Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.2004, Qupperneq 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. APRÍL 2004 3
Níunda sinfónía
Beethovens
verður flutt á tvennum tónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands í næstu viku. Árni
Heimir Ingólfsson fjallar um verkið og
manninn á bak við það.
Hrafnkell hittir Freud
nefnist grein Úlfhildar Dagsdóttur þar sem
hún les í húsamyndir Hrafnkels Sigurðs-
sonar myndlistarmanns með aðstoð kenn-
inga Freuds.
Kvikmyndahátíðin
í Rúðuborg
fór fram í mars síðastliðnum. Einar Már
Jónsson sótti hana og segir frá því sem fyrir
augu bar.
Mynd af ósýni-
legum manni
er nýútkomin íslensk þýðing á bók eftir
bandaríska rithöfundinn Paul Auster. Í
henni fjallar Auster um látinn föður sinn.
Gunnþórunn Guðmundsdóttir rýnir í bók-
ina.
FORSÍÐUMYNDIN
er af Sólveigu Samúelsdóttur í hlutverki Mirabellu, fóstru Arsenu, og Árna
Gunnarssyni í hlutverki Carnero greifa, umboðsmanns konungs, í gaman-
óperunni Sígaunabaróninum eftir Johann Strauss sem Óperustúdíó Listahá-
skóla Íslands og Íslensku óperunnar frumsýndi í gærkvöldi og sýnir yfir
helgina. Ókeypis er inn á sýningarnar og allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir. Ljósmyndari: Sverrir Vilhelmsson.
F
yrir síðustu jól kom út seinna
bindið af ævisögu Stephans G.
Stephanssonar (1853–1927)
eftir Viðar Hreinsson. Þetta
er vel gerð ævisaga um ein-
stakan mann sem varð einn
merkasti listamaður og hugs-
uður meðal Íslendinga af sinni
kynslóð þótt hann hafi alist upp við þröng-
an kost, flutt til Ameríku rétt fyrir tvítugt
og byrjað þar vinnumennsku með tvær
hendur tómar og aldrei haft efni á að sækja
skóla eða helga lærdómi og listum óskipta
krafta sína. Þótt Viðar geri ævi skáldsins
þau skil sem vænta má er sagan um kveð-
skap Stephans langt frá því að vera full-
sögð og verður það seint. Í kvæðum hans
speglast stór hluti af hugmyndasögu
nítjándu aldar og líklega hafa fá rit haft
meiri áhrif á hugmyndir Íslendinga um sið-
ferði, stjórnmál og trúmál á fyrri hluta
tuttugustu aldar.
Á nokkrum stöðum í ævisögunni nefnir
Viðar að Stephan hafi orðið fyrir áhrifum
frá Bandaríkjamanninum Ralph Waldo
Emerson (1803–1882) og hrifist af ritum
hans. Margt er sameiginlegt með hug-
sjónum Stephans og Emersons. Báðir voru
fylgjandi jafnrétti karla og kvenna, lögðu
áherslu á mikilvægi þess fyrir menn að
halda tengslum við náttúruna og beittu sér
gegn klerkaveldi og tilhneigingu manna til
að láta kreddur og kennivald stjórna hugs-
un sinni í stað þess að skoða málin með eig-
in augum og hugsa sjálfstætt.
Frægasta ritgerð Emersons heitir
Sjálfstraust og er stefnuskrá þeirrar djörfu
og bjartsýnu einstaklingshyggju sem mót-
aði samfélög Norður-Ameríku á seinni
hluta nítjándu aldar. Emerson hvetur les-
andann til að láta af fylgispekt við almenn-
ingsálit og kennivald en treysta heldur
sinni eigin dómgreind. Hann segir: „Grein-
armunurinn á stórmennsku og smásál-
arskap er í þessu fólginn, að láta sig engu
varða hvað aðrir halda, aðeins hvað manni
sjálfum ber að gjöra. Eftir þessu er erfitt
að lifa og jafn erfitt að hugsa. Þú mætir sí-
fellt fólki sem telur sig vita betur en þú
sjálfur hver skylda þín er. Í mannheimi er
auðveldast að fylgja þeim skoðunum sem
þar eru viðteknar. Í einverunni er hins veg-
ar auðvelt að fylgja eigin sannfæringu.
