Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.2004, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.2004, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. JÚNÍ 2004 5 unarsemi að vera að skrifa þessar bækur og gefa út svo fólk kaupi og lesi? En ég geri það nú samt.“ Meginmáli skiptir þó hvað er innan í forminu Mig langar að lokum að spyrja þig út í stöðu ljóðsins. Ég hef það á tilfinningunni að íslenska ljóðið hafi aldrei vaxið upp úr mód- ernismanum. Og ég held að þetta sé hálfgert tabú í íslenskri bókmenntaumræðu. Það eru reyndar eiginlega allir hættir að skrifa um ljóð. Og yngri skáld eru flest að skrifa ljóð eins og þau voru skrifuð fyrir fimmtíu árum. Eða hvað? „Mér finnst þetta merkilegt, en ég hef aldrei velt þessu fyrir mér. Það getur vel verið að eitthvað sé til í þessu, en mér finnst til að mynda skáld eins og Kristín Ómars- dóttir vera að yrkja á mjög frumlegan hátt. Mér finnst líka Óskar Árni Óskarsson frum- legt skáld, til dæmis í Lakkrísgerðinni. Staða ljóðsins er mjög dularfull. Fólk kaupir ekki ljóðabækur en það les ljóð, það les þau meira að segja oftar en einu sinni ólíkt skáldsögum, og fólk kemur á ljóða- upplestra. Það er eins og ljóðið lifi skuggalífi en sé samt ódrepandi. En kannski er þetta rétt hjá þér. Það kemur ef til vill ekki til af góðu hvað mér þykir miklu erfiðara að skrifa skáldsögur en ljóð. Hugsanlega tekur maður ljóðforminu sem gefnu í stað þess að umturna því eins og skáldsögunni.“ Finnst þér þetta form virka? „Ég er ekki viss um eitt eða neitt sem ég er að gera, en ég er örugg í ljóðinu. Það þarf ekki að vera góðs viti. Meginmáli skiptir þó hvað er innan í form- inu.“ throstur@mbl.is HVERS konar heim býr Steinunn Sigurðardóttir lesendum sínum? Nú þegar allar ljóðabækurnar hafa verið endurútgefnar í einu bindi vakna upp spurningar um fólkið og heimana sem þær hýsa. Sá lesandi sem fetar sig ár fyrir ár og ljóð fyrir ljóð inn í safnið hlýtur að staðnæmast stöku sinnum og spyrja sig eins og konan í einu ljóði Steinunnar: „Hef ég verið hér áður, er það satt?“ Viðfangsefni margra ljóðanna eru gamalkunn- ug: Maður og náttúra, ást, einmanaleiki og að- skilnaður, tími sem eirir engu og dauðinn á næstu grösum. En þessi þemu spretta af ákveðnum myndum sem sumar raðast saman og mynda heild sem má rekja á milli bóka, á meðan aðrar standa stakar. Í ljóðheimum Steinunnar er fólk á sífelldu flakki. Það heldur út í daginn eða nóttina eftir vegunum og brautum lestanna. Það dokar við eina kvöldstund á krá eða kaffihúsi, en lætur aldrei staðar numið. Að vera ekki á stans- lausri hreyfingu jafngildir því að deyja. Í ljóðum Steinunnar má sjá konur í útför, konur í kirkju- görðum, konur sem eru myrtar eða grafnar lif- andi í kartöflugarði, konur sem verða úti í stór- hríð og heimavinnandi konur að hakka kjöt. Við sjáum konur sem sitja við opna glugga og lesa bækur þegar regnið fellur, á meðan aðrar sauma við lokaða glugga og stormurinn lemur rúðurnar. Svona mætti lengi telja. Á kápu skáldsögunnar Ástin fiskanna (1993) er að finna málverkið Hrafnabjörg eftir Jón Stef- ánsson. Því er ekki neita að sum ljóð Steinunnar minna á gullaldarskeið íslenska landslagsmál- verksins. Í þeim birtist sterk og persónuleg vit- und um sérkenni íslenskrar náttúru þar sem samspil „lands og sjálfsveru verður aldrei til- gerðarlegt þótt unnið sé með hugmyndir um náttúruna sem táknræna