Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.2004, Qupperneq 15

Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.2004, Qupperneq 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. JANÚAR 2004 15 Næsta v ika menning@mbl.is Morgunblaðið/Jim Smart Hildigunnur Halldórsdóttir, Örn Magnússon og Sigurður Halldórsson. Fjar- verandi voru Sigurlaug Eðvaldsdóttir og Guðmundur Kristmundsson. Fjórðu tónleikar Kamm-ermúsíkklúbbsins í Bú-staðakirkju á þessu starfs-ári verða annað kvöld, kl. 20 að vanda. Að þessu sinni er gestur klúbbsins tónlistarhópurinn Camerarctica sem skipaður er að þessu sinni fiðluleikurunum Hildi- gunni Halldórs- dóttur og Sig- urlaugu Eðvaldsdóttur, víóluleikaranum Guðmundi Krist- mundssyni og Sigurði Halldórssyni sellóleikara. Gestur þeirra á þess- um tónleikum er Örn Magnússon píanóleikari. Á efnisskránni eru tvö verk, Strengjakvartett nr. 8 í c- moll, op. 110 eftir Dmítrí Sjostako- vítsj frá árinu 1960 og Tríó fyrir píanó, fiðlu og selló í a-moll, op. 50 frá árinu 1882 eftir Pjotr Iljítsj Tsjajkovskí. Er það vaninn í Kammermús- íkklúbbnum, Hildigunnur, að hafa á efnisskránni gömul og ný verk? „Já, yfirleitt er það þannig og reynt að tefla saman verkum sem passa vel saman. Þetta er sjöunda árið sem okkur er boðið að leika í Kammermúsíkklúbbnum og alltaf höfum við leikið einn kvartett eftir Sjostakovítsj. Þá höfum við einnig flutt verk eftir gömlu meistarana og eftir tónskáld okkar tíma, m.a. Þorkel Sigurbjörnsson. Verkin tvö sem við leikum annað kvöld eru mjög ólík en bæði ofsa- lega falleg. Við byrjum á því að flytja strengjakvartettinn sem tek- ur um 20 mínútur í flutningi. Verk- ið er í fimm þáttum sem leiknir eru hver á fætur öðrum. Alvarlegs undirtóns gætir í öllu verkinu, ír- óníu og ógnar. Fyrsti kaflinn er mjög alvöruþrunginn og svo kem- ur annar kaflinn þar sem skellur á manni nokkurs konar hríðskota- árás. Þá kemur írónískur vals og tveir síðustu kaflarnir eru þrungn- ir sorg. Heimska og illska mann- anna hafa verið Sjostakovítsj of- arlega í huga þegar hann samdi þennan áttunda strengjakvartett í Dresden, hinni frægu háborg menningar og lista. Borgin var enn í rústum eftir loftárásirnar í lok seinna stríðsins. Eftir hlé leikum við eldra verkið. Það er hárómantískt tregaljóð sem tekur um 50 mínútur í flutningi. Verkið er í tveimur köflum, Pezzo elegiaco (Moderato assai – Allegro giusto) og Tema con variazion. Þar er svona „grand finale“ þar sem upphafsstefið er endurtekið í lok- in, tregaljóðið. Tríóið semur Tsjaj- kovskí í minningu látins vinar, pí- anóleikarans Nikolaj Rubinstein. Hann samdi bara þetta eina píanó- tríó því honum þótti píanó og strengir alls ekki fara vel saman. Tríóið er mikið stórvirki og telst til merkustu tónsmíða sinnar teg- undar. Það er alveg stórkostlega fallegt verk, fegurð út í gegn.