Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.2004, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.2004, Blaðsíða 15
KAFFISTOFU hestaleigunnar á Indriðastöðum í Skorra- dal prýða listaverk eftir Ólaf Th. Ólafsson myndlist- armann frá Selfossi en hann opnar sýningu kl. 13 á morgun. Ólafur hefur haldið nokkrar einkasýn- ingar og tekið þátt í sam- sýningum. Hann sýnir nú vatnslitamyndir og teikn- ingar. Þessi fyrsta myndlist- arsýning í Skorradal er haldin í tengslum við Borgfirð- ingahátíð sem stendur nú yfir. Mik- ið verður um að vera á Indriðastöðum á morgun; þar verður haldin flugdreka- hátíð, spákona verður í hjólhýsi, fólki verður boðið á hestbak í hestaleigunni og hægt verður að leigja fjór- hjól í fjórhjólaleigunni. Auk þess verða kaffi og kleinur í hlöðunni á bænum. Hinum megin við Skorradalsvatn, á Stálpastöðum, verður björg- unarsveitin með vatnasport. Myndlistarsýning Ólafs verður opin áfram í sumar og eru allar myndirnar til sölu. Myndlist í Skorradal Ólafur Th. Ólafssson LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. JÚNÍ 2004 15 Næsta v ika menning@mbl.is Laugardagur Jómfrúin við Lækjargötu kl. 16 Tríóið Guitar Islancio leikur á öðrum tónleikum sum- artónleikaraðarinnar. Tríóið skipa þeir Björn Thoroddsen á gítar, Gunnar Þórðarson á gít- ar og Jón Rafnsson á bassa. Tríóið hefur nýlega sent frá sér geisladiskinn Scandinavian songs. Aðgangur er ókeypis. Thorvaldsenbar Listakonan Mæja opnar sína árlegu vor- sýningu sem nefnist nú „Sum- arið er mitt“. Gleði, ást og hamingja allsráðandi að þessu sinni. Sýningin stendur til 24. júlí. Sunnudagur Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús kl. 15 Þorvaldur Þorsteinsson fer með gestum um sýningu sína og segir frá ferli sínum og ræðir um verkin. Mánudagur Hafnarborg kl. 12 Hádeg- issveifla. Davíð Ólafsson syng- ur negrasálma við undirleik Antoníu Hevesi píanóleikara. Aðgangur er ókeypis. Þjóðarbókhlaða Sýningin „Íslenskar kvennahreyfingar - innblástur, íhlutun, irringar“ verður opnuð á 2. hæð. Sýnd eru merk skjöl og munir úr kvennahreyfingunni og sagan lögð fram á myndrænan hátt. Fréttamyndir úr safni sjón- varpsins verða sýndar dag- lega kl. 12.15-12.45 í fyr- irlestrarsal. Þriðjudagur Listasafn Íslands kl. 12.10-12.40 Rakel Péturs- dóttir safnfræðingur fer með gestum um sýninguna Í nær- mynd/Close-up, bandarísk samtímalist. Á sýningunni eru mörg af þekktustu samtíma- listaverkum bandaríkjanna eft- ir 11 fremstu listamenn þeirra. Salurinn kl. 20 Jaren Brass Band er eitt af 10 bestu brass- böndum í Noregi. Bandið er komið til Íslands til að taka þátt í Landsmóti Lúðrasveita sem haldið er í Vestmannaeyjum dagana 18. - 20. júní. Jaren Brass Band kemur ásamt lúðrasveit frá Finnlandi. Þær taka báðar taka þátt í hátíða- höldum 17. júní í Reykjavík. Miðvikudagur Hafnarborg kl. 12 Auður Gunnarsdóttir syngur ást- araríur við undirleik Antonía Hevesi píanóleikra. Fríkirkjan í Hafnarfirði kl. 20.30 Fríkirkjukórinn í Hafn- arfirði flytur söngva frá suð- rænum slóðum auk íslenskra sumarlaga og sálma. Listasafn Reykjanesbæjar kl. 20 Alexandra Cherny- shova, sópran og Ingveldur Ýr Jónsdóttir, messósópran við undirleik Gróu Hreinsdóttur, píanóleikara flytja alþýðu- og þjóðlög, aríur úr óperum og rómantísk lög. Guitar Islancio Ingveldur Ýr Jónsdóttir Morgunblaðið/ÞÖK Áhugasamir rýna hér í kynningarbækling Bjartra daga. Lista- og menningarhátíðin, Bjart-ir dagar í Hafnarfirði, hefurgöngu sína í dag og stendur há-tíðin fram til 23. júní. Þetta er í annað sinn sem Hafnfirðingar halda slíka hátíð, sú fyrsta var í fyrrasumar. Fjölbreytt dagskrá verður í boði og segir Marín Hrafnsdóttir, menningar- og ferðamálafulltrú, að dagskrána