Lesbók Morgunblaðsins - 13.03.2004, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 13.03.2004, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 13. MARS 2004 9 listamenn þátt í sýningunni og það segir sig sjálft að fjölmiðlar og safnstjórar urðu að velja og hafna. Þeir geta ekki grandskoðað mörghundruð listaverk á þessum tíma. Kynningarátakið skilaði sér tvímælalaust vegna þess að tveimur dögum fyrir fjölmiðlaopn- unina var farið að birtast fólk sem vildi fá að mynda og taka við okkur viðtöl – á meðan við vorum að setja upp verkið. Daginn sem fjöl- miðlaopnunin var haldin var skálinn troðfullur nánast allan daginn eins og reyndar alla sýning- ardagana og höfum við enga tölu á þeim blaða- og sjónvarpsviðtölum sem við fórum í á þessum þremur opunardögum, enda hafa birst greinar um verkið í meira en 18 þjóðlöndum og þá er ég bara að tala um þær greinar sem við höfum kom- ist yfir.“ Ferskasti skálinn í orðsins fyllstu merkingu Þáttur sýningarstjórans er mjög mikilvægur og það má sjálfsagt segja að hér hafi verið brotið blað í kynningarmálum varðandi þátttöku Ís- lendinga í Biennalnum, enda hafa komið fyrir- spurnir um að fá þetta verk og önnur verk eftir mig á sýningar víða um heim. Archive – en- dangered waters er t.d. núna sýnt á einkasýn- ingu í Het Domein safninu í Hollandi, fer síðan til Frakklands og kannski þaðan til Bretlands. Það hafa einnig borist umsóknir frá Lettlandi, Suður-Ameríku og Þýskalandi. Ég held að svona vinna hljóti alltaf að skila sér til þjóðarbúsins. Því þegar fólk hrífst af lista- verki verður það einnig forvitið um bakgrunn þess, ekki bara listamanninn sem skapaði það, heldur líka um menninguna, þjóðina og landið sem verkið er sprottið úr. Það voru svo margir sem sögðu að þeir yrðu að sjá landið þar sem væru allir þessir fögru fossar. Það dró ekki úr áhrifum verksins að í sumar var gríðarlegur hiti í Feneyjum. Fólki fannst fossarnir svalandi. Þetta er eitthvað sálrænt. Það var talað um það í einhverri umfjölluninni að þetta hefði verið ferskasti skálinn í orðsins fyllstu merkingu. Það fannst okkur fyndið, vegna þess að við vorum sjálf að kafna úr hita inni í skálanum. Annað atriði sem greinilega spilar inn í það hve sterk áhrif verkið hafði á gestina er hve fólk í Evrópu á orðið lítinn aðgang að óspilltri náttúru. En svona verk verður ekki til nema fyrir gott samstarf, ekki frekar en kvikmyndir. Ég naut mikillar og dyggilegrar aðstoðar frá fjölda fag- manna, og var innsti kjarninn um 10 manns; vél- smiðir, verkfræðingar og tölvufræðingar ásamt Þór Vigfússyni og Pétri Erni Friðrikssyni sem eru frábærir myndlistarmenn, miklir völundar og góðir í hugmyndafræðinni. Það eru forrétt- indi að fá að starfa með svona listamönnum – og einn af stóru kostunum við að búa og starfa á Ís- landi. Þótt erfitt geti verið að reka sig héðan, þ.e. að hafa Ísland sem bækistöð en starfa á alþjóð- legum vettvangi, þá er mikill sveigjanleiki í sam- félaginu. Erlendis eru menn e.t.v. meira að passa sinn sólóferil en að leggja öðrum lið. En þetta er ekkert sjálfgefið og mér finnst það heiður að fólk skuli vilja vinna með mér.“ Á ferðalagi um heiminn Rúrí segir óvíst hvenær verkið verði sýnt hér á landi. Á meðan áhugi sé fyrir því erlendis, telur hún mikilvægt að sinna þeim áhuga. „Það er ekki svo oft sem íslensk verk fá slík tækifæri. Það er dýrt að ferja þau til landsins og frá, þannig að ég ætla að bíða og sjá til hvernig gengur,“ segir hún. Sem fyrr segir opnar Rúrí einkasýningu í Par- ís í haust á Archive – endangered waters. Sýn- ingin opnar 3. september en daginn á undan opn- ar hún aðra einkasýningu á nýjum verkum. Þegar hún er spurð um þema þeirrar sýningar segist hún ennþá vera að vinna með fossa. „Það finnst sumum erfitt að sjá myndrænu tenginguna í verkum mínum, þar til þeir fara að skoða innihaldið. Ég er alltaf að vinna með sama þemað, hugmyndafræðileg gildi, en mismunandi fleti á þeim. Mikilvægi vatnsins og fossanna ein- skorðast ekki við Ísland, þetta