“ Hvers konar klúbbur er Kamm- ermúsíkklúbburinn sem ár hvert heldur tónleika í Bústaðakirkju? „Kammermúsíkklúbburinn er klúbbur nokkurra áhugasamra karla um kammertónlist og hefur verið starfræktur í bráðum 50 ár. Tónleikar klúbbsins eru ávallt vel sóttir enda efnisskráin mjög metn- aðarfull. Þarna eru sannkallaðir verkfræðingar að störfum með skipulagninguna kristaltæra. Þeir hafa hlustað á gríðarlegt magn kammertónlistar og efnisskráin valin eftir mikla yfirlegu. Í lok febrúar, þegar tónleikaárinu lýk- ur, er dagskrá næsta tónleikaárs þegar tilbúin. Þeir eru opnir fyrir hugmyndum en eru með mjög ákveðnar hugmyndir um það sem þeir vilja heyra. Verkin velja þeir mjög markvisst enda upplifun tón- leikagesta yfirleitt sú, að tón- leikum loknum, að þeir vilja heyra meira. Það er alveg frábært að til skuli vera félagsskapur sem pantar svona sértæka efnisskrá með svona krefjandi verkefni. Maður þarf að taka á honum stóra sínum þegar maður leikur verk sem stjórn Kammermúsíkklúbbsins hefur valið og lætur sér hlakkar til allan veturinn. Ekki er það síður tilhlökkunarefni að spila fyrir svona mörg áhugasömu eyru.“ Kröfuharðir klúbbfélagar STIKLA Kammertón- leikar í Bústaðakirkju helgag@mbl.is Myndlist Borgarskjalasafn, Grófarhúsi: Ólíkt – en líkt. Til 2. febr. Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Sigríður Guðný Sverrisdóttir. Har- ald (Harry) Bilson. Til 1. febr. Gallerí Hlemmur: Rósa Sigrún Jónsdóttir. Til 31. jan. Gallerí Kling og Bang: Ingo Fröhlich. Til 8. febr. Gallerí Skuggi: Sólveig Birna Stefánsdóttir og Hulda Vilhjálms- dóttir. Til 1. febr. Gallerí Veggur, Síðumúla 22: Kjartan Guðjónsson. Til 20. mars. Gerðuberg: Stefnumót við safn- ara. Til 29. febr. Hafnarborg: Minningarsýning um Elías Hjörleifsson. Til 14. mars. Hallgrímskirkja: Bragi Ás- geirsson. Til 25. febr. i8, Klapparstíg 33: Victor Boullet. Til 28. febr. Listasafn Akureyrar: Bjarni Sigurbjörnsson. Svava Björns- dóttir. Til 7. mars. Listasafn ASÍ, Freyjugötu: Rósa Gísladóttir. Gryfja: Margrét Norðdahl. Til 1. febr. Listasafn Einars Jónssonar: Opið fyrir hópa eftir sam- komulagi í janúar. Listasafn Reykjavíkur – Ás- mundarsafn: Nútímamaðurinn. Til 20. maí. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús: Ólafur Elíasson. Til 14. mars. Listasafn Reykjavíkur – Kjar- valsstaðir: Ferðafuða. Myndlist- arhúsið á Miklatúni. Til 25. jan. Norræna húsið: Textílverk Jana Vyborna. Til 29. febr. Siri Gjes- dal, textílverk. Til 7. mars. Nýlistasafnið: Gauthier Hubert og Guðný Rósa Ingimarsdóttir. Til 8. febr. ReykjavíkurAkademían: Örn Karlsson – yfirlitssýning. Til 1. febr. Safn – Laugavegi 37: Opið mið.