umgjörð eða ramma ut- an um sálarlíf sögupersóna“ svo vísað sé í um- fjöllun Eiríks Guðmundssonar um Hjartastað (1995), en hann segir jafnframt að fara þurfi langt aftur til að finna „skáldsögu sem virkjar og endurnýjar sýn okkar á íslenska náttúru á jafn velheppnaðan hátt og saga Steinunnar gerir“. Náttúrumálverkin má finna víða í ljóðabókum Steinunnar, jafnt í stökum ljóðum og svo ljóða- flokkum á borð við „Gróður himins og jarðar“ í Verksummerkjum (1979), „Á suðurleið með myndasmið og stelpu“ í Kartöfluprinsessunni (1987) og „Árstíðasöngli“ í Kúaskít og norður- ljósum. Í Hekluljóðunum tveimur í Hugástum (1999) skoðar Steinunn þetta fræga eldfjall frá ýmsum hliðum, frá hringveginum og innan af há- lendinu, frá Rangárvöllum og úr Gnúpverja- hrepp. Hún setur upp trönur sínar og festir það sem fyrir augun ber á blað: Hekla framanverð er meyprinsessa spengileg, grimm, á köflum banvæn. Þessa hlið þekkir það dauðlegt fólk sem skröltir á hringvegi. Önnur Hekla blasir við görpum sem hætta sér inn á hálendistómið: Óþekkjanleg stútungskerling breið og brussuleg aftanfyrir. Verðlaun ofurhugans, segja hringvegsmenn. Ljóðum Steinunnar er ætlað að endurheimta tilfinningu lesandans fyrir lífi og náttúru, að vinna gegn vélrænu hversdagslegra athafna og hjálpa honum að upplifa nánasta umhverfi sitt á nýjan leik, en það taldi rússneski formalistinn Viktor Shklovskíj vera helsta hlutverk listarinn- ar. Listamaðurinn neyðir menn til að sjá hlutina í nýju og óvæntu ljósi með því að framandgera veruleikann, en aðferðinni er ætlað að gera form- ið torvelt, „að auka á erfiðleika skynjunarinnar og teygja úr henni, þar eð skynjunarferlið er list- rænt markmið í sjálfu sér og verður því að fram- lengja.“ Í ljóðinu hér að ofan birtist framand- gervingin ekki aðeins í því að Hekla skuli vera kvengerð. Sjónarhornið varpar ljósi á hinar ólíku en ógnvænlegu kvenmyndir eldfjallsins, annars vegar höfum við hina vel þekktu meyprinsessu sem ber við himin frá hringveginum, hins vegar þá framandgerðu stútungskerlingu sem kemur í ljós frá óvæntu sjónarhorni hálendisins. Í ljóðum Steinunnar halda rykugir þjóðveg- irnir alltaf áfram út í sjóndeildarhringinn. Við veginn vex fífa og stráin bifast í léttri golu. Utan vega uppi á heiði má finna tærar uppsprettur og í lautum speglar himinninn sig í litlum tjörnum. Ferköntuð ský gára vatnið á leið sinni milli fjallstinda. Það er enn snjór í hæstu fjöllum þó að komið sé fram í júlí. Þó að oftast blási er stundum líka blankalogn og sumargras sem má sofna í. Þegar haustar leitar snjórinn niður hlíð- arnar ofan í dalinn og ef við horfum nógu lengi sjáum við svartan hest í urð undir fjalli sem bít- ur daufgult gras. Bráðum leggur tjarnirnar og rotnandi laufið þekur jörðina. Mýrar liggja undir moldugum himni á meðan vindurinn gnauðar og lemur svartar greinar trjánna. Tunglið hangir í fjallstindi og þögnin á öræfum þéttist. Aðeins melar og hjarn, freðnir stígar og norðurljós. Þó að spáin sé góð verður að hafa allan vara á, því að ljóðið er óútreiknanlegt eins og íslenska veðrið. Úr formála Guðna Elíssonar er nefnist Hef ég verið hér áður? Í þversagnarkenndum tíma Í fornum sögum um guði í skógarlundum, um frjósemisgoð sem deyja og fæðast á víxl, má merkja dulda von mannsins um að leggja megi menn og náttúruna alla að jöfnu, að hringrás náttúrunnar gefi vísbendingu um mannlegt hlut- skipti. Náttúruelegíur