Lesbók Morgunblaðsins - 10.07.2004, Page 3
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 10. júlí 2004 | 3
E
lvis er löngu orðinn stærri en við, meiri en við,
gnæfir yfir tónlistarheiminn, grannvaxinn, nötr-
andi af eðlunarfýsn / útblásinn belgur í glit-
saumuðum samfestingi – tákn fyrir allt það
besta og versta sem fylgt getur frægðinni.
Hann var hæfileikamikill, kynþokkafullur,
glæsilegur, villtur, feitur, ruglaður dópisti. Allt sem sagt hefur
verið um Elvis er lygi og það er líka allt satt. Vitur maður sagði
eitt sinn að þar sem mannkyninu fari sífellt fram, það leiti í átt að
meiri þroska, í átt að fullkomnun, verði allir á endanum eins og
Elvis.
Þess er minnst um þessar mundir að Elvis Presley söng blúss-
lagara inn á band fyrir fimmtíu árum; fimmta júlí 1954 var hann
að gaufast með músíköntum í Sun-hljóðverinu hjá Sam Phillips,
búinn að reyna að taka upp rómantískar ballöður
en gekk ekki, upptökulotan að verða búin og ekk-
ert komið af viti. Þá var það að hann stakk upp á
blús sem hann þekkti vel, That’s All Right eftir
negrann Arthur „Big Boy“ Crudup. Undirspilið var uppmagn-
aður hálfkassagítar og kontrabassi, ósköp venjulegt rokkabillí en
það var söngurinn sem gerði gæfumuninn, ungæðisleg röddin,
hrynjandin í henni og spennan; er nema von að Phillips hafi
sperrt eyrun – hann heyrði í framtíðinni.
5. júlí er hátíðisdagur, því þá tóku þeir Elvis, Scotty Moore og
Bill Black upp lagið fræga, en sá tíundi, dagurinn í dag, er hinn
raunverulegi gleðidagur því þá hljómaði það í útvarpi í fyrsta
sinn, þá hófst byltingin.
Elvis og Gladys
Samband Elvis við Gladys móður sína var ríkur þáttur í persónu-
leika hans. Hún vakti yfir hverri hreyfingu hans sem má eflaust
skýra að einhverju leyti með því að Elvis var tvíburi en Jesse
Garon bróðir hans fæddist andvana nokkrum mínútum áður en
Elvis kom í heiminn og var grafinn úti í garði í skókassa. Svo
hrædd var Gladys um að missa strákinn sinn að hún baðaði hann
ekki, heldur þvoði honum með rakri dulu, óttaðist að hann myndi
drukkna annars. Hún fylgdi honum í skólann á hverjum degi, en
er hann amaðist við því af ótta við stríðni skólafélaga gekk hún í
humátt á eftir honum eða leyndist í runnum eða á bak við bíla á
leiðinni. Náið samband Elvis og Gladys mótaði hann og því hefur
verið fleygt að hann hafði aldrei náð sér eftir andlát hennar, en
hún lést úr lifrarbólgu 14. ágúst 1958 er Elvis gegndi herskyldu.
Mánuði eftir að Elvis missti móður sína var hann kominn til
Þýskalands, til Friedberg. Þar hitti hann unglingsstúlku, Pris-
cilla Beaulieu, fjórtán ára snót en hann 24 ára. Hann féll fyrir
sakleysi hennar og barnslegri fegurð, hún var ekki eins og hisp-
ursmeyjarnar sem hann gamnaði sér með, og hún var upp með
sér af athyglinni aukinheldur sem Elvis var óneitanlega glæsi-
legur.
Elvis lauk herskyldu 1960 og tók upp þráðinn þar sem frá var
horfið í músíkinni, en vinsældir hans höfðu lítið sem ekkert dvín-
að árin sem hann var í hernum, Parker höfuðsmaður, umboðs-
maður hans, sá um það. Jólin 1962 kom Priscilla í heimsókn til
Elvis í Graceland og 1963 fluttist hún til hans til Bandaríkjanna.
Þau giftu sig vorið 1967 og níu mánuðum síðar fæddist Lisa Mar-
ie. Þegar Pricilla var orðin móðir lauk samlífi hennar og Elvis að
mestu leyti og þau skildu 1972.
