Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 13.03.2004, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 13.03.2004, Qupperneq 5
eindreginn reynslusinni og taldi að nytja- stefnan hlyti í öllum atriðum að byggja nið- urstöður sínar á reynslu. Í siðfræði samtímans eru mest ræddir þrír meginstraumar: dyggðakenning sem runnin er frá Aristótelesi, lögmálskenning sem kom- in er frá Kant og nytjastefna sem að flestu leyti er komin frá Mill. Kant er í hópi áhrifa- mestu hugsuða um siðferðisefni þótt ýmis at- riði kenningar hans séu umdeild. Þótt þessar lýsingar séu hnotskurnir þá vona ég að þær veiti ofurlitla vísbendingu um stöðu Kants.“ Guðmundur Heiðar telur siðfræðikenning- ar síðari tíma, sem draga í efa möguleikann á að finna algildar reglur, ekki hafa sýnt fram á neina veikleika í siðfræði Kants. „Í samtímanum er það mikil tízka að efast um algildið. En það skiptir öllu máli hvernig efasemdirnar eru rökstuddar. Ein leiðin sem farin hefur verið er í svonefndum átthaga- kenningum um siðferðið. Þær ganga út á að siðferði sé ævinlega staðbundið og hljóti í öll- um efnum að vera bundið nánasta umhverfi og komist aldrei út fyrir það. Í sem allra stytztu máli þá væri öll siðfræði átthaga- fræði. Þessi skoðun merkir að einungis er mögulegt að ræða um siðferði innan tiltek- inna áttahaga, maður getur einungis borið saman ólíka siði í ólíkum átthögum en ekkert sagt um að einn siður sé betri en annar, það er einfaldlega merkingarlaust að tala þannig. Það er ekki ástæða til að fjölyrða um þær rökþrautir sem svona skoðun lendir í en eins og hún stendur hlýtur hún að vera röng. Það er einfaldast að benda á tvær staðreyndir því til stuðnings. Önnur er sú að það á við um alla menn að þeir eru upprunnir á tilteknum stað og tilteknum tíma en það útilokar ekki að þeir geti skilið annað fólk á öðrum stöðum og öðrum tímum. Hin er sú að benda á að við skiljum án teljandi fyrirhafnar algildar stað- hæfingar. Það þarf ekki sérlega mikla fyrir- höfn að skilja setninguna allir menn eru jafn- ir. Þetta er ekki sérlega frjó umræða. Það er miklu frjórri umræða sem snýst um það hvort algildiskenningar þurfi annars konar rökstuðning eða undirbyggingu nú en áður. Ein leiðin er sú að smíða þurfi nýja kenningu um manneðlið sem útskýri til dæmis að sum- ar þarfir eru sammannlegar svo að eitt dæmi sé nefnt og útskýri þannig hvernig siðferði getur verið algilt. Kant getur lagt ýmislegt til málanna í þessum rökræðum bæði um mann- eðlið og mannlegan skilning. Það er ástæða til að taka eftir því að allar kenningarnar sem ég nefndi áður, dyggðakenningin frá Arist- ótelesi, algildiskenning Kants og nytjastefna Mills líta á algild hugtök og staðhæfingar um þau sem eðlilegan hluta siðferðisins þótt þær gefi honum ólíkt vægi.“ Guðmundur Heiðar telur því, að Kant eigi enn fullt erindi við lesendur. „Það er ekki svo að Kant sé bara forn- gripur sem ástæða sé til að dást að kurt- eislega en snúa sér síðan að einhverju alvar- legra. Það eru í meginatriðum tvær ástæður fyrir því að Kant á erindi við okkur nú á dög- um. Í fyrra lagi þá mótaði hann mörg þau vandamál sem enn er glímt við í heimspeki. Skýrasta dæmið er sennilega sú kenning hans að til þess að vera frjáls væri nauðsyn- legt að við værum óbundin af orsakalögmál- inu. Heimspekingar ræða þennan vanda enn og við kunnum í raun ekki svarið. En það er ekki bara að hann hafi mótað margar þær ráðgátur sem við fáumst enn við heldur hafði hann snjöll rök fyrir svörum sínum við þess- um ráðgátum. Þetta má sjá af því sem hann segir um rök fyrir tilvist Guðs svo að eitt dæmi sé nefnt. Í síðara lagi þá setti Kant fram skoðanir sem okkur eru nú runnar í merg og bein, eru orðin algerlega sjálfsögð sannindi. Kunnasta dæmi slíks er það sem hann segir um einkunnarorð upplýsingarinn- ar: „Sapere aude“, þorðu að vita, þorðu að nota þitt eigið hyggjuvit. Það er ósjálfræði mannvitsins að njóta eilífrar leiðsagnar ann- arra en þora ekki að hugsa sjálft. Ef mennt- un er eitthvað eitt á okkar dögum þá er hún það að læra að hugsa sjálfur, meta rök sem aðrir hafa fyrir eigin niðurstöðum og komast svo sjálfur að sínum.