Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.2004, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.2004, Qupperneq 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. APRÍL 2004 N orræna kvikmyndahátíð- in í Rúðuborg var haldin í sautjánda skiptið dag- ana 17.–28. mars, með bækistöð sína í stóru tjaldi við hliðina á got- nesku dómkirkjunni, samkvæmt gamalgró- inni hefð. Frá upphafi hefur það verið mark- mið hátíðarinnar að kynna kvikmyndagerð á norðurslóðum, og var hún fyrst takmörkuð við Norðurlönd, síðan voru Eystrasaltslönd tekin með og loks einnig Holland, Belgía og Saxland. Þótt forsprakkar hátíðarinnar kvarti á stund- um yfir lélegu sambandi við Íslendinga, hefur íslenskum kvikmyndum verið gert hátt undir höfði, þær hafa stundum fengið verðlaun, og gerðist það einnig að þessu sinni, því fulltrúi Íslands í samkeppninni, myndin „Salt“ sem var eftir Bandaríkjamanninn Bradley Rust Gray en gerð á Íslandi og með íslenskum leik- urum, fékk svokölluð „verðlaun ungra áhorf- enda“. Þau voru upphaflega veitt af dómnefnd menntaskólanema í Rúðuborg en voru nú í höndum nemenda frá ýmsum Evrópulöndum. Hafi menn vonast til þess í byrjun að kvik- myndahátíðin í Rúðuborg gæti stuðlað að því að koma norrænum kvikmyndum á framfæri í Frakklandi, er varla hægt að segja að þær von- ir hafi ræst, en um það er ekki við aðstand- endur hátíðarinnar, Jean-Michel Mongrédien og Isabelle Duault, að sakast. Þau hafa unnið mikið starf. En þegar maður er staddur í Frakklandi, í frönskum menningarheimi, virð- ist eins og einhver ósýnilegur múrveggur liggi þvert í gegnum álfuna og sé meiri háttar sam- göngutruflun á leið menningarafurða, svo sem bókmennta, myndlistar og tónlistar, frá Norð- urlöndum suður til Frakklands. Þær sem hverfa ekki með öllu á þessu flakki, komast á leiðarenda rifnar úr sínu upphaflega sam- hengi, kannski fyrir einhverjar annarlegar ástæður, svo sem snobberí, og oft á tíðum of- urseldar alls kyns misskilningi. Þekktur franskur gagnrýnandi sagði einu sinni að Síb- elius væri „versta tónskáld veraldar“, og er ekki að furða þótt Frakkar hafi lengi fúlsað við honum. Að Grieg er gjarnan brosað háðslega og Carl Nielsen er nánast óþekktur. Jafnvel Ibsen átti harla erfitt uppdráttar í Frakklandi, þangað til Patrice Chéreau setti „Pétur Gaut“ á svið árið 1981, – ef eitthvert leikrit hans var á annað borð sýnt veltu gagnrýnendur því fyrir sér hvers vegna menn væru eiginlega að dusta rykið af þessum þriðja flokks höfundi sem best væri að láta liggja áfram í gleymsku – og þann- ig mætti lengi telja. Þetta gildir ekki síður um kvikmyndir en annað. Fyrir hálfri öld samdi Boris Vian og söng svo inn á plötu lag sem hann nefndi „Ég er snobb“. Með ýktri og til- gerðarlegri rödd taldi hann upp þau furðulegu uppátæki sem þessum ósköpum fylgdu, og var eitt atriðið í þulunni: „Ég horfi á sænskar kvik- myndir“. Þurfti þá ekki lengur vitnanna við. Hvað sem þessu líður er það athyglisverð stað- reynd, að ýmsar kvikmyndir sem mikla athygli hafa vakið á Norðurlöndum undanfarin ár, hafa alls ekki verið teknar til venjulegrar dreifingar í Frakklandi, og má nefna „Hams- un“ og grænlensku myndina „Í hjarta ljóss- ins“, sem báðar voru sýndar í Rúðuborg á sín- um tíma. Það var sorglegt hvað franskir gagnrýnendur misskildu myndina „Hafið“ eft- ir Baltasar Kormák: einn þeirra hélt að ungi maðurinn sem er staddur í París í byrjun myndarinnar og hans franska kærasta væru aðalpersónurnar og myndin snerist um Ís- landsferð þeirra. Raunverulegt viðfangsefni