Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.2004, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.2004, Blaðsíða 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. JÚNÍ 2004 R onald Reagan er allur og hefur ef til vill fengið svarið við spurn- ingunni sem hann gerði að yf- irskrift einnar „sjálfsævisögu“ sinnar: Wherés the Rest of Me? Bókin kom í Bandaríkjunum ár- ið 1965, löngu áður en Reagan varð forseti og ári áður en hann varð ríkisstjóri Kaliforníu. Bókin er skilgreind sem sjálfsævisaga enda þótt Reagan sé ekki einn um að stýra pennanum heldur er skráður meðhöfundur hans Richard G. Hubler.1 Þessi sjálfsævisaga er bráðskemmtileg, hún er skrif- uð í fyrstu persónu af ágætum húmor og – eins og við er að búast – mikilli þjóðerniskennd. En það er ekki síst titill hennar sem mig langar að dvelja við núna þegar Reagan er allur. Þessi tit- ill gæti í raun staðið sem yfirskrift allra sjálfs- ævisagna því í honum felst sá kjarni sem líklega býr að baki flestum sjálfsævisagnaskrifum. Titilinn sækir Reagan til þeirrar setningar sem er honum minnisstæðust frá leikaraferlin- um, því eins og alkunna er þá lék Ronald Reag- an í ýmsum Hollywood-kvikmyndum áður en hann brá sér í gervi forseta Bandaríkjanna. Kvikmyndin sem hér um ræðir heitir King’s Row og er byggð á samnefndri skáldsögu eftir rithöfund að nafni Henry Bellamann. Í mynd- inni leikur Ronald Reagan kvennabósann Drake McHugh. Hápunktur myndarinnar er at- riði þar sem Drake McHugh hefur lent í slysi og þarf að gangast undir uppskurð. Hann lendir undir höndum skurðlæknis nokkurs sem á hon- um lambið gráa að launa. Drake McHugh hefur nefnilega dregið dóttur læknisins á tálar og full- ur hefndarþorsta notar faðir hinnar smánuðu ungu konu tækifærið þegar hann hefur bósann hjálparlausan á valdi sínu og aflimar hann, tek- ur af honum báða fætur við mjaðmalið (var ein- hver að tala um geldingartáknmál?). Drake greyið vaknar upp eftir aðgerðina, opnar augun og lítur vankaður niður eftir aflimuðum skrokk sínum og hrópar í örvæntingu: Wherés the Rest of Me?! Þessa ógleymanlegu setningu velur Reagan síðan sem titil sjálfsævisögunnar og er það val ekki út í bláinn. Þeir sem skrifa sjálfs- ævisögur eru í flestum tilvikum að reyna að púsla sér saman í heildstæða mynd. Búa til línu- lega frásögn af ævi sinni, tína saman part héðan og part þaðan, skipa þeim niður í frásögn, sögu af sjálfi, af ævi: Sjálfsævisögu. En auðvitað get- að þeir aldrei sagt söguna alla, það er alltaf eitt- hvað sem sleppt er eða sleppur undan, einhver rest – jafnvel þótt sá sem skrifar trúi því að hann geti sagt sögu sína á heildstæðan hátt. Wherés the Rest of Me? Spurningin er ekki síst skemmtileg í póstmódernísku samhengi. Þá er ég að vísa til þess póstmóderníska skilnings á sjálfinu (hugverunni) sem gengur út frá því að allar hugmyndir um heildstætt sjálf séu falskar. Forsenda hugverundar okkar býr ekki í frjálsri, meðvitaðri hugsun sem skapar okkur heild- stæða lokaða sjálfsmynd – líkt og við höfum vilj- að trúa lengst af – heldur er sjálfið ferli í stöð- ugri þróun, ófrjálst eða bundið ómeðvituðum (dulvituðum) þrám og löngunum. Spurningin Wherés the Rest