Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.2004, Page 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 7. FEBRÚAR 2004 3
Matthías Viðar
Sæmundsson
lýkur Rúnamessu Lesbókar með grein
um táknheim rúnanna en í greininni
segir hann: „Rúnirnar kenna að mað-
urinn sé hvorki aflmiðja alheimsins né
mælikvarði allra hluta, heldur hluti af
ævarandi heild. Sé til fullkominn maður
þá er hann í senn tré og eldur, árstíðir
hver af annarri – sá sem nú er, sem lið-
inn er og óborinn. Hann er samrunninn
öllum tíma, er allt, og er það allt í einu,
nú og hér – töframeistarinn.“
Tíðarandinn á
tuttugustu öld
nefnist nýr efnisþáttur í Lesbók.
Jónas Ragnarsson hefur safnað
fréttum og tilvitnunum úr blöðum
og tímaritum frá liðinni öld er lýsa
anda hennar. Fréttirnar tengjast
birtingardegi hverju sinni en þær
spanna iðulega alla öldina.
Ragnar í Smára
er minnst í dag er öld er liðin frá fæð-
ingu hans. Lesbók birtir grein um ævi
hans og störf, bréf sem Ragnar sendi
Matthíasi Johannessen er sá síðar-
nefndi vann að samtalsbók sinni við
Þórberg Þórðarson og einnig er birt er-
indi sem Ragnar flutti um hlutverk lista
í samfélaginu. Þorsteinn frá Hamri
minnist og Ragnars.
René Block
er annar tveggja sýningarstjóra flúxus-
sýningarinnar í Listasafni Íslands. Ein-
ar Falur Ingólfsson ræðir við hann um
sýninguna og flúxushreyfinguna.
FORSÍÐUMYNDIN
er af Ragnari Jónssyni en aldarafmælis hans verður minnst í dag.
Ljósmyndari: Ólafur K. Magnússon.
F
yrir nokkrum árum las ég
frétt af því í blaði að til stæði
að hvíla einkabílinn í mörgum
borgum Evrópu tiltekinn dag
í september. Var átakinu gef-
ið nafnið Bíllausi dagurinn.
Þegar dagurinn nálgaðist og
ég heyrði ekkert um þetta
talað í höfuðborginni Reykjavík hingdi ég
í Ráðhúsið og spurðist fyrir. Ekki man ég
hvað ég talaði við marga fulltrúa í þeirri
stofnun en enginn þeirra hafði heyrt að
þetta stæði til og létu sér flestir fátt um
finnast. Enda leið sá dagur svo að ekki
var minnst einu orði á að taka þátt í
þessu umhverfisvæna átaki vina okkar í
Evrópu.
Síðan hefur það verið árviss viðburður í
Evrópu að efna til Bíllausa dagsins 22.
september. Þetta framtak hefur ugglaust
sprottið af áhyggjum borgarbúa hvar-
vetna á þéttbýlum svæðum af sívaxandi
mengun, hávaða og umferðarteppu sem
rekja má til óhóflegrar notkunar einka-
bílsins. Því hefur verið ætlað að vekja
fólk til umhugsunar um það hvað hver og
einn gæti lagt af mörkum til þess að gera
borgirnar okkar lífvænlegar að nýju.
Margir hafa spáð því að ef ekki verði að
gert muni fljótlega verða ólíft í mörgum
borgum enda þarf fólk nú þegar sums
staðar að nota gasgrímur til að halda lífi.
Þetta átak með Bíllausa daginn hefur
vakið verðskuldaða athygli og aukið
áhuga á að finna lausn á þessum knýjandi
vanda.
Ekki hefur þó farið mikið fyrir þessari
vakningu hér á Íslandi. Aldamótaárið var
rétt aðeins minnst á þennan dag og ýjað
að því einhvers staðar að æskilegt væri
að skilja einkabílinn eftir, en við nánast
engar undirtektir. En síðastliðið haust
var umferðarráð Reykjavíkur að burðast
við að taka þátt í deginum og tilkynnti
umferðarviku sem enda ætti með Bíllausa
deginum 22. september.
Þennan umrædda dag þurfti undirrit-
aður að skreppa úr Breiðholtinu niður í
Álfheima og fannst kjörið að nota til þess
hjólhest sinn. Átti ég von á að hitta urmul
af gangandi og hjólandi vegfarendum í
veðurblíðunni. En það er skemmst frá því
að segja að á þessari leið sá ég engan
mann á gangi og aðeins einn á hjóli fyrir
utan Glæsibæ, barnungan. Aftur á móti
munaði ekki nema hársbreidd að ég yrði
fyrir bíl í einni slaufunni í mannvirkinu
mikla við Stekkjarbakka sem kennt er við
mislæg gatnamót. Hið illa auga, sem bíl-
stjórinn sendi mér um leið og hann gerði
sér grein fyrir geimverunni sem líkamn-
aðist allt í einu á malbikinu fyrir framan
hann, fylgir mér enn og langar mig ekki
að verða aftur á vegi þess manns.