“ En skyldu siðfræðirit geta nýst manni til að læra siðferði? „Þessari spurningu verður að svara bæði já og nei. Neikvæða svarið er mikilvægara. Ef fólk hefur ekki hlotið eðlilegt uppeldi þar sem það venst því að þurfa að taka tillit til annarra, umgangast fólk, dýr og hluti eðli- lega, þá held ég að vonlaust sé að kenna því siðferði þegar það er að vaxa úr grasi eða er vaxið úr grasi. Ákveðin grunnþjálfun í bernsku virðist vera nauðsynlegt skilyrði sið- ferðis. En hafi fólk hlotið eðlilegt uppeldi og búi við þokkalegar aðstæður þá getur kennsla í siðfræði þjónað tilgangi og eflt sið- ferðisvitund fólks. Í samtímanum úir og grúir af vandamálum og ráðgátum sem ómögulegt er að leysa nema með því að hugsa skipulega um siðferðileg efni.“ kga@mbl.is ATLANTSHAFIÐ ER LEIKVÖLLURINN Í slensk náttúra er á margan hátt gjöful, ekki aðeins fyrir Landsvirkjun og er- lenda álrisa, heldur einnig fyrir lista- menn sem vinna í ýmsum listgreinum og liststílum. Hún er ekki einungis uppspretta hugmynda og uppljóm- unar fyrir listamenn þjóðarinnar, heldur skýtur hún líka upp kollinum í verkum þekktra erlendra listamanna sem hingað koma sem gestir. Í einu af galleríum Edinborgar gekk ég nýlega fram á bók eftir bandarískan ljósmyndara sem í eru geysilega fallegar svart-hvítar myndir, unnar upp úr sama efniviði, íslenskri náttúru eins og hún er séð með auga gestsins. Bókin, sem ber nafnið Dreaming of Gokstad(Draumurinn um Gaukstaðarskipið), vakti strax athygli mína og sérstaklega í ljósi þess að hún virðist hafa farið fram hjá flestum hér á landi þegar hún var gefin út árið 1988. Eintak af bókinni er til dæmis ekki að finna í hinu alfróða bókasafns- kerfi okkar Íslendinga, Gegni. Thomas Joshua Cooper, höfundur Draums- ins um Gaukstaðarskipið, skilgreinir sig sem Vestur-Bandaríkjamann. Hann er fæddur ár- ið 1946 í San Francisco í Kaliforníu. Fyrir rúmum tveimur áratugum kom hann til Skot- lands í þeim tilgangi að dvelja þar í eitt ár, en hefur aldrei snúið þaðan aftur og er nú yf- irmaður ljósmyndadeildarinnar í hinum virta listaháskóla Glasgow School of Art. Sem ung- ur maður vann Cooper einnig málverk og skúlptúra, en allt frá árinu 1969, þegar hann fann að eigin sögn sína sjálfstæðu listrænu rödd, hefur hann helgað sig ljósmyndinni. „Í kringum 1969 gerði ég mér grein fyrir því að málverkið virkaði ekki fyrir mig og ég hef líklega ekki verið nógu flinkur málari,“ segir Cooper brosandi, þar sem við sitjum á skrifstofu hans í Glasgow sem er yfirfull af bókum. „Síðan þá hefur öll mín myndgerð [hann talar ekki um að taka myndir; heldur gera þær] farið fram utandyra með myndavél sem er frá árinu 1898, einu myndavélinni sem ég hef átt og notað. Ljósmyndin var bara rétti miðillinn og hentaði betur í það sem ég var að byrja að kanna á þeim tíma. Ég var al- inn upp í sveit og þaðan kom áhugi minn á landslagi. Karlmennirnir í fjölskyldunni unnu á búgörðum, hjuggu tré og veiddu fisk sér til viðurværis, þannig að allir tengdust landinu náið og það geri ég líka.“ Þó að landslagsljósmyndir Coopers séu all- ar mannlausar skynjar maður sterk tengsl milli lands og manns í þeim öllum. Hann seg- ist vilja kanna í verkum sínum hvað gerist við brotthvarf mannsins af landsvæðum sem ekki eru lengur talin henta til búsetu og eru á mörkunum á að fara í eyði. „Kjarnann í verk- um mínum má finna í þrá mannsins til að eiga heima einhvers staðar. Maðurinn sækist eftir því að finna sér stað í veruleikanum og fólkið sem býr á þessum kraftmiklu stöðum sem ég heillast af er næmara fyrir umhverfi sínu og tilvist en hinn almenni borgarbúi.“ Eins og áður segir má finna flestar þeirra ljósmynda sem Cooper hefur unnið hérlendis í bókinni Draumurinn um Gaukstaðarskipið. Víkingaskipið í Ósló var í huga listamannsins einskonar myndrænt fley í þeirri för sem hann langaði að bjóða lesendum sínum í. Þar var ætlunin að kynna lesendunum aðstæður og staði sem kalla myndu fram eins konar dagdrauma í huga þeirra sem létu sér mynd- irnar varða. „Gaukstaðarskipinu var á tákn- rænan hátt ætlað að fljúga milli heima og því fannst mér það tilvalið að tengja það þessum myndum frá þessum norðlægu löndum.