eru þannig í bland frið- þægingarljóð þar sem hverfulleiki lífsins er har- maður, en endurnýjun náttúrunnar er ætlað að fullvissa okkur um upprisu sálarinnar í næsta lífi. Þessi staðreynd hefur ekki farið framhjá Steinunni. Í fimmta hluta „Daga og svo fram- vegis“ rífur hún í sundur þau nærandi tengsl manns og náttúru sem birtast okkur í goðsög- unni. Eftir stendur kraftmikil greining á blekk- ingunni sem stýrir trú okkar á hringrás lífsins, tregaljóð þar sem engin von er gefin, ekkert fyr- irheit um huggun og upprisu: Að hætta og deyja hvað er það? Að verð’ ekk’ eldri aldrei vera hættur. Ganga engar götur ganga ekkert. Hitta engan engan ekki kjaft vera hættur hættur eins og hausttré. Nei hausttré byrjar aftur núna í vor en ekki sá sem hættir hann er hættur eins og eitthvað ég veit ekki hvað og byrjar ekki aftur byrjar aldrei. Við deyjum ekki eins og náttúran á haustin vegna þess að náttúran fellur í dvala og vaknar aftur til lífsins ólíkt okkur. Maðurinn er ekki heldur hluti af hinni náttúrulegu hringrás í nein- um persónulegum skilningi. Dauði mannsins er svo endanlegur að alla merkingu þrýtur frammi fyrir honum. Hann verður ekki einu sinni tjáður í ljóði, hann er „eins og eitthvað ég veit ekki hvað“. Skilningur ljóðmælandans í fimmta hluta „Daga og svo framvegis“ fangar fullkomlega þá írónísku tilvistarsýn sem ég gerði að umræðuefni fyrr í þessari grein, hugmyndina um fallið. Paul de Man tengdi tilvistarstöðu mannsins persónu- legum og raunverulegum tengslum hans við nátt- úruna og valdaleysi frammi fyrir henni. Náttúr- an getur breytt manninum í lífvana hlut, en maðurinn megnar ekki að gæða minnsta hluta náttúrunnar persónuleika. Írónískt fall einstak- lingsins leiðir í ljós endanleika tilvistarinnar, að „sá sem hættir hann er hættur“ og „byrjar ekki aftur“ þrátt fyrir þá nærandi blekkingu sem per- sónugerving náttúrunnar birtir í bókmenntum og trúarbrögðum. Þetta veit aðeins sá sem hefur fallið og það er aðeins eftir fallið sem eðli mann- legrar tilvistar verður ljóst. Þessi skilningur á tengslum manns og náttúru mótar að mínu mati tímavitundina í skáldskap Steinunnar þó að hún komi sjaldan jafn berlega í ljós og í ofangreindu ljóði. Verk Steinunnar Sigurðardóttur heyra undir táknsögulegan veruleika af því tagi sem breytir strandkistum í standklukkur. Bækur hennar tifa áfram njörvaðar niður í þversagnarkenndum tíma sem oftast er annað hvort liðinn eða í vænd- um. Í þeim er varpað fram þeirri spurningu hvernig við getum fyllilega verið til á meðan for- tíðin heldur okkur föstum og framtíðin hrifsar okkur gráðug til sín. Svarið felst kannski í þeirri list að lifa innihaldsríku lífi. Úr grein Guðna Elíssonar í Ritinu (1/2004) er nefnist Í kirkjugarði nefnum við ekki nöfn. HEF ÉG VERIÐ HÉR ÁÐUR? Guðni Elísson ritar inngang að Ljóðasafni Steinunnar Sig- urðardóttur. Hann hefur einnig nýlega birt grein um ljóð Steinunnar í Ritinu. Hér eru birt brot úr ritgerðum Guðna. Nokkrar myndir frá skáldaferli Steinunnar Sigurðardóttur. Myndin efst til vinstri eftir Jón Kaldal var tekin 1970, ári eftir útkomu fyrstu bókarinnar. En ég er mikil efasemda- manneskja. Ég þrífst til dæmis ekki í hópum og ekki í trúarbrögð- um og ekki stjórnmála- flokkum. Ég get ekki að- hyllst eina stefnu í öllum málum. Á einhverjum tímapunkti byrja ég alltaf að efast.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.