Lesbók Morgunblaðsins - 13.03.2004, Síða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 13. MARS 2004
T
jaldvagn í fullum skrúða tekur á
móti safngestum, sem leggja leið
sína í vestursal Listasafnsins á
Akureyri um þessar mundir, en
andspænis vagninum má sjá
myndband af framkvæmdum á
virkjunarsvæði Kárahnjúka þar
sem hvín og syngur í dísilvélum,
stálhjólum og viðvörunarbjöllum, sem eiga
kannski að segja manni að mun meiri hætta sé á
ferð en aðeins farartæki að bakka. Með þessum
hætti mætti lýsa innsetningu Önnu Líndal sem
nefnist Halló Akureyri! og verður til sýnis í
Listasafninu á Akureyri fram til 9. maí nk.
Að sögn Önnu lagði hún leið sína á fram-
kvæmdasvæðið við Kárahnjúka sl. sumar í
þeim tilgangi að taka m.a. upp myndir af fram-
kvæmdunum og í kjölfarið vann hún verkið Í
bakgarðinum sem sýnt var í Listasafni Reykja-
víkur sl. haust. „Þar notaði ég sama myndefni
og í innsetningunni núna sem skjáhvílu á
kjöltutölvu,“ segir Anna og tekur fram að hún
ætli sér að vinna meira með myndefni úr þess-
ari ferð í næstu verkum sínum.
„Fyrir mér felst heilmikil áskorun í því að
takast á við beinharðan raunveruleikann á for-
sendum myndlistar. Þannig felst viðfangsefnið
í því að líta handan yfirborðsins, handan veru-
leika sem teflt er fram og freista þess að sjá
samfélagið eins og það er í raun og veru. Mynd-
listin hefur sinn eigin tjáningarmáta og aðrar
nálgunarleiðir og á þann hátt fáum við nýtt
sjónarhorn á hlutina.“
Viðbragð við ytra áreiti oftast
kveikjan að verkum mínum
Spurð hvers vegna virkjunarframkvæmdir
við Kárahnjúka séu henni svona hugleiknar
svarar Anna því til að framkvæmdirnar séu í
sínum huga einfaldlega eitt stærsta pólitíska
málefni okkar tíma. „Í gegnum tíðina hefur
uppsprettan að verkum mínum oftast verið við-
bragð við ytra áreiti og í dag er t.d. ekki hægt
að opna blað án þess að lesa þar greinar um
löngun stjórnvalda til þess að hafa forystu í ál-
framleiðslu heimsins. Á sama tíma verður mað-
ur var við mikla valdabaráttu og valdníðslu í
tengslum við þessar framkvæmdir. Ef ég á að
setja þetta í samhengi við eitthvað dettur mér
einna helst samlíking við stríðsrekstur í hug,
því þarna eru á ferð sömu lögmálin. Það eru
þessar stóru valdamiklu blokkir sem verða allt-
af að hafa stríð einhvers staðar í heiminum til
að geta drifið apparatið áfram. Líkt og með
stríðsreksturinn þá þarf að knýja þessar vélar
áfram og það eru mjög margir sem græða á
þessu í einhvern smá tíma, en samt held ég að
allir geri sér grein fyrir því að þegar dæmið
verður á endanum gert upp þá tapa allir í raun á
Kárahnjúkavirkjun. Og það sem meira er, ég
held að stjórnmálamennirnir, sem hafa verið að
berjast hvað mest fyrir þessum framkvæmd-
um, geri sér þetta líka fullljóst.“
Aðspurð segist Anna með verki sínu Halló
Akureyri! vera að skoða hvernig framkvæmd-
irnar við Kárahnjúkjavirkjun endurspegli lang-
anir og þrár Íslendinga. Beðin að útskýra þetta
nánar bendir Anna á hversu áberandi löngunin
í skjótfenginn gróða sé í allri umræðunni.
„Ráðamenn telja fólki trú um að við verðum að
fara í þessar framkvæmdir til þess að detta
ekki ofan í sömu fátækt og á árum áður og al-
menningur lætur þetta viðgangast vegna þess
að það er hrætt við bakslag í efnahagslífinu.
Það er hrætt um að geta ekki tekið þátt í
neyslusamfélaginu ef ekki er farið út í þessar
framkvæmdir og þess vegna lætur það eftir sér
að hugsa ekki lengra fram í tímann.“
Framkvæmdirnar munu hafa dýpri og
margslungnari áhrif
Anna bendir réttilega á að Íslendingar hafi
um langa hríð virkjað landið. „Samt er margt
öðruvísi núna við þessa framkvæmd. Bæði er að
verið er að nota mun öflugri tæki þannig að það
er hægt að framkvæma meira á mun skemmri
tíma en áður. Síðan er lykilatriði að þarna er
verið að fara inn á algjörlega nýtt landsvæði,
því þetta er stærsta ósnortna viðátta Evrópu og
við eigum hana ekkert ein. Með þessum fram-
kvæmdum erum við að rjúfa svæði sem hefur á
einhvern óljósan máta verið sá kjarni sem hefur
byggt upp karakter þessarar þjóðar,“ segir
Anna og bendir á að framkvæmdirnar muni að
sínu mati þannig hafa mun dýpri og marg-
slungnari áhrif en við gerum okkur grein fyrir.