–sun. kl. 14–18. Breski lista- maðurinn Adam Barker-Mill. Lawrence Weiner: Fimm nýjar teiknimyndir. Til 1. mars. Hreinn Friðfinnsson. Til 15. febr. Jón Sæ- mundur Auðarson og Særún Stef- ánsdóttir. Til 1. mars. Leiðsögn alla laugardaga kl. 14. Skálholtsskóli: Staðarlista- menn – Jóhanna Þórðardóttir. Jón Reykdal. Til 1. febrúar. Skaftfell, Seyðisfirði: Helga Óskarsdóttir, Guðrún Vera Hjart- ardóttir og Ingibjörg Magnadótt- ir. Til 6. febr. Teits gallerí, Engihjalla 8: Jó- hannes Dagsson. Til 12. febr. Þjóðmenningarhúsið: Hand- ritin. Skáld mánaðarins: Alda- mótaskáldin Matthías Joch- umsson, Ólöf frá Hlöðum, Steingrímur Thorsteinsson og Theodóra Thoroddsen. Leiklist Þjóðleikhúsið: Jón Gabríel Borkmann, lau. Dýrin í Hálsa- skógi, sun. Græna landið, lau., sun. Vegurinn brennur, lau. Borgarleikhúsið: Chicago, lau., sun., fim., fös. Lína lang- sokkur, sun. Sporvagninn Girnd, lau., sun., fös. Rauðu skórnir, sun. Steinn Steinarr (gestasýning Kómedíuleikhússins), lau., sun. Iðnó: Sellófon, lau. Loftkastalinn: Bless fress, lau., fös. Hafnarfjarðarleikhúsið: Meistarinn og Margaríta, lau., fös. Leikfélag Akureyrar: Ást- arbréf í Ketilhúsinu, lau. Laugardagur Hallgrímskirkja kl. 12 Klais-orgelið hljómar – hádeg- istónleikar með kynningum. Hörður Áskelsson, org- anisti Hallgríms- kirkju, opnar nýja tónleikaröð. Salurinn kl. 16 Helga Rós Indr- iðadóttir, sópran og Elisabeth Föll, píanó, flytja ljóðasöngva eftir Schumann, Grieg, Sibelius og ís- lensk sönglög. Íslenska óperan kl. 20 Werther – í stuttformi – fyrir fimm söngvara og hljómsveit. Norræna húsið kl. 13 Kórinn Stavanger Vocalensemble heldur tónleika í Norræna húsinu í tilefni þess að norska listakonan Siri Gjesdal opnar sýningu á verkum sínum kl. 14. Sunnu dagur Hafnarborg kl. 20 Nýárstónleikar Tríós Reykjavíkur, Sigrúnar Hjálmtýsdóttur (Diddú) og Bergþórs Pálssonar. Hásalir, Hafnarfirði kl. 20 Kammersveit Tónlistarskóla Hafn- arfjarðar og nemendur úr söng- deild skólans flytja verk eftir Moz- art. Kammersveitsveitin leikur Divertimento í þremur þáttum og flutt verða atriði úr þremur óp- erum. Stjórnandi er Óliver Kentish. Borgarbókasafn, Tryggvagötu 15 kl. 15 Sunnudagar eru barnadagar í að- alsafni, 2. hæð. Kristín Arngríms- dóttir myndlistarmaður aðstoðar börn við listsköpun. Mánudagur LHÍ, Laugarnesi kl. 12.30 Guð- jón Ketilsson myndlistarmaður flyt- ur fyrirlestur um verk sín og feril sl. fimmtán ár. Guðjón útskrifaðist ár- ið 1978 úr Nýlistadeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Nova Scotia college of Art and design 1980. Hann kennir um þessar mundir við Listaháskóla Íslands. Þriðjudagur Kjarvalsstaðir kl. 20 Fæðingardagur Mozarts. Fluttar verða þrjár fiðlusónötur, eitt pí- anótríó og oktett fyrir fimm tromp- eta, tvær flautur og páku. Flytj- endur eru: Kry- styna Cortes, Lauf- ey Siguðardóttir, Richard Talkowsky, Ásgeir Stein- grímsson, Eiríkur Örn Pálsson, Einar St. Jónsson, Sveinn Birgisson, Guðmundur Haf- steinsson, Martial Nardeu, Guð- rún Birgisdóttir og Eggert Pálsson. Þorsteinn Gylfason prófessor spjallar um verkin og Mozart á milli atriða. Miðvikudagur Salurinn