myndarinnar virtist fara fram hjá þeim með öllu. Frá þessu áhuga- og skilningsleysi Frakka eru yfirleitt ekki nema fáeinar und- antekningar. Á þessum síðustu tímum eru undantekningarnar Lars von Trier, Aki Kaur- ismäki og „Nói albínói“ (sem fékk aðalverð- launin í Rúðuborg í fyrra, og var það upphaf ferils hennar í Frakklandi). Túlkanir gagnrýn- enda á „Nóa albínóa“ voru þó stundum dálítið skrautlegar. En þetta sem hér hefur verið sagt gildir þó ekki í sama mæli um öll héruð Frakklands. Í Normandí hefur lengi verið lifandi áhugi á Norðurlöndum og Norðurlandamenningu, og þótt Parísarpressan virði kvikmyndahátíðina varla viðlits – þegar Jean-Michel Mongrédien reyndi að fá blaðamenn frá París á kynning- arsýningu á mynd eftir Vilgot Sjöman spurðu þeir aðeins: „hvaða kújón er nú það?“ – er ljóst að í Normandí vekur hátíðin mikla athygli fjöl- miðla og dregur að sér fjölda áhorfenda. Að því leyti er þess vegna betur farið en heima setið. Kvikmyndahátíðin í Rúðuborg er jafnan tví- þætt: annars vegar er samkeppnin, þar sem nokkrar myndir eru valdar og lagðar undir dóm dómnefndar og áhorfenda, og svo ýmiss konar dagskrár helgaðar einhverjum þáttum kvikmyndagerðar á norðurslóðum fyrr og síð- ar. Þar sem samkeppnin er þverskurður af því sem helst er á seyði hverju sinni, endurspeglar hún uppsveiflur og öldudali. Svo var að heyra á hátíðargestum, að þeim fyndust nú samkeppn- ismyndirnar heldur í lægri kanti, miðað við það sem oft hefur áður verið. Af þeim tíu myndum sem voru í samkeppninni í ár voru reyndar sex fyrsta eða önnur mynd viðkom- andi höfundar, margar fjölluðu um unglinga og vandamál þeirra, og hef ég grun um að slíkt kunni að fæla suma áhorfendur frá. Það var norsk mynd að nafni „Himmelfall“ eftir Gunnar Vikene sem fékk aðalverðlaunin, og er mér ekki alveg ljóst hvort það var af verðleikum sem aðrir myndu meta eða af því að í Normandí virðast norskar myndir jafnan hafa mikinn byr í seglin. Þessi mynd gerist á geðveikrahæli og segir einkum frá ungmenn- unum Reidari, sem er sannfærður um að hann geti búist við að fá loftstein í kollinn, og Juni, sem er slæg og gefur mönnum brokkandi og skriðþungan kinnhest ef þeir koma í minna en 80 sm fjarlægð frá henni. Erfitt var verjast þeirri tilfinningu að þessi tvö væru komin úr bresku myndinni „Family Life“ með fáum millilendingum. En sögusvið norsku myndar- innar var víðtækara, og var það einn megin- þáttur hennar að þeir sem voru utan veggja geðveikrahælisins voru yfirleitt ennþá tjúllaðri en þeir sem voru innan veggja þess. Norsk kona áleit að það væri boðskapur myndarinn- ar. Í lok hennar réttir Juni Reidari höndina, að vísu eftir að hafa slegið hann harkalega, ekk- ert bólar á loftsteini, en flugeldageymsla springur. Myndin gerist í Stafangri, eins og áhorfendur fá gjörla að heyra strax í byrjun, en meðal persónanna er danskur geðlæknir sem talar dönsku eins og gerist og gengur. Ekki virðist það valda neinum vandræðum fyr- ir aðrar persónur, en í hvert skipti sem hann upplýkur sínum túla birtist hins vegar norskur texti með vandlegri þýðingu. Þegar læknirinn segir „ja“ eins og Dönum er títt, stendur því skilvíslega neðst á tjaldinu „ja“. Þetta fannst mér nú ógreiði við þá sem eru að reyna að út- skýra fyrir Frökkum hvað Norðurlandamál eru lík. Þau verðlaun sem áhorfendur hátíðarinnar veittu hlaut finnska kvikmyndin „Hundaklóa- klipparinn“ eftir Markku Pölönen. Í byrjun hennar eru finnskir hermenn að leggja út í stríð gegn Rússum til að reyna að endur- heimta þau landsvæði sem Finnar misstu