„Mér finnst alltaf jafn ótrúlegt að heyra
ráðamenn tala um þessa hreinu orku eins og
þeim beri hreint og beint skylda til að nýta
hana, samanber yfirlýsingu Friðriks Sophus-
sonar, forstjóra Landsvirkjunar, á alþjóðlegri
ál- og orkuráðstefnu sem fram fór fyrr í mán-
uðinum. Í umfjöllun Morgunblaðsins um ráð-
stefnuna var haft eftir Friðriki að í dag notum
við 17% af áætluðu heildarraforkuafli í landinu
og að miðað við áform um álver Alcoa í Reyð-
arfirði og stækkun Norðuráls yrði ársfram-
leiðsla á áli hér á landi árið 2008 250% meiri en
hún er í dag.
Ráðamenn láta það hljóma eins og þeir séu
að vinna góðverk fyrir heiminn á sama tíma og
þeir láta grafa burt þessa ósnortnu víðáttu, sem
okkur ber í raun skylda til að varðveita fyrir
komandi kynslóðir. Í nýlegum sjónvarpsþætti
hlustaði ég á Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra tala um að okkur bæri skylda til að skila
náttúrunni betri til næstu kynslóðar en við tók-
um við henni og ég skil einfaldlega ekki hvernig
hann getur talið sér trú um að hann sé að því.“
Að mati Önnu eru viðhorf almennings til lands-
ins samt að taka örum breytingum. „Einmitt
þess vegna tel ég að ráðamönnum liggi svona
mikið á að virkja Kárahnjúkasvæðið sem fyrst,
því eftir örfáa áratugi mun almenningur ekki
taka virkjunarframkvæmdir á borð við þessar í
mál,“ segir Anna að lokum.
Sýning með innsetningu
Önnu Líndal verður opn-
uð í Listasafninu á
Akureyri í dag, en þar
eru virkjunarmál þjóð-
arinnar í brennidepli.
SILJA BJÖRK HULDU-
DÓTTIR hitti listakonuna
að máli og fékk að heyra
um sýn hennar á
valdníðslu stjórnvalda.
Ljósmynd/Friðþjófur Helgason
Frá virkjunarframkvæmdum við Kárahnjúka.
silja@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
„Fyrir mér felst heilmikil áskorun í því að takast á við beinharðan raunveruleikann á forsendum
myndlistar,“ segir Anna Líndal, en innsetning hennar Halló Akureyri! er í Listasafninu á Akureyri.
VONIN UM SKJÓTFENGINN GRÓÐA
NÝTT menningarkaffihús hefur litið dagsins
ljós í Aðalstræti 10 og hefur fengið nafnið Jón
forseti. Um er að ræða fjölmenningarhús með
margs konar menningaruppákomum. Viðbót
við góðan kaffisopa er neysla á menning-
arlegu góðgæti, s.s. kvikmyndasýningar, bók-
menntaupplestur, leikrit og lifandi tónlist, svo
eitthvað sé nefnt. Á Jóni forseta er einnig
listgallerí í 40 fm rými innaf kaffihúsinu sem
ætlað er til sýningarhalds. Sýningarstjóri hef-
ur verið ráðinn Ragnheiður Ragnarsdóttir
myndlistarmaður og arkitekt. Hún var fram-
kvæmdastjóri Nýlistasafnsins á árunum 1993-
2000.
„Þarna verða metnaðarfullar sýningar,“
segir Ragnheiður. „Staðurinn er ennþá í mót-
un og hefur allar forsendur til að vaxa og
dafna í okkar fjölbreyttu menningarflóru.
Þegar Ragnar Halldórsson, eigandi menning-
arhússins, kom að máli við mig þess efnis að
halda utan um sýningarhaldið sló ég strax til.
Bæði vegna þess að mér finnst spennandi að
taka þátt í þessari tilraun, að fá að hafa áhrif
á mótun og þróun staðarins og eins hefur mér
alltaf fundist vanta svona stað í menningar-
lífið okkar.“
Hvernig listamenn munu sýna hjá ykkur?
„Ég geri ráð fyrir því að þarna sýni hæfir
myndlistarmenn, víðsýnir og áræðnir með
áhuga fyrir því að sýna myndlist á öðrum
stöðum en í hefðbundnum sýningarsölum.
Myndlistarmenn með einhvern bakgrunn eru
náttúrlega ekki tilbúnir að hoppa útí hvað
sem er og myndu ekki taka þátt í sýningu
nema þeir væru sáttir við staðinn, það er al-
veg ljóst. Okkar listræna stefna er ekki lóð-
rétt lína, listamenn mega t.d. mála veggina í
salnum, ef þeim sýnist svo, sem hluta af sýn-
ingunni, þannig að rýmið verður síbreytilegt.“
Þegar Ragnheiður er spurð að því hvernig
hún telji að kaffihús og myndlistasýningar
fari saman segir hún að sýningasalir þurfi
ekki endilega að vera í hvítum kassa. „Sýn-
ingasalir eru þar sem ákveðið er að þeir
verði, þeir þurfa ekki endilega að vera í fyrir-
framgefnu sýningarrými. Við sjáum það t.d. á
Mokka að vel hefur farið að blanda saman
kaffihúsi og myndlist. Það hefur tíðkast til
fjölda ára og verið eftirsóknarvert að sýna
þar.“
Á Jón forseta verða reglulegar sýningar ár-
ið um kring. Fyrsti listamaðurinn til að sýna
er Erla Þórarinsdóttir. Sýningu hennar lýkur
18. mars. Næstur til leiks er Finnur Arnar
Arnarsson og sýnir hann ljósmyndaseríu af
Jóni forseta.
TÍMABÆRT AÐ OPNA
MENNINGARKAFFIHÚS
Morgunblaðið/Golli
Ragnheiður Ragnarsdóttir sýningarstjóri á Jóni forseta. Verk eftir Erlu Þórarinsdóttur í baksýn.