Ekki gat ég með nokkru móti séð að
umferð einkabílsins væri neitt minni
þennan dag en aðra daga og þessar núll
komma eitthvað prósentur, eða hvað það
nú var sem mælingarmeistarar átaksins
hjá Borginni létu frá sér fara, eru í meira
lagi ótrúverðugar, og ekki kæmi mér á
óvart þótt einhverjir þar á bæ hafi farið
sinna ferða á bíl daginn þann. Öll fram-
kvæmd og undirbúningur átaksins af
þeirra hálfu var með slíkum eindæmum
að engu tali tekur. Engar auglýsingar,
nánast engin hvatning, engin viðtöl við
framámenn eða fólkið á götunni um hvað
það hygðist fyrir á bíllausa deginum. Það
var náttúrlega óþarfi, flestir voru einhuga
um að hundsa átakið, enda hugmyndin
runnin sunnan úr Evrópu og Íslendingar
ekki ginnkeyptir fyrir hollráðum úr þeirri
áttinni.
Já, tortímandinn á gúmmískónum hef-
ur sannarlega náð þrælslegu taki á þorra
íslensku þjóðarinnar og mun þar oftar en
ekki um hreðjatak að ræða. Íslendingar
nota einkabílinn í stað yfirhafna. Ef
skreppa þarf út í pósthús, banka eða ann-
arra erinda í gráupplögðu gangfæri
skríða þeir í málmskjólið í staðinn og
setja í gang. Menn víla ekki fyrir sér að
sitja tímunum saman að nauðsynjalausu í
halarófu bíla sem spúa baneitruðum
gufum beint inn í loftinntakið hver hjá
öðrum. Fólk borgar tugi þúsunda króna
fyrir að láta laga rispu eða dæld á bretti
eða hurð og skyldutryggingar einkabíls-
ins þar af leiðandi himinháar. Olíu-
furstarnir stinga drjúgum hluta mán-
aðartekna okkar í vasa sína, enda sleikja
þeir út um á hverri bensínstöð. Og til að
bæta gráu ofan á svart er engu líkara en
að sumt fólk breytist í árásargjarnt og ill-
skeytt vélmenni um leið og það sest undir
stýri og ræsir maskínuna. Og vei þeim
sem á vegi þess verða.
Frá því snemma á morgnana og þar til
seint á kvöldin rennur stríður málm-
straumur um allar helstu umferðargötur
höfuðborgarinnar og er alltaf að aukast.
Mengunin af útblæstrinum er orðin svo
hrikaleg að engum dettur lengur í hug að
nota gangstéttarnar meðfram Miklubraut
og Hringbraut, eins og það var nú einu
sinni notalegt og skemmtilegt að spranga
þar um í eina tíð. Lendi maður í því að
þurfa að komast leiðar sinnar á bíl á
álagstímum endar það yfirleitt með
dúndrandi hausverk og titrandi taugum.
Þegar göturnar taka ekki lengur við sjá
hinir vísu verkfræðingar og ráðamenn
ekki annað grænna en byggja rándýr
mannvirki eins og við Stekkjarbakka,
með brúm, slaufum, torgum og akreinum,
svo helmingi erfiðara er að komast leiðar
sinnar en áður. Ekki hefur blessuðum
mönnunum dottið í hug að besta ráðið til
að vinna bug á þessu umferðaröngþveiti í
borginni kynni að felast í því að hafa frítt
í strætó fyrir alla og ferðir á 15 mínútna
fresti.
Því þótt Íslendingar séu glysgjarnir
nokkuð og veikir fyrir tækninýjungum
eru þeir ekki svo skyni skroppnir að
kunna ekki gott að meta. Þessi einfalda
aðgerð myndi bjarga fjölda mannslífa,
spara óhemju fjármuni og skapa hreinni,
fegurri og manneskjulegri borg. Svei mér
þá ef fólk byrjaði bara ekki að syngja af
gleði í strætó á morgnana, sloppið úr
stálkrumlu tortímandans.
TORTÍMAND-
INN Á GÚMMÍ-
SKÓNUM
RABB
E Y S T E I N N B J Ö R N S S O N
eystb@ismennt.is
BYRON LÁVARÐUR
Í CHILLON-KASTALA
HELGI HÁLFDANARSON ÞÝDDI
Þú frelsisást, sem fjötur engan ber,
um fangans múr þinn ljómi bjartast skín,
því þar er geiglaust hjarta háborg þín,
sem hreinni tryggð er aðeins bundið þér.
Og hvar sem þínum óskabörnum er
með ógn í myrkvað hlekkjadíki steypt,
við þeirra fórn er fjöregg þjóðar keypt
og frelsisþytur yfir löndin fer.
Dýflissa þín, svo heljarköld og hljóð,
er helgur staður, gamla Chillon-höll!
Í hellugólfið glöggt má kenna slóð,
sem gengið hefði barn um bjarta mjöll.
Bonnivard þessi spor í steininn tróð!
Frá valdsins grimmd til guðs þau liggja öll.
Sonnetta þessi er upphafið að hinu fræga söguljóði Byrons lávarðar (1788–1824),
Bandinginn í Chillon frá 1816, en ljóðið hefur verið þýtt í heild sinni a.m.k. tvisvar á
íslensku, af Steingrími Thorsteinssyni (útg. 1903) og Sturlu Friðrikssyni (útg. 1997).
Chillon-kastali stendur við Genfarvatn, en Bonnivard var fangi í dýflissu kastalans frá
1530 til 1536 þegar hann var frelsaður úr haldi. Þýðingin birtist í Erlendum ljóðum frá
liðnum tímum (1982).
LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR
5 . T Ö L U B L A Ð - 7 9 . Á R G A N G U R | U M S J Ó N Þ R Ö S T U R H E L G A S O N | T H R O S T U R @ M B L . I S :
EFNI