í vetrarstríðinu 1940, og fær áhorfandi þá til- finningu að þarna sé á ferðinni enn ein finnsk stríðsmyndin frá. En framhaldið er óvænt. Myndin segir frá ungum manni sem fær kúlu í höfuðið í stríðinu og er fáviti eftir það. Einhver segir honum frá öldruðum hundi með klær sem vaxa vitlaust, þannig að það verði að klippa klærnar eða lóga skepnunni, og þá hleypur hann af stað norður á bóginn til að lækna hundkvikindið. Á leiðinni hittir hann gamlan félaga sinn sem tekur hann með sér og fær handa honum vinnu við skógarhögg. Aðal- efni myndarinnar er það hvernig menn leggj- ast á eitt að vernda þennan illa farna mann gegn þeim skakkaföllun sem yfir honum vofa í því ástandi sem hann er kominn í. Að lokum klippir hann klærnar, en hundurinn launar honum lækninguna með því að skella skolt- inum utan um handlegg hans, þannig að af því hlýst blóðeitrun. En maðurinn lifir það af og myndinni lýkur á táknrænan hátt, á hátíðis- degi skáldsins Runeberg með blaktandi finnskum fánum. Myndin var uppfull af mann- úð, kannski í fullstórum skammti, og það var óvenjulegt að sjá finnska mynd sem var gjör- samlega laus við fyllirí, hnífstungur, banaslys í ölæði og manndráp, og reyndar sérstæð þótt víðar væri leitað til samanburðar. Var það kannski þess vegna sem hún fékk svo góðar viðtökur áhorfenda. Um myndina „Salt“, sem var fulltrúi Íslands í samkeppninni, voru skoðanir í meira lagi skiptar. Ýmsum fannst hún harla slæm, en hún fékk náð fyrir augum, „ungra áhorfenda“ og voru þó ýmsar aðrar myndir í keppninni sem virtust vel til þess fallnar að fá verðlaun þeirra. Þessi mynd var vissulega sér á báti, í ætt við „tilraunamyndir“, því hún var tekin á hreyf- anlega myndavél, hlutar hennar áttu reyndar að vera viðvaningslegt myndband sem persón- ur hennar gerðu sjálfar, og því voru einstök at- riði hennar oft á einhverri stanslausri ferð, öll á skjön og með miklum hoppum og heljar- stökkum, og tengsl þeirra og persónanna sín á milli í meira lagi óljós framan af. Meginhluti myndarinnar, eftir langan inngang, var ferð tveggja ungmenna, sem koma að austan og sitja föst í smábæ (Hofsósi) vegna bilunar í bíl, og sagði frá þeim tilfinningum sem kvikna með þeim. Fara þá þræðirnir fyrst að koma saman og verða skiljanlegir. Aðalleikkonur myndar- innar, Brynja Þóra Guðnadóttir og Melkorka Huldudóttir, voru mættar í Rúðuborg og stóðu hetjulega fyrir svörum í umræðum í lok þeirr- ar sýningar sem ég sá. Áhorfendur höfðu skilið sögulok á þann veg að aðalpersónan fargaði sér með því að ganga í sjóinn, en Melkorka leiðrétti það og sagði að í rauninni væri hún af selaættum og breyttist því í sel. Þetta er myndbreyting sem ég held að Óvíd skáld hafi haft takmarkaða nasasjón af, og var þetta eitt af því sem hefði mátt koma skýrar fram. Það hefur kannski orðið þessum þremur myndum til framdráttar að þær voru lausar við það ofbeldi sem gagnsýrði ýmsar aðrar myndir og stuðlar einnig að því að fæla áhorf- endur frá. Hollenska myndin „Guði gleymdir“ eftir Pieter Kuijpers sagði frá unglingi sem lendir í slagtogi með smáglæpon og flækist þannig í innbrot sem verður að morði án þess að nokkuð slíkt hafi nokkru sinni verið á dag- skrá. Eftir það sígur æ meir á ógæfuhlið, mað- ur heldur eitt andartak að eitthvert ljós fari að renna upp fyrir unglingnum en í stað þess er framhaldið ekki annað en meira ofbeldi sem verður sífellt sóðalegra og sóðalegra. Danska myndin „Slátrararnir grænu“ eftir Anders Tomas Jensen sagði frá mannáti í Danmörku, en þar sem slíkt er ekki þáttur í mínu andlega