið gefinn fyrir að tala um
verkin mín, ég vil bara að þau séu. Listamað-
urinn er yfirleitt einn í vinnu sinni en síðan held-
ur hann sýningu á verkunum, tekur þau út af
vinnustofunni svo aðrir geti séð þau og skoðað í
samhengi við annað sem er að gerast. Þannig
verður til hugmyndafræðileg samræða.
Við Kristján erum að vissu leyti að hefja sam-
starf okkar og sennilega á ekki margt eftir að
gerast í því fyrr en við stefnum verkum okkar
saman í Hveragerði, þá sjáum við betur hvað við
höfum að segja hvor öðrum.
Blm: Það var ýjað að því að það hafi orðið
breytingar á myndum þínum, Kristján.
Kristján: Já, það eru breytingar. Myndirnar
eru að verða einfaldari og um leið víkkar sviðið
Morgunblaðið/Einar Falur
„Menn eins og ég og Þór eigum að geta sýnt saman án þess að úr verði einhver leiðindi,“ segir Kristján Davíðsson sem er hér með Þór Vigfússyni.
AÐ ENDINGU VERÐUR
ALLT EINFALT
Kristján Davíðsson og Þór Vigfússon halda sýningu á
verkum sínum í Listasafni Árnesinga í Hveragerði en
það hefur nú fengið nýtt húsnæði þar sem Listaskálinn
í Hveragerði var áður. Sýningin verður opnuð á
uppstigningardag en á henni verða ný verk eftir
Kristján og Þór. ÞRÖSTUR HELGASON ræddi við þá
um sýninguna, breytingar á list Kristjáns, hugmynda-
fræðilegar samræður og ýmislegt fleira.
throstur@mbl.is