kl. 20 Tónsmíðar Guðna Franzsonar, í flutningi hans og valinkunnra ein- leikara og dansara, með fulltingi nýjustu hljómtækja, ljósa og myndtækja Salarins. Fimmtudagur Hafnarborg kl. 12 Hádegistónleikar með Antoníu Hevesi píanóleikara og Jóhönnu Linnet sópransöngkonu. Fluttar verða aríur hina ungversk ættuðu F. Lehár og Emmerich Kálmán. Auk þess syngur Jóhanna aríu eftir K. Stolz um Ungverjaland og ung- verska sígaunatónlist. Háskólabíó kl. 19.30 Sinfóníuhljóm- sveit Íslands. Hljómsveit- arstjóri: Rumon Gamba. Einleik- ari: Pekka Kuus- isto fiðluleikari. Fluttur verður Fiðlukonsert eftir Ludwig van Beethoven og Sinfónía nr. 4 eftir Dmítríj Shost- akovitsj. Föstudagur Salurinn kl. 20 Gunnar Guðbjörnsson, tenór og Jónas Ingimundarson, píanó, flytja ljóðflokkinn Malarstúlkan fagra/ Die Schöne Mühlerin eftir Franz Schubert við texta eftir Wilhelm Müller. Þjóðleikhúsið frumsýnir dagskrána Sólin gleymdi dagsins háttatíma. Þar minnist Þjóðleikhúsið 100 ára af- mælis heimastjórnar á Íslandi. 13 leikarar leikhússins taka þátt í sýn- ingunni. Umsjón hefur Þórhallur Sigurðsson. Hörður Áskelsson Sigrún Hjálmtýsdóttir Wolfgang Amadeus Mozart Rumon Gamba LISTASAFN KÓPAVOGS gerðarsafn, hamraborg 4 12. desember - 22. febrúar opnunartímar: alla daga nema mánudaga kl. 11 - 17 leiðsögn: miðvikud. og fimmtud. kl. 12 laugard. og sunnud. kl. 15 www.carnegieartaward.com Nina Roos, Untitled from Habbit Suddenly Broken c a r n e g i e a r t awa r d 2 0 0 4 FJÓRÐU tónleikar Tónlistar- félags Borgarfjarðar á þessu starfsári eru Vínartónleikar í hátíðarsalnum Hriflu á Bif- röst kl. 20.30 á sunnudags- kvöld. Einsöngvari er Hanna Dóra Sturludóttir sópransöngkona með henni leikur átta manna salonhljómsveit sem skipuð er úrvalsliði hljóðfæraleikara, þeim Sigrúnu Eð- valdsdóttur og Roland Hartwell, Bryndísi Höllu Gylfadóttur, Hávarði Tryggvasyni, Martial Nar- deau, Sigurði Ingva Snorrasyni, Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur og Pétri Grétarssyni. Flutt verður sívinsæl Vínartónlist, sungin og leikin, og er sérstök áhersla á tónlist sem hefur skírskotun til ungverskrar sígaunatónlistar. Þessi dagskrá var um síðustu helgi flutt á ný- árstónleikum Salarins í Kópavogi. Vínartón- leikar á Bifröst Hanna Dóra Sturludóttir MYNDLISTAMENNIRNIR Helga Óskarsdóttir, Guðrún Vera Hjart- ardóttir og Ingibjörg Magnadóttir opna sýninguna Ávöxtur myrkurs- ins kl. 14 í dag í Skaftfelli, menn- ingarmiðstöð á Seyðisfirði. Listaverkin eru unnin í Skaftfelli og gefur þar að líta skúlptúra, teikningar og myndbandsverk. Sýn- ingin er fyrri hluti samstarfsverk- efnis milli þessara ólíku myndlist- armanna og mun seinni hluti þess verða settur upp í Listasafni ASÍ á komandi sumri. Sýningin stendur til 6. febrúar. Ávöxtur myrkursins í Skaftfelli Verk á sýningunni í Skaftfelli.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.