fylli 60 viðburðir af ýmsu tagi. En hvaða gildi hefur svona hátíð fyrir bæjarfélagið? „Hátíð sem þessi hefur gríðarlega mikið gildi fyrir bæinn okkar og má segja að Hafn- arfjörður verði í sparifötunum alla dagana. Bæjarbúar verða allir varir við hátíðahöldin á einn eða annan hátt enda er hún til þess fallin að gleðja og skemmta. Ekki síst er hún mikilvægur vett- vangur til að koma listamönnum okk- ar og félagasamtökum á framfæri. Undirbúningur að hátíðinni er í raun tvíþættur. Annars vegar viðburðir sem við fóstrum og ýtum úr vör og hins vegar listamenn sem hafa sam- band og vilja vera með.“ Er lögð áhersla á eitthvað eitt frem- ur en annað? „Já, í fyrra lögðum við áherslu á unga fólkið og höldum því enn frekar áfram nú. Við erum sann- færð um að það skiptir mjög miklu máli í uppeldi ungviðsins að þau fái að kynnast þessum menningarheimi og taka þátt, enda eru þau mjög með- vituð um það. Við höfum nýlega opnað menningar- og kaffihús fyrir ungt fólk sem heitir Gamla bókasafnið. Það er mikill kraftur í þessari starfsemi og verða viðburðir þar alla dagana. Á kvöldin verður tónlistin í öndvegi, hipphopp, rafkvöld, klassík, rokk og popp. Allt verður þetta svo dregið saman á stórum útitónleikum 22. júní undir yfirskriftinni „Allt það besta“. Þar koma m.a. fram hljómsveitirnar Úlpa, Lada Sport og Jagúar. Einnig hafa Félagsmiðstöðvarnar verið að undirbúa dagskrá og verða með „töðugjöld“ í dag. Yngstu bæjarbúarnir hafa líka staðið í ströngu við undirbúning hátíð- arinnar því 13 leikskólar fá eitt fyr- irtæki hvert fyrir sig til að skreyta og prýða. Enginn aldurshópur er þó und- anskilinn því það verður fjölbreytt dagskrá í Félagsheimili aldraðra. Meira að segja fá álfarnir okkar sinn skerf af gleðinni því við ljúkum hátíð- inn á Jónsmessugleði, þá fer Erla Stefánsdóttir á stjá með gesti um álfa- byggðir.“ Eftir setningu Bjartra daga, sem fram fer fyrir framan bókasafnið kl. 14 í dag, verða sjö sýningar af ýmsum toga opnaðar víða um bæinn. Fjórar í Hafnarborg, sýning Góðtemplara- reglunnar á stúkufundi þar sem sett- ur verður upp hefbundinn stúkufund- ur í Gúttó. Horft í hamarinn nefnist sýning sem opnuð verður hjá Halla rakara um samskipti álfa og manna og ljósmyndasýning verður utandyra í Portinu. Þá verður ný íslensk kvik- mynd í fullri lengd frumsýnd í Bæj- arbíói, Konunglegt bros eftir Gunnar Björn Guðmundsson. „Nú svo er það Víkingahátíðin. Hún hefst 16. júní og stendur til 20. júní. Það er mjög skemmtilegt að hún komi inn í dagskrána okkar og styrkir þessa hátíð. Þá er hugmyndin að end- urvekja gömlu baðstofustemminguna með Sagnakvöld í Fjörkránni á morg- un. Þar munu kunnir sagnamenn segja sögur.“ Ekki verður klassíska tónlistin undanskilin í svona hátíðahöldum, eða hvað? „Nei aldeilis ekki. Fjöldi tón- leika verða í Hafnarborg, t.d. djass- tónleikar og ljóðatónleikar svo og Há- degistónleikar sem Antonía Hevesi hefur séð um frá því í fyrra en þá buð- um við í fyrsta sinn upp á slíka tón- leika á Björtum dögum. Þeir mæltust svo vel fyrir að við ákváðum að halda þeim áfram í vetur. Við tökum svo aft- ur upp þráðinn á komandi hausti. Í kvöld býðst söngelskum að taka þátt í kórsöng í Hafnarborg. Þar stendur til boða að syngja með tveimur okkar stærstu kórum, Karlakórnum Þröst- um og Kvennakór Hafnarfjarðar. All- ir fá textablöð í hendur og sungið verður undir stjórn Jóns Kristins Cortes og Hrafnhildar Blomsterberg. Hátíðin tókst mjög vel í fyrra og það er von okkar að hún vaxi og þroskist í framtíðinni. Verði er stillt í hóf og meira en helmingur dagskrár- liða er í boði bæjarins. Það er ánægju- legt.