er miklu stærra mál en svo. Vatn verður mikilvægasta málefni framtíðar í hnattrænum skilningi. Það verður bráðum farið að tala um „bláa gullið“. Sýning- argestir bregðast við verkinu á svo margvíslegan hátt, á tilfinningalegum forsendum, formrænum forsendum, mekanískum forsendum, hugmynda- fræðilegum forsendum, umhverfisforsendum, og jafnvel afþreyingarforsendum. Þar að auki var það eitt af vinsælustu verkunum meðal barnanna sem sóttu Biennalinn, ásamt verki Ólafs Elías- sonar. Kannski erum við Íslendingar bara svona mikil börn; að minnsta kosti náttúrubörn, það er þá bara ágætt því það að varðveita barnið innra með sér viðheldur vissum huglægum hreinleika. Einn stærsti ljóður á ráði okkar Íslendinga er sá að átta okkur ekki á því að það verður að um- gangast náttúruna af varfærni til að spilla henni ekki, og á sama hátt, að vatnið er ekki óþrjótandi. Ef við spillum því með mengun og ágangi, þá hverfur það hvorutveggja. Þetta er auðlind sem við getum ekki bætt ef of langt er gengið. Eftir að hafa horft á viðbrögð fólks við þessu lista- verki, er ég ekki í nokkrum vafa um að hin hreina og tæra náttúra landsins, og þar með vatnið, er mikilvægasta auðlind okkar Íslendinga.“ Vantar meira fjármagn til menningar Auk sýninganna í París opnar Rúrí einnig sýn- ingu í Tókýó í haust og verk eftir hana eru síðar á leiðinni á sýningu í Arabísku furstadæmunum. Þegar hún er spurð hvort árangur hennar á Tvíæringnum í Feneyjum sé ekki upphaf að miklu ævintýri fyrir hana, segir hún: „Ég er afskaplega glöð yfir viðbrögðunum – en ég vona að þetta skili sér ekki síður til annarra ís- lenskra listamanna. Hér er þónokkuð af frábær- um listamönnum en það þarf meira fjármagn til þess að styðja við þá. Menn þurfa að eiga þess kost að takast á við ögrandi og verðug verkefni til að ná að þroskast. Slík verkefni hafa verið af skornum skammti hér á landi og hefur það haldið aftur af eðlilegri þróun. Sumir hafa því fundið sig tilneydda að leita til annarra landa, en það geng- ur ekki að ungir listamenn flytji burtu af landinu til þess að geta lifað af list sinni, verði eins konar hugmyndafræðilegir flóttamenn. Til að breyta þessu þarf þrennt; skilning, áhuga og fjármagn. Með skynsamlegri áherslu- breytingu í þjóðfélaginu væri hægt að ná miklum árangri. Ef við förum að meta menninguna meira, og styðja við hana á skipulegri hátt en verið hefur munu skapast mikil verðmæti. Fyrst og fremst er ég að tala um menningarverðmæti sem eru ómissandi hverri þjóð. Menningarverð- mæti eru jú ekki bara eitthvað sem er geymt á Árnasafni, Þjóðminjasafninu og listasöfnum. Menning er lifandi, hún vex og þróast.Við meg- um ekki gleyma því að án menningar er engin þjóð – þá er bara um að ræða hóp fólks. – En jafnframt munu þannig skapast fjárhagsleg verðmæti, og velta þjóðarbúsins mun aukast því í heilbrigðu samfélagi er list atvinnuskapandi. Nokkur fyrirtæki hafa nýverið sýnt áhuga á því að taka þátt í þessari grein samfélagsins og hafa veitt fjármagni inn í listalífið, til dæmis veitti Menningarsjóður Íslandsbanka styrk til Archive – endangered waters. Þessi þátttaka er gífurlega mikilvægt skref í rétta átt – og er von- andi merki um það sem koma skal. Við Íslendingar megum ekki sofna á verðinum því þótt við sjáum ekki verðmætin í okkar eigin listamönnum og menningu, höldum að okkur höndum og veitum ekki fjármagni til listsköp- unar, þá mun myndlistin halda áfram að þróast erlendis. Við verðum bara ekki með í þeirri þró- un, og hvern ætlum við þá að senda á Biennalinn í framtíðinni? Menn verða að átta sig á því að þáttaka í Biennalnum jafngildir þáttöku í Ól- ympíuleikunum á sviði íþrótta. Fólk lendir í mjög stífum samanburði og við fáum enga samúð út á það að vera lítil þjóð. Þarna eru það bara gæðin sem gilda.“ Ljósmynd/Valdimar Sverrisson Fossniður hljómar um leið og myndirnar eru skoðaðar. Ljósmynd/Friðþjófur Helgason Rúrí við undirbúning sýningarinnar í Feneyjum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.