of Me? getur því tjáð þetta hugveruástand; við þráum einingu sjálfsins, samruna og heildstæða nærveru, þá sem við upplifðum í frumbernsku þegar við vorum hluti af móðurlíkamanum, eins og sálgreiningin orðar það, en misstum fyrir lífstíð þegar sjálf okkar klofnaði frá móðurlíkamanum, dulvitundin varð til og við gengumst lögmáli föðurins, samfélags- ins og tungumálsins á vald. Þá tók við fjarveran og þráin sem rekur okkur sífellt áfram frá tákn- mynd til táknmyndar í eilífri leit merkingar og sjálfsskilnings: Wherés the Rest of Me? Nú er það ekki svo að Ronald Reagan sé að tjá þennan póstmóderníska skilning hugver- undar þegar hann velur sjálfsævisögu sinni þennan titil. Hann trúir reyndar því gagnstæða, hann heldur fast í þá blekkingu að maðurinn geti búið yfir heildstæðu sjálfi og lýst því í sjálfs- ævisögu. Hann segir sögu sína á nokkuð hefð- bundinn hátt, byrjar á að lýsa fæðingu sinni þar sem hann skýst í heiminn 6. febrúar 1911 ná- hvítur, eldrauður og blár – eins og bandaríski fáninn. Frásögnin fylgir síðan lífsferli hans í réttri tímaröð og eins og búast má við er lengst dvalið við leikaraferil Reagans sem spannaði tvo áratugi og 53 þrjár kvikmyndir. Þótt titilinn Wherés the Rest of Me? megi túlka sem tján- ingu á sundruðu sjálfi (eins og ég geri hér að of- an) vísar hann hjá Reagan einfaldlega til þess að æviferli hans er ekki lokið þegar bókinni lýkur, hann er ekki allur, og þess vegna gæti þessi spurning allt eins staðið sem yfirskrift allra sjálfsævisagna. II Vikjum sögunni að annarri bók um Ronald Reagan, í þetta sinni er um ævisögu að ræða – eða hvað? Bókin Dutch: A Memoir of Ronald Reagan2 eftir hinn þekkta bandaríska ævi- sagnaritara Edmund Morris (hann hlaut Pulitz- er verðlaunin fyrir ævisögu sína um Theodore Roosevelt) kom út árið 1999 og vakti samstundis gífurlegar deilur sem snerust ekki síst um að- ferðir og vinnubrögð höfundar. Verkið er svo- kölluð „opinber“ (authorized) ævisaga Reagans, þ.e.a.s. það er unnið með vitund og vilja Ronalds Reagan sjálfs sem réð Morris til starfans eftir endurkosninguna 1984 og fékk honum öll hugs- anleg gögn í hendur og leyfi til að fylgjast með lífi sínu og störfum í Hvíta húsinu. Þetta mun vera einsdæmi, að ævisagnaritari forseta hafi slíkan aðgang að viðfangi sínu. En fjölskylda Reagans var víst ekki alls kostar sátt við bókina þegar hún kom út því Morris fer áður óþekktar leiðir í ævisagnaritun merkra manna. Hann tek- ur sér nefnilega skáldaleyfi, blandar skálduðum persónum inn í frásögn sína af ævi forsetans. Morris býr til sögumann, persónu sem ber nafn- ið Edmund Morris og er samtíða Reagan og vitni að flestu því sem mestu máli skipti í lífi hans (minnir á aðferðina í kvikmyndinni Forr- est Gump þar sem hetjan verður vitni að öllum helstu sögulegum tíðindum tuttugustu aldarinn- ar í Bandaríkjunum). Hinn „skáldaði“ Morris fylgist með ævi Ronalds Reagan frá því hann er unglingur, lýsir kynnum sínum af honum þegar hann var lífvörður á vinsælum sundstað, náms- maður við háskóla, íþróttafréttaþulur í útvarpi, leikari í Hollywood, leiðtogi stéttarfélags, tals- maður fyrirtækis og ríkisstjóri Kaliforníu. Og til að gæða hinn skáldaða