fóðri leiddi ég þá mynd hjá mér. En það var líka nóg að sjá fyrir þá sem vildu hvíla sig á þessum uppskriftum samtímans. Ein dagskrá var helguð verkum Lars von Trier og önnur verkum Vilgot Sjömans, og fleiri kynningar voru í gangi. Þar á meðal gat að líta forkostulega „dans- og söngvamynd“ finnska frá 1950, „Veru fögru“, sem gerist á báti sem siglir til Pétursborgar með timbur- farm og sígaunastúlkuna Veru innanborðs á þeim tíma þegar Finnar lutu Rússakeisara. Á sögunni var hvorki haus né sporður, hún var full af öllum hugsanlegum og óhugsanlegum klisjum, og allt varð að tilefni til sjómanna- dansa, sígaunadansa, kósakkadansa o.þ.h., sem jafnframt voru skopstældir í aðra röndina. Þetta var drepfyndið frá upphafi til enda. Svo var önnur finnsk mynd, nýleg að vísu (frá 2003) en eigi að síður allfjarlæg okkar veröld: „Brúður sjöunda himins“ eftir Markku Lehm- uskallio og Anastasiu Lepsui. Hún gerðist meðal nenet-þjóðarinnar, sem býr í tjöldum nyrst í Rússlandi og stundar hreindýrabúskap, og fjallar hún um aldraða konu sem var á unga aldri vígð til að vera brúður goðsins Num: seg- ir hún barnungri, blindri stúlku sögu sína, sem jafnframt er sýnd. Myndin var ljóðræn og öll töluð á máli neneta (sem áður voru kallaðir samojedar). Höfundar hennar hafa gert fleiri myndir um þessa þjóð, m.a. merkilega heimild- armynd sem sýnd var í Rúðuborg í fyrra. Ef menn vildu hins vegar sjá eitthvað sem væri þónokkuð nær vandamálum líðandi stundar, vantaði ekki stundlegar myndir, heimildarmyndir og aðrar. Meðal þeirra var danska myndin „Færøerne. DK“ eftir Ullu Boje Rasmussen, sem var kölluð „Maraþon í átt til sjálfstæðis“ í Frakklandi og sagði frá samningaumræðum Dana og Færeyinga um hugsanlegt sjálfstæði eyjanna. Þar voru stjórnmálamenn sýndir í návígi, með bólum og vörtum að sumir sögðu, og myndin endaði á orðastappi um efni sem Íslendingum er að vísu kunnugt: skilgreiningu á orðinu „þjóð“. For- sætisráðherra Dana hafði tvær færeyskar orðabækur að vopni og dugði þó ekki. Málið var með öllu óútkljáð þegar myndinni lauk. Hollenska heimildarmyndin „Uppskeran eftir þögnina“ var af öðru tagi. Hún sagði frá fimm kínverskum nútímatónskáldum sem urðu illi- lega fyrir barðinu á „menningarbyltingunni“ ósællar minningar en sluppu þó án þess að bíða varanlegt tjón og náðu að hasla sér völl. Segja þau frá reynslu sinni, en í myndinni hljómar einnig tónlist þessara manna og sem kontrapunktur við hana eru svipmyndir frá Kína nútímans. Geta áheyrendur reynt að skynja tengsl á milli. Þannig er kvikmyndahátíðin í Rúðuborg gluggi í margvíslegar áttir og er það ekki síst gildi hennar fyrir franska áhorfendur og aðra. Ég spurði aðstandendur hennar um nokkrar íslenskar myndir sem mér fannst að hefðu vel átt heima á einhverri dagskrá en sáust þar ekki, m.a. heimildarmyndina „Hlemm“. En þær þekktu þau ekki: þessar myndir höfðu ekki verið sendar. SELKONA Í RÚÐUBORG E F T I R E I N A R M Á J Ó N S S O N Hafi menn vonast til þess í byrjun að kvikmyndahá- tíðin í Rúðuborg gæti stuðlað að því að koma nor- rænum kvikmyndum á framfæri í Frakklandi, er varla hægt að segja að þær vonir hafi ræst, segir í þessari grein um hátíðina sem haldin var síðast í mars. Í Normandí vekur hátíðin hins vegar mikla athygli fjöl- miðla og dregur að sér fjölda áhorfenda. Íslenska myndin Salt eftir Bandaríkjamanninn Bradley Rust Gray fékk svokölluð „verðlaun ungra áhorfenda“ í Rúðuborg í mars. Höfundur er íslenskukennari við Sorbonneháskóla í París.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.