“ Auk Íslands siglir Cooper lesendum bók- arinnar um Skotland og skosku eyjarnar og um Noreg. Á Íslandi beinir hann linsunni of- an í svart hraunið við Surtshelli, myndir hans af Breiðamerkurjökli eru stórkostlega kaldr- analegar og jafnvel hinn hversdagslegi Gull- foss hressist allur við og verður spennandi í íslenskum augum sem eru honum alvön. Coo- per minnist veru sinnar á Íslandi með vænt- umþykju. „Ég ferðaðist í ellefu daga um Ísland og var skilinn eftir á stöðum sem ég vissi að mig langaði að heimsækja. Á Vatnajökli steig ég í fyrsta skipti á ís og myndaði jökulskörð og ruðninga, staði sem ekki eru lengur til í því formi, eyddust í hlaupinu eftir eldgosið 1996. Þegar ég gerði myndir við Gullfoss lét ég strengja mig upp í kaðli til þess að sjá það sem ég vildi sjá. Ég vildi reyna að upplifa fall- ið í fossinn og þetta var frekar erfitt þar sem ég er lofthræddur maður. Hins vegar verð ég af og til að reyna á mig og það er mikilvægt fyrir mig að vera þá með öll skilningarvit glaðvakandi. Barnafossar voru líka heillandi staður vegna sagna um barnadauðann þar og því vildi ég reyna að nema hjartslátt staðar- ins. Þegar ég kem á nýjan stað elska ég að heyra sögur innfæddra um hann. Það er það sem lífgar staðinn við fyrir mér. Ég vil að myndir mínar verði síðan partur af þessum sagnaarfi.“ Endanleg útkoma erfiðisins er því bókmenntalegs eðlis, en sköpuð gegnum linsu og meðfylgjandi texta sem Cooper velur af kostgæfni. Eins og fyrir hvern annan sagnaþul er það mikilvægur partur í verkum Thomas Joshua Cooper að spinna aðeins af fingrum fram. Það er nauðsynlegt fyrir hann til að reyna að fanga andann sem býr í landinu. „Það býr andi í öllu og sérstaklega á landsvæðum sem við mannfólkið höfum ýtt til hliðar og hætt að byggja. Ég er hins vegar fullkomlega meðvit- aður um að skynjun mín á umhverfinu á sér takmörk. Náttúran er eilíf, okkur tekst reyndar að spilla henni af og til, en hún leið- réttir mistökin þótt síðar verði. Það erum hins vegar við sem erum forgengileg.“ Í því verkefni sem Cooper er að vinna að um þessar mundir er það Atlantshafið allt og löndin sem við það liggja sem eru leikvöllur hans. Með myndavélina í farteskinu er það ætlun Coopers að rekja að einhverju leyti ferðir frægra sjóferðamanna og landkönn- uða milli gamla og nýja heimsins og þetta mun auðvitað leiða hann aftur til Íslands þeg- ar ferðir Leifs Eiríkssonar verða teknar fyr- ir. Cooper kallar verkefnið The Atlantic Bas- in project – The World’s Edge (Atlantshafs landgrunnurinn – endimörk heims). Það er ætlun hans að heimsækja helstu útnes landa við Atlantshaf og reyna þannig að átta sig á því hvernig menning hefur ferðast milli þess- ara landa og heimsálfa. „Með því að elta þessa menn vil ég reyna að endurvekja fyrir sjálfum mér og áhorfandanum eftirvænt- inguna sem hlýtur að fylgja því að sjá til lands í fyrsta sinn. Lands sem þú veist að eng- inn frá þínu menningarsvæði hefur áður séð. Ég vil reyna að fanga þessa „fyrstu sýn.““ Þó að Cooper starfi sem ljósmyndari er hann þó spenntari fyrir því sem er trúanlegt en fyrir því sem er satt og sannað. Raunsæi er því fjarri áhugasviði hans, þrátt fyrir meintan innifalinn sannleika ljósmyndar- innar. Það mætti því halda því fram að Thom- as Joshua Cooper deili trúnni með landkönn- uðum fortíðar sem aldrei hefðu lagt út í ævintýri sín án þess að trúa á það sem þeir voru að gera. Trúin og vonin um að finna sér samastað í heiminum er því aðalatriðið í báð- um tilvikum. Bandaríski ljósmyndarinn Thomas Joshua Cooper er einn þeirra erlendu listamanna sem hafa tekið sér íslenskt landslag og náttúru sem efnivið í verk sín. GUÐNI TÓMASSON ræddi við Cooper um list hans og Ísland sem efnivið. Ljósmynd/Thomas Joshua Cooper „Jafnvel hinn hversdagslegi Gullfoss hressist allur við og verður spennandi í íslenskum augum sem eru honum alvön.“ LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 13. MARS 2004 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.