Elvis og Nixon
Það var svo til að kóróna síðustu æviár hans er þeir hittust í
Hvíta húsinu, konungur rokksins og skálkurinn Richard Nixon.
Þegar hér var komið sögu, í desember 1970, var Elvis orðinn
hálfruglaður af pilluáti og veruleikafirrtur. Hann fékk þá flugu í
höfuðið að hann ætti að leggja sitt af mörkum til að forða banda-
rísku þjóðinni frá byltingarsinnuðum vinstrimönnum, Svörtu hlé-
börðunum, hippum og dópistum. Á leiðinni skrifaði hann Nixon
bréf sem hann afhenti síðan í hliðinu að Hvíta húsinu. 21. desem-
ber hittust þeir svo Elvis og Nixon, Nixon í hefðbundnum klæðn-
aði forseta, teinóttum jakkafötum, hvítri skyrtu og með bindi, og
Elvis hefðbundnum klæðnaði konunga, þröngum fjólubláum
flauelsbuxum, hvítri fleginni silkiskyrtu með háum kraga, dökk-
fjólublárri skikkju, gullmedalíu um hálsinn, silfruð sólgleraugu
og breiðan gullsleginn mittislinda. Ekki má svo gleyma því að
Elvis var vopnaður.
Í samtali forsetans og kóngsins kom meðal annars fram skoð-
un Elvis á andamerísku atferli Bítlanna, áhyggjur hans af auk-
inni eiturlyfjaneyslu, rannsóknir hans á heilaþvottaraðferðum
kommúnista og ósk hans um að fá inngöngu í bandarísku alrík-
islögregluna, en það var víst aðalástæða heimsóknarinnar; Elvis
taldi að stöðu sinnar vegna gæti hann orðið flugumaður í ungliða-
og námsmannahreyfingum. Nixon gekk ekki svo langt að
munstra Elvis í alríkislögregluna, en gaf honum lögregluskjöld.
Elvis dópisti
Elvis komst snemma upp á lagið með að nota lyf til að auðvelda
sér lífið; hressandi áður en hann fór inn á svið og svo róandi að
tónleikum loknum. Síðustu æviárin var hann meira og minna í
vímu og við krufningu fundust leifar af fjórtán mismunandi lyfj-
um í blóði hans.
Margir urðu til að kenna líflækni Elvis síðustu tíu árin sem
hann lifði, George Nichopoulos, um dauða hans, enda var hann
duglegur að gefa út lyfseðla; nægir að nefna að árið sem Elvis
lést hafði hann ávísað til hans 10.000 lyfjaskömmtum þegar kom-
ið var fram í ágúst. Á endanum var Nichopoulos sviptur lækn-
ingaleyfi.
Flest bendir þó til að hann hafi frekar reynt að letja Elvis í
pilluátinu en hvetja. Málið er að þegar Nichopoulos kom til sög-
unnar var Elvis búinn að nota ýmis lyf í óhófi árum saman og
ekki bara hann heldur liðið sem var með honum, Memphis-
mafían svonefnda. Elvis hafði mikinn áhuga á lyfjum og var æv-
inlega spenntur fyrir því að prófa ný og spennandi lyf, ekki síst ef
þau voru sterkari en þau sem hann notaði fyrir.
Áhugi Elvis á lyfjum riðu honum nánast að fullu, hann tók til
að mynda of stóran skammt af lyfjum í febrúar 1973 og var í dái í
þrjá daga í svítu sinni á Hilton-hótelinu í St. Louis. Í árslok var
hann lagður inn á spítala í Memphis hálfrænulaus af lyfjanotkun
eftir cortison-eitrun og einnig til að sigrast á fíkn í verkjalyf sem
innihélt mikið af kódeiní. Lyfin hafði hann fengi hjá læknum sem
hann hitti án vitundar Nichopoulos.