tvífara sinn lífi í sögunni býr Morris einnig til fleiri persónur, vini og vandamenn sögumannsins. Forsetakosningaár- ið 1981 tekur hinn „raunverulegi“ Edmund Morris við af hinum skáldaða Morris/sögu- manni og lýsir kynnum sínum af Ronald Reagan í Hvíta húsinu eftir að hann varð forseti. Þetta var eina leiðin til að gera lesendum kleift að sjá heiminn eins og Reagan sá hann, fullyrðir Morr- is: Eins og kvikmynd. III Það var líklegast ekki nein tilviljun að Ronald Reagan valdi setningu úr kvikmynd sem titil sjálfsævisögu sinnar. Því hefur margoft verið haldið fram að hann hafi átt í verulegum erf- iðleikum með að skilja á milli raunveruleikans og kvikmyndanna. Hann ku hafa kallað forseta- starfið „uppáhalds hlutverkið sitt“ og fyrirskip- aði: „Sýnið mér stríðsherbergið“ (Take me to the war room) þegar hann var leiddur um ganga Hvíta hússins í janúar 1981. Þegar fylgdar- mennirnar tjáðu honum vandræðalegir að slíkt herbergi fyrirfyndist ekki í húsinu, það væri bara til í kvikmynd Stanleys Kubrick Dr. Strangelove, varð hann fyrir verulegum von- brigðum. Og kvikmyndir komu víst til tals í sam- tali Ronalds Reagan og Mikhails Gorbachev í Höfða í Reykjavík, ef marka má vitnisburð við- staddra. Gorbachev hafði kynnt sér feril Banda- ríkjaforseta og meira að segja lagt á sig að horfa á nokkrar af kvikmyndum hans. Og viti menn: „Mér fannst sérstaklega gaman að þeirri með fótalausa manninum,“ á hann að hafa sagt – og Reagan svaraði að bragði, með miklum tilþrif- um: „Wherés the rest of me?!“ Samkvæmt við- stöddum var þetta vendipunktur fundarins; hin gamla Hollywoodmynd Kinǵs Row (var einhver að tala um táknrænan titil?) bræddi ísinn á milli þjóðarleiðtoganna og kalda stríðið var fyrir bí.“3 Það er stundum vísað til þess að fólkið á hvíta tjaldinu sé í „yfirstærð“, það er larger than life. Og kannski má segja það um Ronald Reagan að hann hafi í lifanda lífi verið allt að því goðsögu- leg persóna og í vissum skilningi hlaut hann goðsögulegan endi; hann var maður sem sóttist eftir því að skrá nafn sitt á spjöld sögunnar til þess að verða ógleymanlegur. En sjálfur varð hann að sæta þeim örlögum að gleyma smátt og smátt öllu sem sjálfsmynd hans byggðist á. Á meðan Edmund Morris hamaðist við að fram- kalla mynd af ævi Ronalds Reagan var sjálfs- mynd hans smám saman að eyðast hægt og hægt. Það er nokkur galli á verki Morris að hann heyktist á að takast á við þetta tímabil í lífi Ronalds Reagan; tímabil eyðingar sjálfsins og útþurrkunar minnisins. IV Menn deildu ákaft um bók Morris í Banda- ríkjunum þegar hún kom út og blönduðu ýmsir þekktir ævisagnaritarar sér inn í þá deilu og ekki vissu allir í hvorn fótinn væri best að stíga. Eric Lax, sem skrifað hefur bækur um Woody Allen og Humphrey Bogart, var á þeirri skoðun að aðferð Morris væri annaðhvort mjög bylting- arkennd eða mjög mikið glappaskot, hann var ekki viss hvort væri raunin. Margir ævisagna- ritarar og sagnfræðingar sem aðhyllast hefð- bundin vinnubrögð voru Morris ævareiðir. Þeir fullyrtu að hann hefði vikist undan því verkefni sem honum var trúað fyrir, sem var að skrifa trúverðuga og raunsanna ævisögu forsetans fyrrverandi. „Skáldskaparblekkingar eru mis- notkun á rausn forsetans og sóun á tækifæri sem aldrei gefst aftur,“ sagði ritstjóri Wall Street Journal. Edmund Morris sagðist hins vegar vera að ryðja nýja braut í ritun ævisagna með því að leggja áherslu á ,,ímyndað og raun- verulegt samband ævisagnaritarans og manns- ins sem hann fjallar um.