Stórmenni er sá sem varðveitir sjálfstæði
einbúans með óskertum sætleika þótt hann
lifi í miðjum mannfjöldanum.“
Kvæði Stephans kynntu Íslendingum
hugsjónir um stórmannlegt sjálfstæði af
þessu tagi. Þeim bregður fyrir í kvæðum
um afreksmenn eins og Illuga bróður
Grettis og Sigurð Trölla. Þar lofar Stephan
þá sem ekki fara alfaraveg en eru trúir
hugsjónum sínum. Þær koma líka fyrir í
heimspekilegum ljóðum eins og til dæmis
kvæðinu Fullkomleikinn þar sem heiðarleg
viðleitni er meira metin en dyggðir sak-
lausra sauða.
Þegar fyrstu þrjú bindin af ljóðasafni
Stephans, Andvökum, komu út á árunum
1909–1910 voru umbrot í íslensku þjóðlífi.
Verkafólki fjölgaði og markaðshagkerfi
með fyrirtækjum og fjármagnseigendum
var að taka við af bændasamfélaginu.
Stjórnmálahugsjónir sprottnar upp í iðn-
væddum löndum voru teknar að móta við-
horf menntaðra manna. Ólafur Friðriksson
og fleiri kynntu jafnaðarstefnuna fyrir
landsmönnum og róttækar skoðanir áttu
vaxandi fylgi að fagna. Við þessar aðstæður
fundu ljóð Stephans sér hljómgrunn og
höfðu ómæld áhrif á hugsunarhátt landans.
Ég held að allt frá þessum mótunarárum
íslenskra stjórnmála hafi einstaklings-
hyggja og stórmannlegt sjálfstæði Steph-
ans blandast saman við hugsjónir manna
bæði til hægri og vinstri og þetta eitt dugi
til að skipa honum á bekk með merkustu
frumkvöðlum í íslenskri stjórnmálahugsun.
En áhrif Stephans voru ekki aðeins fólgin í
þessu. Hann átti líka sinn þátt í því, ásamt
Þorsteini Erlingssyni og Ágústi H. Bjarna-
syni, að koma Íslendingum í skilning um að
vantrú og efi geta opnað mönnum leið að
andlegum verðmætum. Kvæði hans
Vantrúin hefst á vísuorðunum: „Hún kom
eins og geisli í grafarhúm kalt, / og glóandi
birtuna lagði yfir allt.“
Upplýsingastefnan sem varð til á
sautjándu öld og mótaði hugsun og sam-
félagshætti Vesturlandabúa á þeirri
átjándu fól í sér trú á vísindi og framfarir,
mannréttindi, jafnrétti og frelsi en umfram
allt var hún uppreisn gegn klerkaveldi, rit-
skoðun og andlegri ánauð. Immanuel Kant,
sem var einn af merkustu boðberum upp-
lýsingarinnar í Þýskalandi, sagði í grein
sem birtist árið 1784 og nefnist Svar við
spurningunni: Hvað er upplýsing að kjör-
orð hennar væru: „Hafðu hugrekki til að
nota þitt eigið hyggjuvit.“ Það sem Emer-
son sagði um sjálfstraust er í anda þessarar
upplýsingar og Stephan og samtímamenn
hans sem gerðu hugsjón Emersons að sinni
hljóta að teljast upplýsingarmenn.
Frá upphafi skiptust talsmenn upplýs-
ingarinnar í tvær fylkingar: þá hófsömu
sem fylgdu John Locke (1632–1704) og
vildu laga trúarbrögðin að vísindalegri
hugsun og frjálsmannlegum samfélags-
háttum og þá róttæku sem höfnuðu öllum
hefðbundnum trúarbrögðum. Mikilvægasti
upphafsmaður hinnar róttæku og guðlausu
upplýsingar var Hollendingurinn Baruch
Spinoza (1632–1677). Hugsjónir Stephans
eru grein af meiði þessarar róttæku stefnu.