Eftir það fór Nichopoulos alltaf með Elvis í heimsóknir til ann-
arra lækna, og var þannig alltaf viðstaddur þegar Elvis fór til
tannlæknis, svo dæmi séu tekin. Á endanum fór Nichopoulos að
gefa honum lyfleysu, fyrst þannig að hann og aðstoðarmenn Elv-
is settu saltvatn í lyfjahylki og síðar fékk Nichopoulos framleið-
anda þess verkjalyfs sem Elvis hélt mest upp á til að framleiða
sérstaklega óvirkar pillur sem litu eins út og þær raunverulegu.
Heilagur Elvis
Ýmsir hafa orðið til að draga fram það sem þeir áttu sameig-
inlegt, Jesús og Elvis (Jesús læknaði holdsveika, daufa og blinda,
Elvis gaf fátækum kádiljáka) og ekki hefur dregið í sundur með
þeim eftir fráfall Elviss; Elvis birtist fólki í stórmörkuðum og á
bensínstöðvum, margir hafa komið sér upp altari þar sem færðar
eru brennifórnir, reykelsi og kerti, og fregnir eru af því að Elvis
hafi bænheyrt fólk og læknað.
Aðdáendur hans, heittrúaðir, safnast saman árlega til að minn-
ast hans í svonefndri „dauðaviku“, safnast saman við hliðið á
Graceland og ganga síðan í prósessíu að gröf Elvis, tugir þús-
unda og fjölgar ár frá ári.
Fjölmargar bækur hafa komið út þar sem menn bera saman líf
frelsarans og Elvis, lesa úr guðspjöllunum ævisögu Elvis ekki
síður en Jesú – ekki er ólíklegt að trúnaður á Elvis verði orðinn
almennur vestan hafs eftir hálfa öld eða svo.
„Úr El-vis lesum við „Guð máttur“. Aron þýðir „kennari“ og
Presley er komið af priestly sem þýðir „prestur“. Allir þrír helstu
íverustaðir Elvis innihalda spádómsorðið „EL“: Graceland, Tup-
elo og Bel Air. Að auki segir í Biblíunni að frá krossfestingu
Krists njótum við náðartíma, þess 2.000 ára tímabils sem við
hljótum fyrirgefningu vegna fórnardauða Krists. Setur Elvis
Presley heitir Náðar-Land!“
Úr „The Elvis-Jesus Mystery – The Shocking Scriptural and
Scientific Evidence That ELVIS PRESLEY Could Be the Mess-
iah Anticipated Throughout History!“ eftir Cinda Godfrey.
(Þess má geta að Elvis var að lesa bókina „Vísindaleg leit að
andliti Jesú“ er hann lést.)
Elvis og Elvis
Eins og allir góðir snillingar tók Elvis ekki að láni, hann kunni að
stela. Hann hlustaði á alla tónlist, allt frá svörtum blús í sálma-
söng og spennan milli hins geistlega og veraldlega var í tónlist-
inni, tónlist djöfulsins eins og predikarar kölluðu blúsinn, hryn-
blúsinn og svo rokkið, sem er ekki bara músík heldur líka útlit,
framkoma, uppreisnarandi. Elvis stal frá öllum, svörtum sem
hvítum, rokki og rokkabillí, en hann fann ekki upp rokkið, hann
fann upp Elvis.
Elvis var sjálfsöruggur og góður með sig eins og ritari í Sun-
hljóðverinu komst að þegar hann kom þar til að taka upp afmæl-
isplötu fyrir móður sína sumarið 1954: Ég er söngvari, kynnti
hann sig og spurður hvernig tónlist hann syngi svaraði hann: All-
ar tegundir. Ekki var hann heldur hlédrægur þegar næsta
spurning kom: Hverjum líkist þú, því svarið kom að bragði: Eng-
um.
Elvis er alstaðar
Þess er minnst um þessar mundir að fimmtíu ár eru síðan Elv-
is Presley tók upp fyrsta lag sitt sem eitthvað kvað að. Í kjöl-
far þess varð hann vinsælasti tónlistarmaður Bandaríkjanna,
konungur rokksins, samnefnari fyrir allt það gott og slæmt
sem frægðinni getur fylgt.
Eftir Árna
Matthíasson
arnim@mbl.is
Jesús læknaði holdsveika, daufa og blinda, Elvis gaf fátækum kádiljáka.