“ Allir fá sinn skerf af gleði í Hafnarfirði STIKLA Bjartir dagar í Hafnarfirði helgag@mbl.is Myndlist 101 gallery, Hverfisgötu 18a: Hulda Hákon. Til 7. júlí. Galleri Skuggi: Lokað vegna sumarleyfa. Gallerí Sævars Karls, Bankastræti: Ari Svav- arsson. Til 11. júní. Gerðarsafn: Íslensk mál- verk í einkaeign Dana. Til 20. júní. Gerðuberg: „Allar heimsins konur“. Til 24. júní. Hafnarborg: Anna Þóra Karlsdóttir, Guðrún Gunn- arsdóttir (TóTó). Jana Part- anen. Marisa Navarro Ara- son. Magnús Björnsson. Til 5. júlí. Hallgrímskirkja: Steinunn Þórarinsdóttir. Til 1. sept. Hönnunarsafn Íslands, Garðatorgi: Kristín Ísleifs- dóttir. Til 30. júní. Hagvirkni, húsbúnaður eftir íslenska myndlistarmenn, 1904– 2004. Til 20. júní. i8, Klapparstíg 33: Gabrí- ela Friðriksdóttir. Til 26. júní. Kling og Bang gallerí: David Askevold.Til 13.júní. Listasafn ASÍ: Guðrún Vera Hjartardóttir, Helga Ósk- arsdóttir og Ingibjörg Magnadóttir. Til 4. júlí Listasafn Akureyri: Kenj- arnar eftir Goya. Til 14. júlí. Listasafn Árnesinga: Krist- ján Guðmundsson. Til 11. júlí. Listasafn Íslands: Í nær- mynd Close-up, bandarísk samtímalist. Til 27. júní. Listasafn Ísafjarðar: Spessi. Til 1. ágúst. Listasafn Einars Jóns- sonar: Opið alla daga, nema mánudaga, kl. 14–17. Til 15. sept. Listasafn Reykjavíkur - Ásmundarsafn: Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning. Til 2006. Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús: Þorvaldur Þor- steinsson. Til 8. ágúst. Ný safnsýning á verkum Errós. Listasafn Reykjavíkur - Kjarvalsstaðir: Francesco Clemente. Roni Horn. Til 22. ágúst. Listasafn Reykjanes- bæjar: Margrét Jónsdóttir. Til 20. júní. Listasafn Sigurjóns Ólafs- sonar: Listaverk Sigurjóns í alfaraleið. Til 5. sept. Opið alla daga, nema mánudaga, kl. 14-17. Til 1. okt. Ljósmyndasafn Reykja- víkur, Grófarhúsi: Finnsk samtímaljósmyndun. Til 29. ágúst. Listhús Ófeigs, Skóla- vörðustíg: Sunna Sigurð- ardóttir. Til 16. júní. Norræna húsið: Sigurður Þórir. Til 13. júní. Safnasafnið, Svalbarðs- strönd: 11 nýjar sýningar. Safn – Laugavegi 37: Op- ið mið.–sun. kl. 14–18. Sum- arsýning úr safnaeign. Mar- grét H. Blöndal. Til 20. júní. Leiðsögn alla laugardaga. Safn Ásgríms Jónssonar: Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar. Skriðuklaustur: Fantasy Island. Samsýning 8 lista- manna. Til 25. júní. Slunkaríki, Ísafirði: Tryggvi Ólafsson. Til 4. júlí. Þjóðmenningarhúsið: Handritin. Heimastjórn 1904. Þjóðminjasafnið – svona var það. Eddukvæði. Til 1. sept. Þjóðarbókhlaða: Heima- stjórn 100 ára. Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn: Hand- band á Íslandi 1584-2004. Söguleg sýning á útgáfu Guðbrandsbiblíu 1584 til vorra daga. Til 31.ágúst. Leiklist Þjóðleikhúsið: Edith Piaf, fös. Græna landið, lau. Borgarleikhúsið: Don Kík- óti, sun. Chicago, lau. Rómeó og Júlía, lau. Belgíska Kongó, sun. SÝNINGIN Strengir verður opnuð í dag kl. 15 í Óðins- húsi, Eyrarbakka. Að henni standa listakonurnar Ásdís Þórarinsdóttir, Guðfinna Anna Hjálmarsdóttir, Helga Unnarsdóttir og Ingibjörg Klemenzdóttir. Þær voru við nám í Myndlista- og hand- íðaskólanum og Listahá- skóla Íslands á árunum 1996-2001 og hafa starfað saman að ýmsum verk- efnum. Yfirskrift sýningarinnar, Strengir, vísar í þann sam- hljóm sem gætir í verkum listakvennanna þar sem ís- lensk náttúra og nánasta umhverfi sýningarinnar spil- ar stórt hlutverk. Óðinshús var upphaflega pakkhús byggt 1913 og er með elstu húsum á Eyr- arbakka. Leitast hefur verið við að koma því í sem næst upprunalegt horf og hafa verið haldnar þar mynd- listasýningar undanfarin ár. Sýningin stendur til 27. júní. Opið fimmtudaga til sunnudaga kl.13-18. Samsýning í Óðinshúsi Listakonurnar sem sýna í Óðinshúsi og hluti verka þeirra.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.