Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.2003, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. MAÍ 2003 9
Eitt af verkum Þórs Vigfússonar í húsi Orkuveitu Reykjavíkur.
Nýjasta mynd Kristjáns Davíðssonar, máluð á þessu ári.
SÝNING Kristjáns Davíðssonar og Þórs
Vigfússonar er sú fyrsta í nýju húsnæði
Listasafns Árnesinga sem er nú til húsa
þar sem Listaskálinn í Hveragerði var áð-
ur. Það var Einar Hákonarson listmálari
sem reisti Listaskálann árið 1996 en hann
var vígður í júlímánuði árið 1997. Einar
rak skálann um skeið með sérstakri
áherslu á málverkasýningar en hann hef-
ur staðið nánast ónotaður í tvö ár.
Listasafn Árnesinga var áður til húsa
við Tryggvagötu á Selfossi. Listasafnið er
sjálfstæð stofnun í eigu og umsjá Héraðs-
nefndar Árnesinga sem felur stjórn safns-
ins meðferð mála þess. Samkvæmt stofn-
skrá safnsins er hlutverk þess að hafa
safnið opið almenningi, gæta þeirra lista-
verka sem Árnesingum hafa verið gefin
og að sinna menningar- og fræðslu-
starfsemi.
Stofninn að Listasafni Árnesinga er
gjöf Bjarnveigar Bjarnadóttur (1907–
1933) og sona hennar Bjarna og Lofts Jó-
hannessona. Gjöfin telur 73 verk eftir
marga þekkta listamenn en umtalsverður
hluti er eftir frænda Bjarnveigar, Ásgrím
Jónsson listmálara. Hann fæddist í Rúts-
staðahjáleigu í Gaulverjahreppi árið 1876
og dó árið 1958. Að svo stöddu var ákveð-
ið að hreyfa ekki við safneigninni vegna
röskunar og ryks í húsinu, en seinna í
sumar verður unnið að uppsetningu sýn-
ingar með verkum úr safneign.
Listasafn Árnesinga varðveitir einnig
allsérstætt tréskurðarsafn Halldórs Ein-
arssonar (1893–1977) frá Brandshúsum í
Gaulverjabæjarhreppi er hann gaf til
minningar um foreldra sína.
Markmiðum safnsins er skipt í fjögur
svið: Safnasvið, fræðslusvið, myndlistar-
svið og hönnunarsvið. Stefna safnsins er
að sinna menningarmálum á framsækinn
hátt en jafnframt að höfða til sem flestra.
LISTA-
SAFN
ÁRNES-
INGA