Ekki veit ég hvort Stephan las rit Spin-
oza. Mér þykir þó trúlegt að hann hafi haft
einhver kynni af þeim, því tæpast getur
það verið hrein tilviljun að kvæðið Tíundir
er nánast eins og endursögn á helstu kenn-
ingum Spinoza. Í kvæðinu segir t.d. að efn-
isheimurinn sé allur veruleikinn og allt sem
gerist fylgi ófrávíkjanlegum lögmálum,
hugmyndir manna um æðri máttarvöld séu
„Okkar stundar útsýn“ (þ.e. ekki orðnar til
fyrir guðlega opinberun heldur af því
hvernig menn með takmarkaða yfirsýn
upplifa tilveru sína) og mannlegt siðferði sé
afsprengi hagsmuna okkar og þarfa. Allt
þetta gæti svo sem verið ættað úr ritum
veraldlega þenkjandi nítjándu aldar manna
fremur en torskildum heimspekiritum frá
17. öld. En ef ég skil Stephan rétt heldur
hann því fram í þessu sama kvæði að allt
sem er í heiminum hafi sál. Hann segir:
„Sál er svipull logi / samankveiktra afla, /
ljós, sem stafar upp af / efnismagni á hreyf-
ing. / Ekkert er um veröld / andar þeirrar
vana.“ Þessi kenning er frá Spinoza. En
hann áleit að allt sem er til sé hægt að
skoða sem efni og líka sem hug. Það er
óljóst hvort Spinoza átti aðeins við að hægt
sé að líta á öll fyrirbæri sem upplýsingar
eða hvort hann áleit að sérhver hlutur hafi
meðvitund með einhverjum hætti. Kenn-
ingar hans um þetta efni eru álíka tor-
skildar og vísuorðin „Ekkert er um veröld /
andar þeirrar vana.“
Barátta upplýsingarmanna stendur enn
og manni virðist stundum „sem framfara
skíman sé skröksaga ein / og skuggarnir
enn hafi ei þynnst“ svo notað sé orðalag
Stephans úr kvæðinu Kveld. Enn hafa
kreddufesta, hindurvitni og bókstafstrú
vond áhrif á siðferði manna og samfélags-
hætti og enn er til fólk sem beygir sig undir
kennivald og þorir ekki að hugsa sjálfstætt
hvort sem það er vegna eiginlegrar skoð-
anakúgunar eða af vesaldómi. Vantrú
Stephans og hvatning til að hugsa sjálf-
stætt á því ekkert minna erindi við fólk nú
en fyrir hundrað árum.
STEPHAN G.
RABB
A T L I H A R Ð A R S O N
VÉSTEINN LÚÐVÍKSSON
ÍSLENSK ELLI, 2002
eftir hálfan mánuð og mikla áreynslu kemur
hún loksins til hans, einsog tófa svæld úr greni,
minningin sem hann hafði saknað svo mjög:
grindhoruð eftir langan og harðan vetur hið innra
þar sem engin voru lömbin til að næra hana, aðeins
horn af hrúti sem eitt sinn átti það skráð skýrum
stöfum að hann hefði skilað hlutverki sínu með sóma
og konan strýkur honum yfir handarbakið, einsog
til uppörvunar, og brosir af því hún hefur fyrir
löngu sætt sig við að lesa sömu blaðsíðuna í sömu
bókinni aftur og aftur, án þess að gera sér minnstu
vonir um að það hafi eitthvað uppá sig við eldhús-
borð sem er jafn óhjákvæmilegt og það er hreint
þegar hann er sofnaður hádegislúrnum staulast hún
útí garð til að vökva blóm sem bera sömu nöfn og
kindur á bænum þar sem hún var fóstruð, kotinu
sem er, ekki síður en trén í garðinum sem nú heita í
höfuðið á kúnum, enn að stækka og skýrast hið innra
já rísa upp með hverju nýju vori og glataðri tönn
Vésteinn Lúðvíksson (f. 1944) hefur gefið út skáldsögur, leikrit og ljóð.
LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR
1 7 . T Ö L U B L A Ð - 7 9 . Á R G A N G U R | U M S J Ó N Þ R Ö S T U R H E L G A S O N
EFNI