“ Og hann bætti við að rit sagnfræðinga séu oft á tíðum of einhæf, mörg þeirra séu leiðinleg og málfarið of fræðilegt.4 Morris rökstuddi einnig ákvörðun sína með því að Ronald Reagan hafi verið leikari af lífi og sál og í raun alltaf verið í einhverju hlutverki. Hann hafi verið maður mikilla mótsagna og til að koma sem best til skila þessu mótsagnakennda, fjölbreytta sjálfi hafi aðferðir skáldskaparins reynst bestar. Gagnrýnendur áttu í vandræðum með að flokka verk Edmunds Morris og sumir flokkuðu það einfaldlega sem sögulega skáldsögu. Það er athyglisvert að í raun bera allar skýringar Morris á því hvers vegna hann valdi þessa að- ferð við ævisagnaritunina að sama brunni; hon- um fannst hann ekki getað höndlað sjálf Ron- alds Reagan og komið því á framfæri á trúverðuglegan hátt í texta. Og hann lýsir þessu sjálfi sem hálu, brotakenndu, fjölbreyttu, þetta er sjálf sem er í sífelldum hlutverkaleik og smýgur undan öllum föstum skilgreiningum. En ég spyr, er ekki svo um öll sjálf? Hefur Morris ekki með sínu umdeilanlega verki bent okkur á kjarna þess vanda að skrifa ævisögu hugveru yfirleitt? Hvernig er mögulegt að lýsa hugver- unni allri? Það leiðir hugann aftur að sjálfsævisögunni Wherés the Rest of Me? Í titlinum hlýtur að leynast sá merkingarmöguleiki að það sjálf sem liggur verkinu til grundvallar sé óheilt, að eitt- hvað vanti upp á sjálfsmyndina til að hún verði heil og fullkomnuð. Eins og ég hef rætt um er slík þrá – þrá eftir heildstæðu og fullkomnu sjálfi – tálsýn ein. Þessi þrá sem rekur margan manninn út í að skrifa sjálfsævisögu sína getur ekki fullkomnast með þeirri ritun. Ef til er heilt og óskipt sjálf þá er það látið sjálf, dáið sjálf – í dauðanum nær sjálfið fyrst að endapunktinum sem lokar því. Titilinn á sjálfsævisögu Ronalds Reagan mætti því þýða þannig á íslensku: Hvar er ég allur? Og svarið er fengið. Heimildir: 1 Ronald Reagan & Richard G. Hubler. Wherés the Rest of Me? Duell, Sloan and Pearce 1965. 2 Edmund Morris. Dutch: A Memoir of Ronald Reagan. Random House 1999 3 Edmund Morris. Dutch: A Memoir of Ronald Reagan. Random House 1999 4 Sjá umfjöllun um bók Morris í Morgunblaðinu 3. október 1999 RONALD REAGAN ALLUR Ronald Reagan, fyrrver- andi Bandaríkjaforseti, lést síðastliðinn laugar- dag. Hér er fjallað um sjálfsævisögu hans Where’s the Rest of Me? frá 1965 og ævisöguna Dutch: A Memoir of Ron- ald Reagan frá 1999 eftir Edmund Morris en báðar vekja þær ekki aðeins spurningar um Reagan heldur og ævisagnaritun sem bókmenntagrein. Höfundur er bókmenntafræðingur. E F T I R S O F F Í U A U Ð I B I R G I S D Ó T T U R Reuters „Og kannski má segja það um Ronald Reagan að hann hafi í lifanda lífi verið allt að því goðsöguleg persóna og í vissum skilningi hlaut hann goð- sögulegan endi.“ Myndin er frá 1986.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.